Síða 1 af 1
Vodafone ljósleiðara router lélegur hraði.
Sent: Mið 28. Ágú 2013 19:55
af Gilmore
Ég var að taka eftir því að hraðinn á download er frekar slappur í gegnum routerinn á ljósleiðaratengingu.
Ég er að nota uTorrent og búinn að forwarda port, opna eldvegg og allt þannig. Samt er hraðinn afleiddur á 100Mbits ljósi.
Ég var með innlent download í gangi og var að fá 600 - 700KB/s, beintengdi svo beint í ljósleiðaraboxið og fékk strax 8 - 9,5MB/s. Skipti svo aftur á routerinn og hraðinn slefaði rétt í 700KB/s aftur.
Ef ég tengi beint í ljósleiðaraboxið, þá fæ ég ekki Plex serverinn til að virka, virðist bara virka gegnum routerinn. Þannig að ég þarf að leysa þau mál.
Er þessi Vodafone router sem maður fær með tengingunni virkilega svona lélegur? Er að spá í að kaupa router, en Vodafone routerinn á samt að geta betur en þetta er það ekki?
Einhver lent í þessu?
Re: Vodafone ljósleiðara router lélegur hraði.
Sent: Mið 28. Ágú 2013 20:08
af AntiTrust
Þú vilt yfirhöfuð ekki sleppa því að hafa router, eða keyra e-rja þjónustu án þess að hafa hana bakvið NAT/eldvegg. Man reyndar ekki hvort það var búið að lagfæra það að þú broadcastaðir til annarra á sama sviss/svæði (man ekki hvert mengið var) ef þú tengdir beint í box, en án routers ertu of berskjaldaður.
Hvernig router ertu annars með?
Re: Vodafone ljósleiðara router lélegur hraði.
Sent: Mið 28. Ágú 2013 20:14
af Gilmore
Hvítur stór og klunnalegur með vodafone merki framaná. Zhone Technologies stendur undir honum einhverstaðar. Ljótt ferlíki.
Re: Vodafone ljósleiðara router lélegur hraði.
Sent: Mið 28. Ágú 2013 20:18
af AntiTrust
Zhone á að vera ágætis router, skárri en VOX ruslið þeirra amk. Prufaðu að limita fjölda tenginga í torrent clientinum og athugaðu hvort þú nærð að halda hraðanum uppi í gegnum routerinn.
Re: Vodafone ljósleiðara router lélegur hraði.
Sent: Mið 28. Ágú 2013 20:22
af Gilmore
Prófa það.
Tók líka eftir einu. Er með 2 tölvur tengdar við routerinn, önnur á port 1 og hin á port 2. TÖlvan sem ég er að downloada á er á port 2 og ljósið á því porti er appelsínugult en grænt á porti 1.
Ef ég svissa tölvunum og set Download tölvuna á port 1 þá er það líka appelsínugult og port 2 grænt. Eitthvað kannski að signalinu frá tölvunni?
Re: Vodafone ljósleiðara router lélegur hraði.
Sent: Mið 28. Ágú 2013 20:26
af AntiTrust
Tjah, svissarnir mínir hérna heima gefa appelsínugult ljós á 100/1000 tengingu en grænt á 10/100, spurning hvort Zhone sé að segja það sama, gæti verið. Ætti samt sem áður ekki að hafa nein áhrif á hreinan niðurhalshraða hjá þér.
Re: Vodafone ljósleiðara router lélegur hraði.
Sent: Mið 28. Ágú 2013 20:43
af Viktor
Re: Vodafone ljósleiðara router lélegur hraði.
Sent: Mið 28. Ágú 2013 21:01
af Gilmore
Þetta er nú eitthvað að lagast, fór alveg upp í 7MB/s. Er samt frekar rokkandi upp og niður.
Geta aðrar tölvur á netinu truflað eitthvað kannski?
Re: Vodafone ljósleiðara router lélegur hraði.
Sent: Fim 29. Ágú 2013 10:22
af GrimurD
Taktu hraðapróf á
http://speedtest.gagnaveita.isÞessi router ræður auðveldlega við Torrent, honum vantar amk ekki kraftinn. Ef þetta hraðapróf kemur vel út þá er eitthvað undarlegt í gangi. Örugglega opið port?
Re: Vodafone ljósleiðara router lélegur hraði.
Sent: Fim 29. Ágú 2013 10:29
af Gilmore
Hraðaprófið kemur vel út.
Prófaði að nota hina tölvuna til að downloda og valdi allt annað port til að forwarda, þá fékk ég fínan hraða, kannski spurning um að það sé eitthvað misjöfn traffík gegnum þessi port. Ég notaði líka annan client, eða qBittorrent í stað uTorrent.....fíla hann vel.
Það er líka forvitnilegt að vita afhverju ljósin á ethernetportunum eru misjöfn. Önnur tölvan gefur grænt ljós á routerinn, en hin appelsínugult, óháð í hvort portið tölvurnar eru pluggaðar.
Re: Vodafone ljósleiðara router lélegur hraði.
Sent: Fim 29. Ágú 2013 10:37
af Daz
Gilmore skrifaði:Hraðaprófið kemur vel út.
Prófaði að nota hina tölvuna til að downloda og valdi allt annað port til að forwarda, þá fékk ég fínan hraða, kannski spurning um að það sé eitthvað misjöfn traffík gegnum þessi port. Ég notaði líka annan client, eða qBittorrent í stað uTorrent.....fíla hann vel.
Það er líka forvitnilegt að vita afhverju ljósin á ethernetportunum eru misjöfn. Önnur tölvan gefur grænt ljós á routerinn, en hin appelsínugult, óháð í hvort portið tölvurnar eru pluggaðar.
Ég myndi giska á að sú tölva sem fær appelsínugula ljósið sé með 10/100 netkort, en hin sé með 10/100/1000 netkort. Það ætti ekki að hafa nein áhrif á hraðan á netinu, þar sem ljósleiðarinn er jú 100 mbps.
Re: Vodafone ljósleiðara router lélegur hraði.
Sent: Fim 29. Ágú 2013 10:47
af Gilmore
http://www.tigerdirect.com/applications ... No=5526903Ætti að vera með 10/100/1000, en kannski er það eitthvað vitlaust stillt.
Skiptir stýrikerfið kannski einhverju?
Vélin með orange ljósið er Win 7 64 en sú með græna ljósið er Win 8 vél.