Sælir meistarar.
Ég var að spá í hvort einhver gæti sent mér user.ini fælinn úr thomson router frá hringdu.
Ég er með gamlann tg585n v2 frá símanum og hann býður ekki upp á neinar breytingar varðandi vpi/vci ofl.
Því til viðbótar er búið að taka út menu fyrir wizardinn.
Ég fann þetta ekki með góðu móti hjá google frænda svo þá liggur beinast við að tékka á ykkur sem hafið alltaf ráð undir hverju rifi.
kv.