Síða 1 af 1

Ný Fartölva & Fullt af bull forritum

Sent: Sun 14. Júl 2013 16:57
af Ingi90
Sælir

Fékk nýja Acer vél í skiptum fyrir borðtölvuna mína

Bara málið er að það eru fullt af svona þvælu acer forritum og svoleiðis inná henni

Ætla henda screenshots hérna inn gætuð þið sagt mér hvað ég má láta flakka og hvað ekki ? :lol:

Mynd

Mynd

Re: Ný Fartölva & Fullt af bull forritum

Sent: Sun 14. Júl 2013 17:01
af vesi
er ekki málið bara format og clean install á win..

Re: Ný Fartölva & Fullt af bull forritum

Sent: Sun 14. Júl 2013 17:02
af Ingi90
Er ekki alveg að nenna standa í því alltaf efnið mitt komið yfir á vélina

Þetta er heldur ekkert svo rosalega mikið þannig þetta tekur þokkalega stuttan tíma :)

Plús hún kemur með windows 8 á sér held að það sé ekkert svaðalega skemmtilegt að hreinsa hana

Re: Ný Fartölva & Fullt af bull forritum

Sent: Sun 14. Júl 2013 17:08
af KermitTheFrog
Haha windows 8 er með hálfgert factory reset svo það er ekki mikið mál.

Sent from my GT-I9505 using Tapatalk 4 Beta

Re: Ný Fartölva & Fullt af bull forritum

Sent: Sun 14. Júl 2013 17:13
af Ingi90
Ég factory resettaði hana í nótt
Forritin voru ennþá inni eftir það :)

Re: Ný Fartölva & Fullt af bull forritum

Sent: Sun 14. Júl 2013 18:31
af KermitTheFrog
Nújá, en þú getur allavega hent út öllu sem er bundlað við Acer corporation. Nema kannski power management gaurnum, veit ekki hvort það sé eitthvað sniðugt.

Re: Ný Fartölva & Fullt af bull forritum

Sent: Sun 14. Júl 2013 19:15
af beggi90
Acer cloud, clear.fi, cyberlink media expresso, microsoft office (virðist vera bara trial), mywinlocker suite, nti media maker, spotify.

Forritin sem ég sé í fljótu bragði að þú gætir hent út, svo er spurningin hvort þú notir eitthver af þeim.

Re: Ný Fartölva & Fullt af bull forritum

Sent: Sun 14. Júl 2013 19:38
af Frantic
Ég nota alltaf forrit sem heitir DeCrapifier til að hreinsa út svona forrit.
Það eru oft uppí 30 forrit í Toshiba tölvunum þá haka ég bara í öll forritin og þetta runnar uninstall fyrir öll forritin.
Þarft samt að smella á next, next og finish sjálfur.
Finnst furðulegt hvað það þarf alltaf að fylgja mörg draslforrit með tölvum sem maður er að kaupa.
Hef séð ebay shortcut á desktoppinu á toshiba tölvu.

Re: Ný Fartölva & Fullt af bull forritum

Sent: Sun 14. Júl 2013 21:51
af kfc
Frantic skrifaði:Ég nota alltaf forrit sem heitir DeCrapifier til að hreinsa út svona forrit.
Það eru oft uppí 30 forrit í Toshiba tölvunum þá haka ég bara í öll forritin og þetta runnar uninstall fyrir öll forritin.
Þarft samt að smella á next, next og finish sjálfur.
Finnst furðulegt hvað það þarf alltaf að fylgja mörg draslforrit með tölvum sem maður er að kaupa.
Hef séð ebay shortcut á desktoppinu á toshiba tölvu.


Mikið af þessum forritum sem fylgja með eru auglýsingar og ef þú ætlar að nota þau þartu líklega að borga fyrir þau.