Síða 1 af 1

Vill reverse-engineera auðkennislykil hjá arion.

Sent: Fös 14. Jún 2013 00:21
af rango
Ég vill ekkert auðkennisfokk með engri baklýsingu, Ég vill bara geta gert MD5(Kóði) eða sambærilegt.
Vill svo útbúa chrome plugin sem fillir þetta inn sjálfkrafa(ásamt notanda/lykilorð)

Þarf ég ekki heavy græjur ef ég ætla að fara að gera þetta?
Hvert er best að snúa sér í svona máli, hafa samband við bankann?

Re: Vill reverse-engineera auðkennislykil hjá arion.

Sent: Fös 14. Jún 2013 02:47
af DJOli
Hversskonar hacker biður um leiðbeiningar til að 'hacka' tæki?.

Versti þráður ever.

Auk þess er það í 99% tilfella ólöglegt að reverse engineera hluti.

Re: Vill reverse-engineera auðkennislykil hjá arion.

Sent: Fös 14. Jún 2013 02:52
af I-JohnMatrix-I
Ábyggilega mun minna vesen að skipta bara um banka, ég er hjá Landsbankanum og þarf aldrei að nota auðkennislykilinn þegar ég logga mig inná netbankann.

Re: Vill reverse-engineera auðkennislykil hjá arion.

Sent: Fös 14. Jún 2013 02:53
af rango
DJOli skrifaði:Hversskonar hacker biður um leiðbeiningar til að 'hacka' tæki?.

Versti þráður ever.

Auk þess er það í 99% tilfella ólöglegt að reverse engineera hluti.


Er ekki inní hardware, það eru til verri þræðir.
ólöglegt ekki ólöglegt, Skiptir mig engu. :evillaugh

Búinn að vera pæla í hvort ég geti ekki tengst tækinu með serial, eða slíku.
Mér langar svoldið að vita hvernig arion banki fer að þessu.

Annars skrifaði ég þetta þegar ég var núna í þrígang búinn að reyna lesa kóðan í dimmu herbeggi, Þeas pirraður.

I-JohnMatrix-I skrifaði:Ábyggilega mun minna vesen að skipta bara um banka, ég er hjá Landsbankanum og þarf aldrei að nota auðkennislykilinn þegar ég logga mig inná netbankann.

Fjölskyldan er hjá arionbanka, Er fastur hérna í bili.
Ég hef ekkert á móti auðkennislyklum enn ég vill fá meiri stjórn í hendurnar.

Re: Vill reverse-engineera auðkennislykil hjá arion.

Sent: Fös 14. Jún 2013 02:54
af Viktor
Get lofað þér því að bankinn er ekki að fara að gera neitt til að hjálpa þér með þetta, en ég mæli með því að gera eins og ég, auðkennisnúmer í SMS ;) Hef aldrei notað auðkennislykil á minni ævi fyrir utan þegar þetta kom út og allir fengu þetta frítt. Sá týndist nokkrum vikum seinna og ég hef verið mjög sáttur með SMS varaleiðina.

Re: Vill reverse-engineera auðkennislykil hjá arion.

Sent: Fös 14. Jún 2013 02:56
af rango
Sallarólegur skrifaði:Get lofað þér því að bankinn er ekki að fara að gera neitt til að hjálpa þér með þetta, en ég mæli með því að gera eins og ég, auðkennisnúmer í SMS ;) Hef aldrei notað auðkennislykil á minni ævi fyrir utan þegar þetta kom út og allir fengu þetta frítt. Sá týndist nokkrum vikum seinna og ég hef verið mjög sáttur með SMS varaleiðina.


Grunaði það svosem, Kostar 10Kr í hvert sinn svo skráist ég út eftir X tíma. Strax komið í hundrad kr. yfir í 1k etc.

Re: Vill reverse-engineera auðkennislykil hjá arion.

Sent: Fös 14. Jún 2013 06:15
af axyne
Gætir notað t.d Arduino til að gera þetta. Tengir það svo við skjáinn og takkann á lyklinum og gerir svo eitthvað forrit sem sem talar við plugin í chrome.

Re: Vill reverse-engineera auðkennislykil hjá arion.

Sent: Fös 14. Jún 2013 08:04
af tdog
Já einmitt því að auðkennislyklar fyrir BANKA eru hannaðir þannig að 18 ára smágutti geti reverse engineerað þá til þess að spara sér spor.

Re: Vill reverse-engineera auðkennislykil hjá arion.

Sent: Fös 14. Jún 2013 08:48
af audiophile
First world problems ](*,)

Re: Vill reverse-engineera auðkennislykil hjá arion.

Sent: Fös 14. Jún 2013 09:37
af Revenant
Þú þarft í það minnsta:

Finna út hvaða algrím er notað í auðkennislyklunum.
Fá master seed-ið fyrir alla auðkennislykla í landinu
Hafa ónotað token seed (þ.e. raðnúmer á lykli) sem er til í kerfum bankans.

Fyrir utan fáeina einfalda hluti þá ætti þetta að vera tiltölulega einfalt verkefni [/sarcasm]

Re: Vill reverse-engineera auðkennislykil hjá arion.

Sent: Fös 14. Jún 2013 12:03
af oskar9
haha fara bara í ISB, sækja android appið, gerir auðkenni einu sinni í mánuði og username og allt það, svo gerirðu nýtt 4 stafa PW sem þú loggar þig inn í appinu, ég er sirka 10 sek að taka símann úr vasanum og komast í millifærslur eða yfirlit, algjör snilld ! :D

Re: Vill reverse-engineera auðkennislykil hjá arion.

