Síða 1 af 3
400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni
Sent: Þri 27. Ágú 2013 23:53
af GuðjónR
33 x hraðara en ADSL
8 x hraðari en ljósnet
Skoða hérna!!!
Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni
Sent: Þri 27. Ágú 2013 23:55
af tdog
Æji þetta er bara hæp eins og 4G, gjörsamlega júsless nema þeir sem þú tengist hafi líka sverar pípur.
Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni
Sent: Mið 28. Ágú 2013 00:02
af Tbot
Og borga 19.000 til að fá version 4 tæki.
Svakalega lélegar myndir á síðunni hjá GR af gerðunum.
Það þarf einbeittan vilja að ná svona lélegum myndum.
Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni
Sent: Mið 28. Ágú 2013 00:03
af Moldvarpan
Ég er bara nokkuð sáttur með þessa þróun.
Það er verið að stækka og bæta flest öll dreifikerfi. Þótt þetta gagnist ekki öllum um leið, þá er þetta mjög jákvæð þróun.
Bara æðislegt að flestir eru að verða lausir við ADSL risaeðluna sem lifði alltof lengi.
Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni
Sent: Mið 28. Ágú 2013 00:27
af Tesy
Nú hef ég ekkert fylgst með þessu.
Er einhver nú þegar með 4. kynslóðin eða er þetta bara eitthvað nýtt sem allir þurfa að skipta til að geta fengið 200-400 Mb/s?
Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni
Sent: Mið 28. Ágú 2013 00:54
af J1nX
hvernig væri nú að einbeita sér að því að koma öllum á ljós áður en þeir fara að uppfæra það eitthvað (nei ég er ekki að verða geðveikur á ljósleysi)
Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni
Sent: Mið 28. Ágú 2013 02:35
af g0tlife
J1nX skrifaði:hvernig væri nú að einbeita sér að því að koma öllum á ljós áður en þeir fara að uppfæra það eitthvað (nei ég er ekki að verða geðveikur á ljósleysi)
Ég er enþá að hringja mig inn .. Hvenar fæ ég adsl ?
Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni
Sent: Mið 28. Ágú 2013 08:10
af audiophile
Samkvæmt þessu get ég fengið þetta þar sem ég er með 4. kynslóðar endabúnað og í réttu póstnúmeri. En ég hugsa bara hvað á andsk. ég hef við þennan hraða að gera? Hraðinn hjá mér er nú þegar 100mbit og get reglulega sótt á 6-10mb/s hvort sem það er torrent eða Steam eða annað og finnst það frábært.
Myndi frekar vilja meira gagnamagn.
Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni
Sent: Mið 28. Ágú 2013 08:15
af Gúrú
audiophile skrifaði:Myndi frekar vilja meira gagnamagn.
Það er því miður ekki starf gagnaveitunnar heldur netveitanna og mér finnst þetta frábært hjá þeim.
Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni
Sent: Mið 28. Ágú 2013 08:32
af ManiO
J1nX skrifaði:hvernig væri nú að einbeita sér að því að koma öllum á ljós áður en þeir fara að uppfæra það eitthvað (nei ég er ekki að verða geðveikur á ljósleysi)
Þegar þú færð ljós í hendurnar verður þetta undir staðal hraðanum, þannig að þú færð að njóta ljóssins enn betur þegar að því kemur
Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni
Sent: Mið 28. Ágú 2013 09:05
af AntiTrust
Ég er fantasáttur með þetta, bíð bara eftir uppfærslu í Hfj. Veitir ekki af, maxa 100Mbit uppstrauminn oftar og oftar.
Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni
Sent: Mið 28. Ágú 2013 10:03
af Icarus
AntiTrust skrifaði:Ég er fantasáttur með þetta, bíð bara eftir uppfærslu í Hfj. Veitir ekki af, maxa 100Mbit uppstrauminn oftar og oftar.
Sammála!
http://www.veendamkrijgtglasvezel.nl/wp-content/uploads/2012/12/Genexis-Hybrid.pngAnnars betri mynd af fjórðu kynslóð.
Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni
Sent: Mið 28. Ágú 2013 10:41
af GuðjónR
Með þessari ofurtengingu þá gæti maður auðveldlega klárað gagnamagið sitt (250GB) fyrir hádegi á fyrsta degi
Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni
Sent: Mið 28. Ágú 2013 11:03
af Daz
GuðjónR skrifaði:Með þessari ofurtengingu þá gæti maður auðveldlega klárað gagnamagið sitt (250GB) fyrir hádegi á fyrsta degi
85 mínútur og 22 sekúndur.
Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni
Sent: Mið 28. Ágú 2013 11:09
af einarth
tdog skrifaði:Æji þetta er bara hæp eins og 4G, gjörsamlega júsless nema þeir sem þú tengist hafi líka sverar pípur.
