Síða 1 af 1

Netkort ónýtt eða móðurborðið? Vantar svar fljótt :)

Sent: Mið 24. Júl 2013 01:02
af jobbzi
Sælir Vaktarar
Sko eg var að fá glænýtt móðurborð Asus Crosshair V Formula-Z 990FX og keypti mér glænýtt netkort (TP-Link 450Mbps Wireless N PCI Express) frá start.is þvi mitt gamla passaði ekki í en svo setti eg nýja netkortið í virkaði i svona 1-2 klst en svo dó það núna kemur ekkert ljós aftan á kortið og tölvan segir að það er ekki í þegar eg set inn driverinn fyrir það og þótt eg er búinn að taka það út og setja það inn aftur svona 4x :lol: er kortið dautt/gallað eða er slotið á móðurborðinu ónýtt? Annars virkar allt eins og i sögu á móðurborðinu... Og tek það fram að eg keypti netkortið i dag :baby
Vona eg fái einhver svör sem fyrst...

Re: Netkort ónýtt eða móðurborðið? Vantar svar fljótt :)

Sent: Mið 24. Júl 2013 02:37
af Gúrú
Það er ekki nokkur leið að segja það með vissu út frá bara þessum upplýsingum.

Þú yrðir að prófa kortið í öðru móðurborði eða annað kort með móðurborðinu.

Þú gætir líka kannski hafa klúðrað einhverju í UEFI BIOSnum en ég er ekki viss með þann möguleika.

Re: Netkort ónýtt eða móðurborðið? Vantar svar fljótt :)

Sent: Mið 24. Júl 2013 02:39
af mercury
kemur þú kortinu bara í 1 slot á borðinu ef ekki ert þú búinn að prufa fleiri ?
annars bara prufa kortið í annari tölvu.