Síða 1 af 1
Lélegur upphalshraði á ljósleiðara (Vodafone)
Sent: Sun 14. Júl 2013 11:27
af karvel
Ég er með Linksys E4200 Router og er aðeins að ná 10Mb/s upphalshraða en niðurhalshraðinn er u.þ.b. 57-58Mb/s á speedtest.gagnaveita.is. Eru ekki einhverjir sérfræðingar sem geta ráðlagt mér hvað ér get gert til að auka hraðann með því að breyta stillingum eitthvað?
Re: Lélegur upphalshraði á ljósleiðara (Vodafone)
Sent: Sun 14. Júl 2013 12:25
af AntiTrust
Fyrsta skref er alltaf að beintengja vélina við ONTuna og sjá hvaða hraða þú færð þannig.
Re: Lélegur upphalshraði á ljósleiðara (Vodafone)
Sent: Sun 14. Júl 2013 12:35
af GrimurD
AntiTrust skrifaði:Fyrsta skref er alltaf að beintengja vélina við ONTuna og sjá hvaða hraða þú færð þannig.
Þetta, beintengja við ljósleiðaraboxið og taka annað hraðapróf.
Re: Lélegur upphalshraði á ljósleiðara (Vodafone)
Sent: Sun 14. Júl 2013 21:42
af karvel
Er með aðra vél beintengda við boxið og hraðmæling á henni er að gefa yfir 56Mb/s bæði í upphali og niðurhali
Eitthvað hlýtur þá lélegur upphalshraði í gegnum Linksys Routerinn að hafa með stillingarnar að gera eða þá að W8 sé að gera þetta að verkum. Eftir á að hyggja gæti þetta hafa breyst eftir að ég uppfærði í Windows 8
Re: Lélegur upphalshraði á ljósleiðara (Vodafone)
Sent: Sun 14. Júl 2013 21:56
af einarth
Gætir líka hringt í voda og látið uppfæra þig í 100mb..
Sent from my GT-I9100 using Tapatalk 4 Beta
Re: Lélegur upphalshraði á ljósleiðara (Vodafone)
Sent: Mán 15. Júl 2013 19:31
af karvel
Gætir líka hringt í voda og látið uppfæra þig í 100mb..
Tók þig á orðinu og fór í 100 en er samt ekki nema rétt að slefa yfir 10Mb/s í upphalshraða
Re: Lélegur upphalshraði á ljósleiðara (Vodafone)
Sent: Mán 15. Júl 2013 21:02
af Stutturdreki
karvel skrifaði:Gætir líka hringt í voda og látið uppfæra þig í 100mb..
Tók þig á orðinu og fór í 100 en er samt ekki nema rétt að slefa yfir 10Mb/s í upphalshraða
Sko.. ertu ekki bara að bera saman Byte og bits.. (B vs. b).
100mb = ~12.5MB svo 10MB/s er bara nokkuð gott.
Re: Lélegur upphalshraði á ljósleiðara (Vodafone)
Sent: Mán 15. Júl 2013 21:22
af Xovius
speedtest.net og posta niðurstöðum...
Re: Lélegur upphalshraði á ljósleiðara (Vodafone)
Sent: Mán 15. Júl 2013 21:53
af einarth
Routerinn er líklega sökudólgurinn fyrst þú nærð fullum hraða með tölvu beintengda í netaðgangstækið..prófa annan router..
Re: Lélegur upphalshraði á ljósleiðara (Vodafone)
Sent: Mán 15. Júl 2013 23:12
af karvel
http://www.speedtest.net/result/2838941862.pngSorry, kann ekki að posta þannig að myndin sé sýnileg
Eins og sjá má er þetta ekki beisinn upphalshraði og skýringuna sennilega að finna í routernum.
Þetta er ansi langt frá því sem ég fæ í tölvunni sem tengd er beint í boxið sem er 95Mb/s en niðurhalshraðinn þar rétt losar 85Mb/s.
Verð að reyna að finna út úr routerstillingum eða prófa við tækifæri annan router,
Re: Lélegur upphalshraði á ljósleiðara (Vodafone)
Sent: Þri 16. Júl 2013 00:13
af Stutturdreki
karvel skrifaði:Sorry, kann ekki að posta þannig að myndin sé sýnileg
Setur urlið á myndina bara innann í img tag eins og
En já, rangt hjá mér, þú ert bara að fá ~11Mbits upp sem er ömurlegt. Hringdu í Vodafone og heimtaðu router sem styður 100Mb ljós eða tengdu beint í ljósleiðara boxið (ég geri það sjálfur).
Re: Lélegur upphalshraði á ljósleiðara (Vodafone)
Sent: Þri 16. Júl 2013 00:16
af AntiTrust
E4200 styður leikandi 100Mbit upp og niður, er sjálfur með slíkann og maxa tenginguna. Resettaðu routerinn niður í factory settings, og skiptu um LAN kapal úr router í tölvu, sjáðu hverju það skilar þér.
