Síða 1 af 1

Varðandi windows startup sound! :)

Sent: Mið 06. Nóv 2013 21:55
af SergioMyth
Góðan daginn!

Ég er búinn að vera breyta hinu og þessu í tölvunni minni, ég breytti startup myndinni meðal annars þannig að í stað venjulegrar myndar kemur mynd af svarthöfða. Ég er búinn að breyta main star wars theme-inu í wav og setja það sem default log on sound en mig vantar að breyta startup soundinu sjálfu? Ég er með reshacker og sennilega bæði þá burði og getu til að fara eftir leiðbeiningum ef menn miklir sjéníar í þessum málum. :)

Re: Varðandi windows startup sound! :)

Sent: Mið 06. Nóv 2013 22:18
af trausti164

Re: Varðandi windows startup sound! :)

Sent: Fim 07. Nóv 2013 09:16
af SergioMyth
Þetta er xp, ég er með windows 7!

Re: Varðandi windows startup sound! :)

Sent: Fim 07. Nóv 2013 10:02
af trausti164
Sama aðgerð.

Re: Varðandi windows startup sound! :)

Sent: Fim 07. Nóv 2013 11:58
af SergioMyth
Það er ekki start windows, þarna hvergi. Ég þarf í rauninni a finna þennan fæl imageres.dll ;)

Re: Varðandi windows startup sound! :)

Sent: Fim 07. Nóv 2013 11:59
af SergioMyth
Start up soundið er aðskilið þessum liðum í windows 7 og þú nærð ekki að hafa áhrif á hljóðið nema modda þessa skrá (imageres.dll)

Re: Varðandi windows startup sound! :)

Sent: Fim 07. Nóv 2013 12:08
af Gislinn
SergioMyth skrifaði:Start up soundið er aðskilið þessum liðum í windows 7 og þú nærð ekki að hafa áhrif á hljóðið nema modda þessa skrá (imageres.dll)


C:\Windows\System32\imageres.dll

Bíð spenntur eftir "Hjálp, ég stútaði windowsinu mínu" þræðinum frá þér. :guy

Mundu að gera restore point áður en þú ferð í að fikta í þessum hlutum.

Re: Varðandi windows startup sound! :)

Sent: Fim 07. Nóv 2013 12:27
af SergioMyth
Gislinn skrifaði:
SergioMyth skrifaði:Start up soundið er aðskilið þessum liðum í windows 7 og þú nærð ekki að hafa áhrif á hljóðið nema modda þessa skrá (imageres.dll)


C:\Windows\System32\imageres.dll

Bíð spenntur eftir "Hjálp, ég stútaði windowsinu mínu" þræðinum frá þér. :guy

Mundu að gera restore point áður en þú ferð í að fikta í þessum hlutum.


Ég geri backup áður en ég fer í gífurlegar aðgerðir! Hef brennt mig á þessu áður! :)
En btw acessa ég þetta bara með res hacker og replace moddaðri/hackaðri imageres skrá í staðinn? Hvernig framkvæmi ég þetta? :

Re: Varðandi windows startup sound! :)

Sent: Fim 07. Nóv 2013 13:15
af Gislinn
SergioMyth skrifaði:En btw acessa ég þetta bara með res hacker og replace moddaðri/hackaðri imageres skrá í staðinn?


Já.

Startup sound file-inn heitir 5080.wav

Re: Varðandi windows startup sound! :)

Sent: Fim 07. Nóv 2013 14:13
af SergioMyth
Þúsund þakkir félagi! :)