Síða 1 af 1
Ákveðin tenging kemst ekki inn á sumar síður
Sent: Mið 21. Ágú 2013 12:05
af AntiTrust
Smá vandamál sem ég er að hjálpa með sem mér veitti ekki af aðstoð með.
Aðili kemst ekki inn á sumar síður, sumar erlendir (microsoft.com t.d.) og sumar innlendar - engir augljósir sameiginlegir factorar sem ég sé amk. Þessi aðili er með Cisco router, búið að fara í gegnum allar stillingar á router og rútur, allt normalt. Engar hömlur ISP megin, engar síur eða annað slíkt.
Allar vélar og tæki á heimilinu eiga við sama vandamál að stríða, mismunandi vélar, stýrikerfi og mobile tæki.
Hvað mynduð þið skoða? Láta breyta um ytri IP hjá ISP? Prufa annan router tímabundið? Gera Tracert og sjá hvar þetta stoppar og.. svo hvað?
Re: Ákveðin tenging kemst ekki inn á sumar síður
Sent: Mið 21. Ágú 2013 12:14
af Klemmi
Flytja.
En að öllu djóki slepptu að þá ertu í raun búinn að telja upp allt það helsta, finnst routerinn þó líklegastur af þessu fyrst að ISP gat ekki séð neitt athugavert.
Re: Ákveðin tenging kemst ekki inn á sumar síður
Sent: Mið 21. Ágú 2013 12:23
af urban
ég myndi byrja á því að prufa annan router.
þannig er búið að útiloka svo margt.
Re: Ákveðin tenging kemst ekki inn á sumar síður
Sent: Mið 21. Ágú 2013 12:27
af kizi86
var að lenda í mjög svo svipuðu um daginn, það sem var að hjá mér var fucked dns server sem netveitan mín notar (tal) svo ég skipti yfir í google dns og allt í fínasta núna
Re: Ákveðin tenging kemst ekki inn á sumar síður
Sent: Mið 21. Ágú 2013 12:29
af Stutturdreki
Eldveggur, vírusvörn, etc/hosts? Ólíklegt samt ef þetta er í mörgum tækjum.
Re: Ákveðin tenging kemst ekki inn á sumar síður
Sent: Mið 21. Ágú 2013 13:14
af Televisionary
MTU stillingar kannski?
Re: Ákveðin tenging kemst ekki inn á sumar síður
Sent: Mið 21. Ágú 2013 14:38
af blitz
Ertu hjá Vodafone?
Re: Ákveðin tenging kemst ekki inn á sumar síður
Sent: Mið 21. Ágú 2013 14:40
af AntiTrust
blitz skrifaði:Ertu hjá Vodafone?
Þessi aðili er hjá Símanum. Hugsanlega DA/VPN tengdur við innranet í vinnunni beint frá router, er að bíða eftir frekari uppl.
Re: Ákveðin tenging kemst ekki inn á sumar síður
Sent: Mið 21. Ágú 2013 14:41
af Viktor
Prufa annan router imo.
Re: Ákveðin tenging kemst ekki inn á sumar síður
Sent: Mið 21. Ágú 2013 15:40
af Gunnar
lenti í þessu um daginn. lagaðist eftir smá tíma (2-3 daga)
viewtopic.php?f=9&t=35481&start=1000#p524193
Re: Ákveðin tenging kemst ekki inn á sumar síður
Sent: Mið 21. Ágú 2013 16:04
af ponzer
Er búið að athuga MTU stærð ?
Re: Ákveðin tenging kemst ekki inn á sumar síður
Sent: Mið 21. Ágú 2013 16:39
af AntiTrust
ponzer skrifaði:Er búið að athuga MTU stærð ?
Á router? Ekki svo ég viti til nei, hef það í huga. E-r gildi þar sem ég ætti að hafa augun opin eftir?
Re: Ákveðin tenging kemst ekki inn á sumar síður
Sent: Mið 21. Ágú 2013 16:55
af Stutturdreki
AntiTrust skrifaði:.. Hugsanlega DA/VPN tengdur við innranet í vinnunni beint frá router..
Suspect nr.1. VPN eru oft svakalega leiðinleg og loka á allskonar.
Re: Ákveðin tenging kemst ekki inn á sumar síður
Sent: Mið 21. Ágú 2013 17:20
af ponzer
AntiTrust skrifaði:ponzer skrifaði:Er búið að athuga MTU stærð ?
Á router? Ekki svo ég viti til nei, hef það í huga. E-r gildi þar sem ég ætti að hafa augun opin eftir?
Er þetta adsl tenging sem viðkomandi er á ? Ég setti mtu hjá mér í 1452 þegar ég var á adsli hjá Símanum þá fór traffíkin að flæða eðlilega.
Máttu peista configinu af þessum router hingað inn til þess að hjálpa til við debugin ?
Re: Ákveðin tenging kemst ekki inn á sumar síður
Sent: Mið 21. Ágú 2013 17:54
af AntiTrust
Komið í lag vist, fékk ekki info um hvað var að valda. All is well that ends well.
Re: Ákveðin tenging kemst ekki inn á sumar síður
Sent: Mið 21. Ágú 2013 19:07
af Revenant
Hljómar eins og DNS vandræði á router/isp level-i.
Re: Ákveðin tenging kemst ekki inn á sumar síður
Sent: Þri 27. Ágú 2013 04:44
af Kopar
Ég hef heyrt af svipuðum vandræðum, reyndar bara á einni tölvu á heimanetinu osfrv, það hefur komið fyrir og oftar en einu sinni að klukkan í tölvunni var að einhverjum ástæðum 2002 eða eitthvað rugl. Ekki heyrt að þetta geti skéð fyrir routerinn, en finnst það afar ólíklegt.
Allt í lagi að útiloka það hinsvegar.