Re: Lélegur upphalshraði á ljósleiðara (Vodafone)
Sent: Þri 30. Júl 2013 14:04
af kjarnorkudori
Ertu með media prioritizing virkt á routernum?
Ef svo er myndi ég afhaka það og taka aðra hraðamælingu.
Re: Lélegur upphalshraði á ljósleiðara (Vodafone)
Sent: Þri 30. Júl 2013 22:49
af karvel
kjarnorkudori skrifar;Ertu með media prioritizing virkt á routernum?
Frábær niðurstaða, þakka þér kærlega fyrir að benda mér á lausnina
Re: Lélegur upphalshraði á ljósleiðara (Vodafone)
Sent: Mið 31. Júl 2013 05:58
af SneezeGuard
afsakaðu hi-jackið, en ég er með 50/50 ljósleiðara og fæ varla 1 Mb uppload. Búinn að fá nýjann router frá vodafone en hann entist í svona 4 daga, þá aftur í það sama.
Hvernig tengi ég mig beint við ljósleiðaraboxið? Í sama tengi og routerinn fer í? þarf ég eitthvað að stilla upp á nýtt eða username/password eða eitthvað svoleiðis?
Væri fínt að redda því þannig í bili þangað til ég tími að splæsa í eigin router.
Re: Lélegur upphalshraði á ljósleiðara (Vodafone)
Sent: Mið 31. Júl 2013 06:19
af echo
Þegar ég var hjá vodafone fékk ég hjá þeim router sem studdi 36Mbit Wan to Lan throughput, var ekki sáttur enda fór ég með mín viðskipti annað
Re: Lélegur upphalshraði á ljósleiðara (Vodafone)
Sent: Mið 31. Júl 2013 07:17
af Gúrú
echo skrifaði:Þegar ég var hjá vodafone fékk ég hjá þeim router sem studdi 36Mbit Wan to Lan throughput, var ekki sáttur enda fór ég með mín viðskipti annað
Já það var skemmtilegt þegar að þeir seldu manni 50Mb ljósleiðaraþjónustu með routerum með 18-22Mbps throughputi í heimilisnotkun.
Re: Lélegur upphalshraði á ljósleiðara (Vodafone)
Sent: Mið 31. Júl 2013 09:52
af einarth
Já þú tengir þá tölvuna beint í netaðgangstækið - annaðhvort í sama port og router eða í hitt internet portið (port 1/2).
Passaðu bara að hafa virkan eldvegg á tölvunni því það er engin annar eldveggur til staðar ef þú notar ekki router.
Þú þarft að skrá mac address undir síðunni
http://skraning.gagnaveita.is til að fá löglega ip tölu á tölvuna (notar username/password sem fylgdi uppsetningu ljósleiðarans)
Kv, Einar.
Re: Lélegur upphalshraði á ljósleiðara (Vodafone)
Sent: Mið 31. Júl 2013 12:46
af GrimurD
echo skrifaði:Þegar ég var hjá vodafone fékk ég hjá þeim router sem studdi 36Mbit Wan to Lan throughput, var ekki sáttur enda fór ég með mín viðskipti annað
Eru sem betur fer komnir með nýjan router sem er með 250Mbps WAN to LAN throughput. Löngu kominn tími til.
Re: Lélegur upphalshraði á ljósleiðara (Vodafone)
Sent: Mið 31. Júl 2013 16:42
af SneezeGuard
einarth skrifaði:Já þú tengir þá tölvuna beint í netaðgangstækið - annaðhvort í sama port og router eða í hitt internet portið (port 1/2).
Passaðu bara að hafa virkan eldvegg á tölvunni því það er engin annar eldveggur til staðar ef þú notar ekki router.
Þú þarft að skrá mac address undir síðunni
http://skraning.gagnaveita.is til að fá löglega ip tölu á tölvuna (notar username/password sem fylgdi uppsetningu ljósleiðarans)
Kv, Einar.
Takk fyrir þetta Einar!
Re: Lélegur upphalshraði á ljósleiðara (Vodafone)
Sent: Mið 31. Júl 2013 18:20
af kjarnorkudori
karvel skrifaði:kjarnorkudori skrifar;Ertu með media prioritizing virkt á routernum?
Frábær niðurstaða, þakka þér kærlega fyrir að benda mér á lausnina
Minnsta málið.
Ekki beint þekkt vandamál en þó eitthvað sem ég hef orðið var við. Veit ekki alveg hverju þetta prioritizing kerfi á að skila. Eini munurinn sem ég hef tekið eftir er einmitt reduced UL hraði.
Re: Lélegur upphalshraði á ljósleiðara (Vodafone)
Sent: Mið 31. Júl 2013 20:14
af trausti164
Ég er með 50KB/s upp og 246KB/s niður