Síða 1 af 1

Að 'lengja' í þráðlausu neti

Sent: Mán 21. Okt 2013 13:00
af Stutturdreki
Góðæris vandamál dagsins: Þráðlausa netið hjá mér er frekar lélegt þegar ég ligg upp í rúmi á kvöldin/morgnanna.

Mynd

Var aðeins að fletta upp úrvalinu af lausnum í boði og mér sýnist þessar græjur vera að fá æði misjöfn review. Það littla sem ég hef fundið so far.

Svo er einhver sem hefur hands-on experience af einhverjum af þessum græjum?

Linksys Wireless-N Range Extender, RE1000 : http://www.computer.is/vorur/5610/
CNet Wireless-N Long Range Extender, WNIX2300 : http://www.computer.is/vorur/4608/
Edimax N300 Wi-Fi Extender, EW-7438RPn : http://www.computer.is/vorur/5609/
Trendnet TEW736RE WiFi300 Easy-N Range Extender : http://www.tolvutek.is/vara/trendnet-te ... e-extender
WinStars Wireless-N Repeater 300mbps : http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1945
Planet Access Point og Repeater 300Mbps 802.11n (WNAP-1260) : http://www.att.is/product_info.php?cPat ... e7f674b17d
300Mbps Universal Wireless N Range Extender : http://start.is/product_info.php?cPath= ... ts_id=3618

Svo reyndar út frá staðsetningu þá henta sumir af þeim sem fara beint í innstungu illa þar sem ég þarf sennilega að setja þetta undir kommóðu sem þrengir töluvert að innstungum. En náttúrulega ef einhver græja fær súper meðmæli þá verður heimilið bara endurskipulagt með það í huga.

Re: Að 'lengja' í þráðlausu neti

Sent: Mán 21. Okt 2013 13:13
af playman
Ertu búin að skoða hvort að þú getir farið "ókeypis" aðferðina?
Þetta er áhugavert hérna
http://lifehacker.com/5931743/top-10-wa ... home-wi+fi
Og þetta er ein af mörgum útfærslum
http://lifehacker.com/5839243/use-an-al ... i-extender


http://walyou.com/diy-beer-can-wifi-booster/
Mynd
Þarft svo auðvitað að snúa dósinni þannig að hún sé að endurvarpa í áttina þar sem að þess gerist þörf að fá boost.

Áhvað að nefna þetta ef að þú hefur ekki prófað þetta eða vilt hugsanlega spara pening.

Re: Að 'lengja' í þráðlausu neti

Sent: Mán 21. Okt 2013 13:18
af Stutturdreki
Heh.. ekki viss um að konan fallist á þetta sko.

Svo er ég aðallega í veseni þar sem ég er að nota Wifi úr ljósleiðara routernum og það eru engin útvær loftnet á honum hvort eð er.

Re: Að 'lengja' í þráðlausu neti

Sent: Mán 21. Okt 2013 13:26
af demaNtur
http://www.computer.is/vorur/5610/

Er með þetta á efri hæðinni heima, virkar mjög fínt. :japsmile

Re: Að 'lengja' í þráðlausu neti

Sent: Mán 21. Okt 2013 13:28
af playman
Þetta er bara spurning um að koma í veg fyrir að geislunin fari í allar áttir og þær áttir sem að einginn þörf er á
geislun (þráðlausu neti) hægt væri að útbúa endurkastanlegt box fyrir aftan router til þess að endurvarpa geislanum, án
þess að það liti eitthvað ílla út (ef að hann er ekki með loftnet) :)

En já ég áhvað bara að skjóta þessu inn, en við verðum víst að "leyfa" konunum að hafa síðasta orðið
þegar að það er eitthvað sem viðkemur útliti heimilisins ;)

Re: Að 'lengja' í þráðlausu neti

Sent: Mán 21. Okt 2013 13:34
af tdog
Getur fengið Vigdísi Hauks til þess að teygja í þessu fyrir þig :rofl:

Annars myndi ég taka extenderinn sem demantur vísaði á.

Re: Að 'lengja' í þráðlausu neti

Sent: Mán 21. Okt 2013 13:35
af playman
En geturu ekki farið í Access point frekar en repeater/extender?
Því að auðvitað getur repeater/extender ekki gefið betra net en hann nær, ef þú fattar.
En auðvitað þarftu þá að setja upp ethernet kapal þar sem að hann er staðsettur, sem getur verið galli.

Access Point eins og t.d. þennan hérna
http://tolvutek.is/vara/trendnet-tew-63 ... cess-point
Ég er með þennan niðri í vinnu og hann er að virka helvíti fínt og fínt range á honum.

Re: Að 'lengja' í þráðlausu neti

Sent: Mán 21. Okt 2013 13:45
af Stutturdreki
Ef ég myndi nenna að draga vír frá routernum inn í svefnherbergi þá væri það alveg málið. En hitt virkar miklu einfaldara, þarf bara að staðsetja græjuna svona miðja vegu milli routers og herbergis, eftir því hvað signalið er gott.

Og já, þessi Linksys lookar vel (fær actually nokkuð góða dóma) og er hægt að nota bæði beint í innstungu eða með snúru en er náttúrulega dýrastur.

Re: Að 'lengja' í þráðlausu neti

Sent: Mán 21. Okt 2013 14:29
af tlord
prófa að færa ráterinn aðeins, hækka td um 30-50 cm

Re: Að 'lengja' í þráðlausu neti

Sent: Mán 21. Okt 2013 14:56
af Stutturdreki
tlord skrifaði:prófa að færa ráterinn aðeins, hækka td um 30-50 cm

Æji er að nota WiFi úr ljósleiðara-routernum, hann er ekkert voðalega færanlegur og illa staðsettur upp á WiFi (en vel staðsettur upp á flest annað).

Re: Að 'lengja' í þráðlausu neti

Sent: Mán 21. Okt 2013 15:35
af BugsyB
powerline með wifi extender.

Re: Að 'lengja' í þráðlausu neti

Sent: Mán 21. Okt 2013 15:45
af Viktor
BugsyB skrifaði:powerline með wifi extender.


Ó nei. Ekki powerline!

Re: Að 'lengja' í þráðlausu neti

Sent: Mán 21. Okt 2013 16:51
af hagur
Ég var í sömu pælingum um daginn. Prófaði þennan: http://www.att.is/product_info.php?cPat ... e7f674b17d

Hann virkaði illa, fraus trekk í trekk. Gæti hafa verið gallað eintak. Ég endaði á að skipta honum út fyrir http://www.att.is/product_info.php?cPat ... e7f674b17d þar sem ég bý svo vel að vera með CAT6 tengi í herberginu þar sem ég hafði hugsað mér að setja extenderinn. Setti sama SSID og á routernum og tækin tengjast núna bara því neti sem er með sterkara signal. Virkar flawlessly.