Síða 1 af 1
Fresh uppsetning á nýrri vél, er það virkilega nauðsynlegt?
Sent: Þri 13. Ágú 2013 09:02
af odinnn
Var að púsla saman nýjum turni í gærkvöldi og fór að spá í hvort ég þyrfti nokkuð að setja upp Windows aftur á system diskinn minn sem ég tek úr gömlu tölvunni. Ég sé ekki neina ástæðu nema driver árekstrar ætti að vera vandamál þegar maður flytur disk á milli véla. En núna eru til slatti af forritum sem geta þefað upp drivera og eytt þeim.
Þannig ég spyr, er einhver önnur ástæða fyrir því að setja upp Windows upp á nýtt fyrir nýja tölvu í staðinn fyrir að keyra einhver forrit?
PS. Að setja upp Windows er það leiðinlegasta sem ég geri!
Re: Fresh uppsetning á nýrri vél, er það virkilega nauðsynle
Sent: Þri 13. Ágú 2013 09:10
af TraustiSig
Geta oft komið upp conflictar útaf því að þú ert að skipta t.d. af einu móðurborði yfir á annað. Hef lent í allskonar BSOD villum og veseni sem ég oftast nenni ekki að finna útur. Einfaldara að taka afrit og strauja vélina
Re: Fresh uppsetning á nýrri vél, er það virkilega nauðsynle
Sent: Þri 13. Ágú 2013 09:29
af vikingbay
Ef þú vast að setja saman nýjann turn vona ég að þú hafir haft SSD disk með í kaupunum, þeir einfaldlega gera lífið betra og leyfa manni að nenna að gera þetta.. Tekur enga stund!
En annars myndi ég hiklaust gera fresh install, mér finnst eins og það sé bara auðveldara en að finna eitthvað skíta forrit sem er alltaf að fá mann til að kaupa sig og kanski virkar illa og skilur eftir sig hálfkláraða vinnu.
Re: Fresh uppsetning á nýrri vél, er það virkilega nauðsynle
Sent: Þri 13. Ágú 2013 10:23
af Daz
Síðan XP hefur uppsetning á Windows verið barnaleikur. Er það ekki frekar að setja upp öll hin forritin sem er að pirra þig? Hefurðu kynnt þér
http://ninite.com/ ?
Re: Fresh uppsetning á nýrri vél, er það virkilega nauðsynle
Sent: Þri 13. Ágú 2013 10:35
af Stutturdreki
Þegar eitthvað fær meðmæli frá "The Christian Science Monitor" þá veistu að það er æði
En on topic, já myndi mæla með að gera clean install. Hitt gæti virkað en alveg jafn líklegt (eða líklegra) að þú lendir í veseni.
Re: Fresh uppsetning á nýrri vél, er það virkilega nauðsynle
Sent: Þri 13. Ágú 2013 11:35
af odinnn
Er með ssd disk þannig að það er ekki vandamálið.
Að setja upp öll forritin er klárlega hrikalega leiðinlegt líka en mér leiðist bara allt vesenið við að setja upp Windows. Ég er bara með eina tölvu og ekkert geisladrif þannig að ég þarf að brasa við að dl Windows og setja á kubb, síðan þegar ég er byrjaður þá er mega vesen að redda einhverju ef installið klikkar... (driver vandamál)
Ætli ég neyðist ekki til að drullast í gegnum þetta og hætta að vera aumingi...
Re: Fresh uppsetning á nýrri vél, er það virkilega nauðsynle
Sent: Þri 13. Ágú 2013 13:08
af Garri
Hef flutt diska á milli móðurborða bæði með því að nota sysprep sem og án þess (bæði gengið upp). Sjá sysprep m.a. hér:
http://www.makeuseof.com/tag/making-sur ... therboard/Taktu bara afrit af öllum gögnum, prófæl og síðan öllum extra folderum sem hafa gögn. Ef illa fer, þá er alltaf hægt að gera ferskt install.
Hér í denn þá "hreinsaði" ég stundum eigin tölvu sem og fleiri og þar á meðal viðskiptavina með því að uninstallera móðurborðs dræverum sem og harða diska, var langoftast með Windows óuppsett á harða disknum. Þetta gerði ég ef ég var búinn að uppfæra oft allskonar dótarí sem og vildi Windows "stakka" upp dræverum (urðu "hooked" hver á eftir öðrum) Þegar vélin var næst ræst, þá endur-installeraði hún þessum dræverum og ef ekki, þá bara gúglað og manual installerað, oftast þá hljóðkort eða eitthvað tengt tengingum (fyrir daga USB).
Re: Fresh uppsetning á nýrri vél, er það virkilega nauðsynle
Sent: Þri 13. Ágú 2013 13:27
af Bioeight
Ekkert mál að gera þetta en maður getur lent í vandræðum sem stundum taka lengri tíma að finna út úr heldur en það tekur að setja allt upp á nýtt. Stundum getur þetta verið fljótlegra og þægilegra, það á aðallega við þegar munur á milli móðurborða er ekki mikill. Ég er mjög latur við að setja upp allt á nýtt þannig að ég geri þetta alltaf.
Það verður samt að vara sig á því ef þú ert að skipta úr Intel yfir í AMD eða öfugt að þá þarftu að setja inn Default driver fyrir diskstýringuna(lýst hér:
http://scottiestech.info/2010/03/17/upgrade-your-motherboard-without-reinstalling-your-os/) annars mun ekki vélin boota.
Linkurinn frá Garra um Sysprep lítur líka vel út en ég hef ekki prófað það.
Re: Fresh uppsetning á nýrri vél, er það virkilega nauðsynle
Sent: Þri 13. Ágú 2013 19:30
af odinnn
Endaði á að taka fresh install og lenti auðvitað í veseni þar sem netkortið vildi ekki virka án drivera... tók bara 2 tíma að redda því. En ætli þetta hafi ekki verið fyrir bestu þar sem ég var að fara úr 7 ára gömlu Intel P965/ICH8R chipsetti yfir í X87. Núna byrjar hið leiðinlega verkefni að safna saman driverum og setja upp forrit.
Re: Fresh uppsetning á nýrri vél, er það virkilega nauðsynle
Sent: Þri 13. Ágú 2013 20:28
af TraustiSig
Notaðu DriverGenius fyrir driverana. Finnur það t.d. á
www.torrentz.com Notaðu svo
www.ninite.com fyrir forrit (firefox,chrome,vlc..) eins og áður var bent á.