Síða 1 af 1
Eru ekki fartölvur tengdar saman með Crossover kapli ?
Sent: Mán 13. Sep 2004 20:02
af örninn
Ef að það er rett hja mer , þarf maður þá að pinga hina tölvuna eða hvernig virkar það.
Hvernig ser maður hina tölvuna ?
Sent: Mán 13. Sep 2004 23:47
af gumol
Bréf fært.
Ef þú ert að tengja 2 ferðatölvur beint saman þá notaru crossover kapal já.
Og nei, þú þarft ekki að "pinga". Þarft bara að stilla ip tölurnar á netkortunum (mátt svosem alveg pinga)
Sent: Þri 14. Sep 2004 10:22
af jericho
ef þú ert að tengja beint á milli 2ja tölva (án þess að nota höbb - óháð því hvort þú ert með fartölvu eða borðtölvu) þá notaru já crossover kapal. Ég meira að segja held að þú megir hafa automatiska IP-tölu á báðum vélum (alla á XP og það virkar fínt hjá mér)
p.s. ég fékk mér svona kapal og á honum var miði sem á stóð "CrossWIRED" - er crossOVER rétt hugtak? Anyways, just a thought
Sent: Þri 14. Sep 2004 10:48
af gumol
Er þetta ekki bara eins og brauðrist og ristavél. Brauðrist er rétt en flestir (allavega margir) segja ristavél.
Sent: Þri 14. Sep 2004 11:08
af örninn
potato, potata
Sent: Þri 14. Sep 2004 17:31
af Birkir
Held að það sé "Potató - Póteitó"
Re: Eru ekki fartölvur tengdar saman með Crossover kapli ?
Sent: Þri 14. Sep 2004 18:02
af MezzUp
örninn skrifaði:Ef að það er rett hja mer , þarf maður þá að pinga hina tölvuna eða hvernig virkar það.
Hvernig ser maður hina tölvuna ?
Hvernig væri að
lesa eða leita áður en þú póstar, þetta er ákkúrat ástæðan fyrir því að ég setti upp FAQ safnið..............
Sent: Fim 16. Sep 2004 15:03
af örninn
mezzup skrifaði:Hvernig væri að lesa eða leita áður en þú póstar
Það væri tímafrekt.. menn hafa ekki endalausan tíma til að leita
Sent: Fim 16. Sep 2004 15:58
af elv
örninn skrifaði:mezzup skrifaði:Hvernig væri að lesa eða leita áður en þú póstar
Það væri tímafrekt.. menn hafa ekki endalausan tíma til að leita
Skal muna það næst þegar þú póstar
Sent: Fim 16. Sep 2004 19:31
af örninn
elv skrifaði:Skal muna það næst þegar þú póstar
hvað ætlar þú að muna næst þegar að ég skrifa ??
En ég fór að spá hverju það breytir að ég hafi skrifað þetta bréf og ég sé að það hefur valdið ykkur miklu hugarangri og þvi biðst ég afsökunar á þessum skrifum minum !
Sent: Fös 17. Sep 2004 11:59
af natti
Örninn: Það sem hann átti við er að það þykir frekar mikill dónaskapur að þú nennir ekki að eyða smá af þínum tíma í að leita og lesa FAQið, sérstaklega þar sem að þetta er frekar auðfundið.
En þér þykir sjálfsagt að aðrir eyði tíma í að útskýra eitthvað fyrir þér og hjálpi þér með vandamál sem þú hefðir getað leyst sjálfur.
Sent: Fös 17. Sep 2004 12:27
af gnarr
systir mín hringdi í mig í gær og bað mig um að taka strætó úr Hafnarfirði í kringluna að ná í bíl, keyra útí hafnarfjörð og sækja hana, keyra hana útá seltjarnarnes í eitthvað busapartí, keyra svo aftur heim í hafnarfjörð, keyra síðan aftur útá seltjarnarnes að sækja hana þegar partíið væri búið og keyra hana útí hafnarfjörð, og svo hugsanlega að þurfa að keyra aftur í kringluna að skila bílnum og taka strætó heim!
HÚN NENNTI EKKI AÐ TAKA STRÆTÓ!
Ps. Örninn: taktu þetta til þín!