....eða þegar þú ert að sækja frá fleirum en einum í einu - ala torrent
Ég d/l reglulega erlendis frá á 300-400Mb hraða gegnum torrent og stundum hraðar - er ekkert endilega að sækja mikið magn á mánaðarbasis en munar um tímann sem ég bíð eftir efninu.
Hérna er dæmi um erlent d/l sem fór aðeins yfir venjulega 3-400Mb hraðan:
Tesy skrifaði:Er einhver nú þegar með 4. kynslóðin eða er þetta bara eitthvað nýtt sem allir þurfa að skipta til að geta fengið 200-400 Mb/s?
Öll heimili tengd ca. síðustu 12 mánuði eru með 4. kynslóð netaðgangstækja.
Kv, Einar.
Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni
Sent: Mið 28. Ágú 2013 11:17
af dori
einarth skrifaði:Öll heimili tengd ca. síðustu 12 mánuði eru með 4. kynslóð netaðgangstækja.
Kv, Einar.
Þið eruð nú meiri marðarófétin. Ég fékk ljósleiðara í fyrra (fékk fyrsta reikning í september) og er með 3. kynslóð.
Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni
Sent: Mið 28. Ágú 2013 11:31
af MuGGz
Og ef maður er ekki með 4 kynslóð hvað þá?
Getur maður látið skipta um ?
Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni
Sent: Mið 28. Ágú 2013 11:33
af Gúrú
MuGGz skrifaði:Og ef maður er ekki með 4 kynslóð hvað þá?
Getur maður látið skipta um ?
Viðskiptavinir sem hafa netaðgangstæki af fjórðu kynslóð uppsett á heimili sínu eru þegar tilbúnir fyrir 200 Mb/s og 400 Mb/s hraða á Internetþjónustu. Hjá öðrum viðskiptavinum þarf að skipta um eða uppfæra netaðgangstækið á heimili viðskiptavina og greiða viðskiptavinir gjald fyrir þá breytingu sem er 18.825 kr. m/vsk
http://www.gagnaveita.is/Heimili/200400Mbshradi/
Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni
Sent: Mið 28. Ágú 2013 11:38
af GuðjónR
einarth skrifaði:Ég d/l reglulega erlendis frá á 300-400Mb hraða gegnum torrent og stundum hraðar - er ekkert endilega að sækja mikið magn á mánaðarbasis en munar um tímann sem ég bíð eftir efninu.
Hérna er dæmi um erlent d/l sem fór aðeins yfir venjulega 3-400Mb hraðan:
Þvílík snilld!!
Ég er lengur að kopera yfir á flakkara/minnislykil en þú að downloda.
ROCK ON!
Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni
Sent: Mið 28. Ágú 2013 11:49
af Gislinn
einarth skrifaði:*snip*
Hérna er dæmi um erlent d/l sem fór aðeins yfir venjulega 3-400Mb hraðan:
*snip*
60.1 MB/s * 8 Mb/MB er ca. 480 Mb/s, yfir 300-400 Mb/s tenginu?
Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni
Sent: Mið 28. Ágú 2013 11:53
af playman
GuðjónR skrifaði:einarth skrifaði:Ég d/l reglulega erlendis frá á 300-400Mb hraða gegnum torrent og stundum hraðar - er ekkert endilega að sækja mikið magn á mánaðarbasis en munar um tímann sem ég bíð eftir efninu.
Hérna er dæmi um erlent d/l sem fór aðeins yfir venjulega 3-400Mb hraðan:
Þvílík snilld!!
Ég er lengur að kopera yfir á flakkara/minnislykil en þú að downloda.
ROCK ON!
Er þetta ekki að nálgast max skrifhraða flestra HDD?
Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni
Sent: Mið 28. Ágú 2013 11:55
af Gilmore
Hvaðan eru þið að sækja efni á svona svakalegum hraða?
Ég er með þessa venjulegu 100Mb tengingu og ég er oftast með svona 1 - 2MB/s, en hef mest náð upp í 7MB/s innanlands.
Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni
Sent: Mið 28. Ágú 2013 11:57
af emmi
Hann er líklega að þessu í vinnunni á 1+Gbps tengingu.
Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni
Sent: Mið 28. Ágú 2013 12:12
af einarth
Þetta skjáskot er tekið heima hjá mér á Ljósleiðara tengingu GR.
Allar tengingar yfir 100Mb eru í raun 1Gb en eru takmarkaðar niður í seldan hraða (200/400 til að byrja með) með stillingum á netbúnaði.
Ég sem starfsmaður GR geri stundum prófanir með því að hækka hraðan umfram 400Mb. Hef t.d. hraðaprófað móti innlendum speedtest server á 800Mb.
Kv, Einar.
Re: 400 Mb/s hraði hjá Gagnaveitunni
Sent: Mið 28. Ágú 2013 12:37
af GrimurD
Kynningarmyndband á 4 kynslóðar ljósleiðara boxinu:
http://vimeo.com/60655978