Síða 1 af 1

Chromecast - Wifi spurning

Sent: Mið 02. Okt 2013 22:11
af xerxez
Ég skellti mér á http://www.google.com/intl/en/chrome/devices/chromecast/#netflix, þetta er snildargræja og virkar vel, en til að hún virki þarf ég að tengjast gegnum wifi. Aðal tölvan mín er beintengd við router og mér líkar það best en mig langar líka að geta notað nýju græjuna. Svo spurningin mín er þessi, hvernig væri einfaldast fyrir mig að tengja vélina wifi og ódýrast? Og get ég notast við bæði (wifi og beintengt) með einhverjum hætti?

Re: Chromecast - Wifi spurning

Sent: Mið 02. Okt 2013 22:15
af AntiTrust
Bíddu nú við, getur Chromecast ekki talað við LAN tengd tæki? Það þykir mér furðlegt. Hvaða leið ertu annars að fara til að spila local efni?

Re: Chromecast - Wifi spurning

Sent: Mið 02. Okt 2013 22:18
af ponzer
Mætti ég spyrja hvernig þú komst í svona græju ? Eina leiðin sem ég sé til þess að koma þessu hingað heim er í gegnum ShopUsa og þá er þetta 35$ tæki komið heim á 10þ :thumbsd

Re: Chromecast - Wifi spurning

Sent: Mið 02. Okt 2013 22:22
af xerxez
AntiTrust skrifaði:Bíddu nú við, getur Chromecast ekki talað við LAN tengd tæki? Það þykir mér furðlegt. Hvaða leið ertu annars að fara til að spila local efni?


Ég fæ það allavega ekki til að virka, kannski er það hægt. Til að spila local efni er nóg að dl "file manager" extencion fyrir chrome browserinn.

Re: Chromecast - Wifi spurning

Sent: Mið 02. Okt 2013 22:22
af xerxez
ponzer skrifaði:Mætti ég spyrja hvernig þú komst í svona græju ? Eina leiðin sem ég sé til þess að koma þessu hingað heim er í gegnum ShopUsa og þá er þetta 35$ tæki komið heim á 10þ :thumbsd


Maður býr svo vel að þekkja fólk í usa :)

Re: Chromecast - Wifi spurning

Sent: Mið 02. Okt 2013 22:32
af xerxez
Vandamál leyst. Þetta virkar yfir lan, maður þarf bara að setja þetta upp með þráðlausu tæki.