Síða 1 af 1
Plex klúðrar nöfnum á þáttum
Sent: Fim 05. Sep 2013 10:14
af KermitTheFrog
Sælir,
var að setja upp Plex media server í gær. Virkar fínt out of the box en ég er að taka eftir því að merkingarnar á þáttum hjá mér eru ekki alveg réttar. T.d. eru þættir úr 7. seríu merktir nöfnum og lýsingum sem þættir úr 8. seríu, en eru samt þættir úr sjöundu seríu.
Er einhver leið að leiðrétta þetta?
Re: Plex klúðrar nöfnum á þáttum
Sent: Fim 05. Sep 2013 10:20
af AntiTrust
Hvaða scraper ertu að nota fyrir metadata á TV Shows, og hvernig er naming skemað á skránum?
Re: Plex klúðrar nöfnum á þáttum
Sent: Fim 05. Sep 2013 10:32
af KermitTheFrog
AntiTrust skrifaði:Hvaða scraper ertu að nota fyrir metadata á TV Shows, og hvernig er naming skemað á skránum?
Það sem valið er Local media assets og TheTVDB. Hvernig bæti ég einhverju þarna inn?
Re: Plex klúðrar nöfnum á þáttum
Sent: Fim 05. Sep 2013 10:47
af AntiTrust
Þetta er í raun alveg nóg, það eru til fleiri agentar en TVDB hefur staðið sig ágætlega hjá mér, þarft bara að passa að vera með öll skráarheiti í lagi. Hjá mér endurnefnir og flokkar MCM allt saman, og allir þættir hjá mér eru t.d. með skemanu Þáttarnafn - S01E01 - Nafn ákveðins þáttar og ég man ekki eftir því að Plex hafi skafað vitlaust út frá því, nema þegar það er Special í byrjun seríu sem er núll þáttur, það getur skemmt allt info út seríuna.
Re: Plex klúðrar nöfnum á þáttum
Sent: Fim 05. Sep 2013 11:16
af playman
Plex mun nota TheTVDB til þess að raða upp þáttunum en ekki hverninn þú hefur raðað þeim.
Farðu inná
http://thetvdb.com/ og leitaðu eftir að seríu sem er í rugli hjá þér í Plexinu og berðu hana saman við TVDB,
og þá muntu án efa sjá að það passar ekki saman.
Þarft örugglega að endurnefna alla þættina samhvæmt plex staðlinum til þess að fá þetta rétt upp.
Re: Plex klúðrar nöfnum á þáttum
Sent: Fim 05. Sep 2013 11:27
af playman
Hérna geturðu séð hverninn best er að nefna þættina fyrir Plex, svo að Plexið lesi þetta allt rétt og sleppi ekki þætti af því
að það fann ekkert um hann.
http://wiki.plexapp.com/index.php/PlexN ... d_TV_ShowsOg meyra um uppsetningar á þáttum fyrir Plex
http://elan.plexapp.com/2012/05/17/maki ... t-in-plex/Einnig getur TV order og DVD order ruglað upp röðinni á þáttunum.
http://forums.plexapp.com/index.php/top ... -tv-shows/Sem dæmi:
Kóði: Velja allt
<Mappa> Þættir/
<Mappa> Breaking Bad/
<Mappa> Season 1/
<Skrá> Breaking Bad.S01E01 - Pilot
Re: Plex klúðrar nöfnum á þáttum
Sent: Fim 05. Sep 2013 11:30
af Gilmore
Hjá mér virðist Plex alls ekki þekkja suma þætti, þeir birtast þá jafnvel ekki, þó það sé vel gengið frá skránum.
Marga þætti þekkir Plex strax þó að skrárnar séu illa til hafðar.
Bíómyndirnar virðast verð í lagi í meira en 90% tilfella, en það er meira vesen með þessa þætti.
Re: Plex klúðrar nöfnum á þáttum
Sent: Fim 05. Sep 2013 11:33
af C2H5OH
ég hef allaveganna fundið fyrir því að plex hjá mér sér aðeins þætti sem eru merktir "s01e01" þ.e. sér ekki þætti sem eru merktir "1x01" eða einhverskonar öðruvísi
Re: Plex klúðrar nöfnum á þáttum
Sent: Fim 05. Sep 2013 12:48
af playman
Gilmore skrifaði:Hjá mér virðist Plex alls ekki þekkja suma þætti, þeir birtast þá jafnvel ekki, þó það sé vel gengið frá skránum.
Marga þætti þekkir Plex strax þó að skrárnar séu illa til hafðar.
Bíómyndirnar virðast verð í lagi í meira en 90% tilfella, en það er meira vesen með þessa þætti.
Er þetta ekki bara spurning um punkt eða kommu á röngum stað?
Ertu örugglega ekki að nota t.d. Breaking.Bad.S01E01 - Pilot
Svo er spurning hverninn möppurnar eru nefndar líka.
En flest ef ekki öll þessi automation forrit hafa veika punkta, og oft þarf ekki nema að vanta einn staf
eða einn stafur sé rangur.
Dæmi:
Breking Bad
Breeking Bad
Þegar að ég er að setja inn nýa þætti þá notast ég alltaf við coppy paste af thetvdb.com
til þess að vera öruggur um að þættirnir heita rétt.
Varðandi bíómyndirnar
ertu þá ekki örugglega að nota t.d.
Avatar (2009).avi
Semsagt að þú setjir ártalið inní sviga á eftir nafni myndarinnar.
