Síða 1 af 1

Win8 vs win7

Sent: Þri 03. Sep 2013 16:53
af stefhauk
Nú er kominn tími á að formata tölvuna mína ætti ég að setja win 8 eða 7 á hana hef heyrt að win 8 sucki og blabla bla enn hvað segjið þið menn sem kanski vita eitthvað í raun um þetta er win 8 léttara í keyrslu en win 7 ?

Þetta er semsagt Samsung series 7 fartölva.

Re: Win8 vs win7

Sent: Þri 03. Sep 2013 16:56
af hagur
Win 8.1 sem kemur fljótlega er búið að addressa flest atriðin sem fólki finnst sucka í Win 8.

Win 8 á að performa betur en 7.

Re: Win8 vs win7

Sent: Þri 03. Sep 2013 17:01
af upg8
Windows 8 er betra í nær alla staði en 7 og 8.1 verður enn betra og það á jafnvel við um þá sem nota lyklaborð og mýs. Það eru fleiri flýtileiðir með lyklaborðinu og að hægrismella í hornið þar sem start merkið er vanalega þá er hægt að fá fljótt aðgengi að nánast öllu því sem advanced notendur þurfa á að halda. Ef þér líkar ekki við Start Screen þá er lítið mál að sækja forrit sem líkir eftir gamla start menu.

Re: Win8 vs win7

Sent: Þri 03. Sep 2013 17:03
af Leetxor
Mér persónulega finnst W8 töluvert þæginlegra og fallegra eftir að hafa notað það. Finnst það miklu betra ef þú ert með fleiri en einn skjá af því að það býður upp á taskbar á báðum skjám og mismunandi wallpaper. Skil ekki af hverju allir eru að nöldra yfir því.

Re: Win8 vs win7

Sent: Þri 03. Sep 2013 17:06
af upg8
Leetxor skrifaði:Mér persónulega finnst W8 töluvert þæginlegra og fallegra eftir að hafa notað það. Finnst það miklu betra ef þú ert með fleiri en einn skjá af því að það býður upp á taskbar á báðum skjám og mismunandi wallpaper. Skil ekki af hverju allir eru að nöldra yfir því.

8.1(ókeypis uppfærsla úr 8) mun bæta það enn frekar og meðal annars hægt að hafa mismunandi DPI stillingar á skjám. 8.1 verður það besta sem býðst fyrir multi-tasking

Re: Win8 vs win7

Sent: Þri 03. Sep 2013 17:57
af Frost
Fartölvan mín varð miklu líflegri eftir að ég setti Windows 8 á hana. Er jafnvel að pæla að setja Windows 8 á borðtölvuna hjá mér.

Re: Win8 vs win7

Sent: Þri 03. Sep 2013 18:11
af Oak
Win 8 er bara miklu þægilegra. Smá breytingar sem venjast fljót og þú kemst að því að þær eru nánast allar til hins betra :)

Re: Win8 vs win7

Sent: Þri 03. Sep 2013 18:21
af Output
Líka þar til að windows 8.1 kemur út þá getur þú bara notað Start8 eða eitthvað þvíumlíkt.

Re: Win8 vs win7

Sent: Þri 03. Sep 2013 18:31
af k0fuz
Var að fá mér nýjan lappa með w8 um helgina, hafði aldrei verið með w8 áður né prufað af neinu ráði og mér finnst það koma ágætlega út.. og allt það sem fór í pirrurnar á mér einfaldlega disable-aði ég, s.s. ýmsar flýtileiðir með touchpadinu o.fl.

Overall: þá finnst mér það léttara í keyrslu og þótt ég sé með fullt af tabs opnum í browser og fullt af pdf skjölum og dóti þá er hún mjög snögg að skipta á milli taska og svoleiðis. Þetta er sýnist mér málið. :D

Re: Win8 vs win7

Sent: Þri 03. Sep 2013 18:52
af stefhauk
Sýnist að Win 8 verði fyrir valinu, ein sp einhverstaðar hægt að kaupa kóða ódýrt á netinu til að activate-a því ?