Sent: Fös 14. Jún 2013 12:05
af dori
Hann ætti ekki að þurfa að finna eitthvað ónotað seed. Hann er "bara" að fara að klóna sinn lykil.

Þú þarft að finna algrímið sem er notað og hvert seedið fyrir þinn er (hugsanlega er það númerið á lykilum?). Alveg geranlegt en ekki eitthvað sem þú ert að fara að finna útúr með því að skoða nokkur númer og vippa upp einhverju Chrome plugini.

Ef það eina sem er að bögga þig er skortur á baklýsingu opnaðu bara lykilinn og bættu við baklýsingu.

Re: Vill reverse-engineera auðkennislykil hjá arion.

Sent: Fös 14. Jún 2013 12:34
af worghal
rango skrifaði:Annars skrifaði ég þetta þegar ég var núna í þrígang búinn að reyna lesa kóðan í dimmu herbeggi, Þeas pirraður.

Æ NEI! :O








kveiktu ljós #-o

Re: Vill reverse-engineera auðkennislykil hjá arion.

Sent: Fös 14. Jún 2013 12:37
af tlord
þú þarft að leysa plastið um kubbinn upp með sýru og nota örmjóa prjóna til að fara inn á bössinn og reyna að hlera masterkóðann

gangi þér vel

Re: Vill reverse-engineera auðkennislykil hjá arion.

Sent: Fös 14. Jún 2013 12:55
af rango
worghal skrifaði:kveiktu ljós #-o


Nooo it burns us, Keep usz safez we must. :twisted:

axyne skrifaði:Gætir notað t.d Arduino til að gera þetta. Tengir það svo við skjáinn og takkann á lyklinum og gerir svo eitthvað forrit sem sem talar við plugin í chrome.


Viable leið enn yrði vesen með latency.

tdog skrifaði:Já einmitt því að auðkennislyklar fyrir BANKA eru hannaðir þannig að 18 ára smágutti geti reverse engineerað þá til þess að spara sér spor.

Ég næ þessu sama hvernig ég fer að því, vittu til.

dori skrifaði:Hann ætti ekki að þurfa að finna eitthvað ónotað seed. Hann er "bara" að fara að klóna sinn lykil.

Þú þarft að finna algrímið sem er notað og hvert seedið fyrir þinn er (hugsanlega er það númerið á lykilum?). Alveg geranlegt en ekki eitthvað sem þú ert að fara að finna útúr með því að skoða nokkur númer og vippa upp einhverju Chrome plugini.

Ef það eina sem er að bögga þig er skortur á baklýsingu opnaðu bara lykilinn og bættu við baklýsingu.


Sjá svar nr. 1

Þá er bara fara fórna auðkennislyklum. :ninjasmiley

Re: Vill reverse-engineera auðkennislykil hjá arion.

Sent: Fös 14. Jún 2013 12:56
af DabbiGj
Búðu til forrit og græaðu stýringu á ljósin sem að kveikir á þeim í hálfa mínútu þegar að þú ferð inná íslandsbanki.is

Re: Vill reverse-engineera auðkennislykil hjá arion.

Sent: Fös 14. Jún 2013 13:19
af paze
DabbiGj skrifaði:Búðu til forrit og græaðu stýringu á ljósin sem að kveikir á þeim í hálfa mínútu þegar að þú ferð inná íslandsbanki.is


Það hjálpar honum ekki mikið þegar hann er hjá Arion :guy

Re: Vill reverse-engineera auðkennislykil hjá arion.

Sent: Fös 14. Jún 2013 13:24
af Haxdal
Ef vandamálið er virkilega að það sé ekki backlight í auðkennislyklinum, þá í staðinn fyrir að hugsanlega eyðileggja bunch af lyklum og standa í veseni hjá bankanum þínum við að fá nýja til að halda áfram að reyna hacka þetta þá held ég að það sé nú bara ódýrast að kaupa eitt stykki : http://www.ebay.com/itm/BLACK-Bright-LED-Mini-Flashlight-Micro-Light-Torch-Keychain-Keyring-Key-Holder-/161043362922?pt=LH_DefaultDomain_2&hash=item257eeeb46a

Re: Vill reverse-engineera auðkennislykil hjá arion.

Sent: Fös 14. Jún 2013 13:28
af Gislinn
Kortalesari (usb tengdur, færð hann frítt frá bankanum) og debetkort með rafrænu auðkenni (frítt hjá bankanum og þú ert líklega með eitt slíkt). Problem solved, þarft bara að stimpla inn 4 stafa númer þegar þú loggar þig inn í heimabankann og þú ákveður sjálfur hvað númerið er.

Re: Vill reverse-engineera auðkennislykil hjá arion.

Sent: Fös 14. Jún 2013 13:28
af rango
Gislinn skrifaði:Kortalesari (usb tengdur, færð hann frítt frá bankanum) og debetkort með rafrænu auðkenni (frítt hjá bankanum og þú ert líklega með eitt slíkt). Problem solved, þarft bara að stimpla inn 4 stafa númer þegar þú loggar þig inn í heimabankann sem þú ákveður sjálfur hvað er.


Snilld þarna komstu með lausnina, Eureka!