Ég persónulega set ég alltaf allar bíómyndir í sér möppu og notast við nöfnin á IMDB.com og geri copy paste.
t.d. Avatar (2009)
og svo skíri ég fælinn líka
Avatar (2009).avi
Ég hef ekki notað Plex, nota bara XBMC og þar notast XBMC mikið við NFO skrár sem geta bjargað mörgum hausverkjum
sem við kemur naming vandamálum.
Re: Plex klúðrar nöfnum á þáttum
Sent: Fim 05. Sep 2013 13:54
af rubey
Settu bara upp xbmc
Náðu svo í rss feed á
http://showrss.karmorra.info/ og farðu eftir þessu
http://www.totalhtpc.com/automated-medi ... -torrents/ég hef ekki þurft að downloada þætti manually í mánuði og get horft á þættina í sjónvarpinu án þess að koma við tölvuna
Getur líka náð í rss feed á yify fyrir myndir t.d. eða sett inn torrent manually og label-að þau sjálfur í utorrent sem bíómynd eða þáttur svo hann fari inn í kerfið
Ef einhver þáttur scrape-ast vitlaust þá force-aru bara þættinum á url á thetvdb.com í renamer og þarft aldrei að pæla í því aftur. Hinsvegar getur verið að sumir þættir sé með vitlaus seríu númer t.d. American Dad er með 8 seríur samkvæmt torrent gaurunum en 9 á thetvdb.com (
http://forums.thetvdb.com/viewtopic.php?t=13446 )
Getur tekið smá tíma til að setja þetta upp og stilla og kannski er til einfaldari leið í dag en þetta er alveg þess virði eftir jafnvel eina viku í notkun
Re: Plex klúðrar nöfnum á þáttum
Sent: Fim 05. Sep 2013 15:57
af AntiTrust
Að svissa úr Plex yfir í XBMC útaf nafnaskema vandamáli er óttalega silly, voðalega svipað hvernig þessi forrit skafa eftir metadata.
Ég hef verið að nota MCM + Plex í talsverðan tíma núna og ég gæti ekki ímyndað mér betri blöndu. Automatic download, rename, flokkun, utorrent integration og metadata download fyrir e-ð klink fyrir ársleyfið af MCM.
Re: Plex klúðrar nöfnum á þáttum
Sent: Fim 05. Sep 2013 16:06
af Daz
Getur prófað
http://www.filebot.net/ til að rename-a skjöl (og sækja subtitles) á hálfsjálfvirkann hátt. Það er hægt að sjálf-virkja það ferli með command line scriptum. Keyrir yfir heilar möppur en ekki bara stök skjöl.
Re: Plex klúðrar nöfnum á þáttum
Sent: Mið 11. Sep 2013 14:08
af KermitTheFrog
Naming á þáttunum er ekki vandamálið. TheTVDB er bara í rugli.
Er einhver einföld leið til að adda t.d. TVrage eða öðru scraping dæmi í þetta?
Re: Plex klúðrar nöfnum á þáttum
Sent: Mið 11. Sep 2013 14:52
af playman
KermitTheFrog skrifaði:Naming á þáttunum er ekki vandamálið. TheTVDB er bara í rugli.
Er einhver einföld leið til að adda t.d. TVrage eða öðru scraping dæmi í þetta?
Afhverju seigirðu það, ef ég mætti spyrja?
Re: Plex klúðrar nöfnum á þáttum
Sent: Mið 11. Sep 2013 14:56
af AntiTrust
KermitTheFrog skrifaði:
Er einhver einföld leið til að adda t.d. TVrage eða öðru scraping dæmi í þetta?
https://github.com/plexinc-agents
Re: Plex klúðrar nöfnum á þáttum
Sent: Mið 11. Sep 2013 15:22
af KermitTheFrog
playman skrifaði:KermitTheFrog skrifaði:Naming á þáttunum er ekki vandamálið. TheTVDB er bara í rugli.
Er einhver einföld leið til að adda t.d. TVrage eða öðru scraping dæmi í þetta?
Afhverju seigirðu það, ef ég mætti spyrja?
http://thetvdb.com/?tab=season&seriesid ... 9441&lid=7Stemmir bara ekki við
http://www.tvrage.com/American_Dad/episode_list/7 né
http://americandad.wikia.com/wiki/Episo ... _2011-2012Og stemmir ekki við innihald þáttanna.
Takk, var búinn að finna þetta og adda TvRage inn í möppuna. Tekur líklegast smá tíma að uppfærast.
Re: Plex klúðrar nöfnum á þáttum
Sent: Mið 11. Sep 2013 15:25
af AntiTrust
Ertu búinn að adda, kveikja á og forgangsraða agentinum inní vefviðmótinu?
Re: Plex klúðrar nöfnum á þáttum
Sent: Mið 11. Sep 2013 16:24
af KermitTheFrog
AntiTrust skrifaði:Ertu búinn að adda, kveikja á og forgangsraða agentinum inní vefviðmótinu?
Er sú aðgerð eitthvað flóknari en að bæta tvrage möppunni inn í plugins möppuna í Plex? Því ég gerði það og það kemur ekki upp í vefviðmótinu.
Re: Plex klúðrar nöfnum á þáttum
Sent: Mið 11. Sep 2013 16:39
af AntiTrust
Restartaðu servernum og athugaðu hvort agentinn birtist ekki.
Re: Plex klúðrar nöfnum á þáttum
Sent: Mið 11. Sep 2013 19:31
af KermitTheFrog
AntiTrust skrifaði:Restartaðu servernum og athugaðu hvort agentinn birtist ekki.
Nope, nothing :/