Síða 1 af 1

Flytja Windows 8 leyfið yfir á SSD

Sent: Mið 15. Maí 2013 18:52
af Oak
Sælir

Ég var að kaupa mér 250 GB Samsung 840 og mig langar að setja Windowsið uppá nýtt á tölvuna. Semsagt ekki flytja notendur og annað með. Mögulega tek ég hinn diskinn úr tölvunni þannig að það er svona spurning hvað verður um system reserved ef að ég set windowsið upp beint á nýja diskinn í gegnum núverandi Windows? Get ég gert einhverjar ráðstafanir svo að bootmgr fari á nýja diskinn?

Er kannski best að clona bara diskinn og setja svo bara upp sem "fresh windows" í gegnum recovery?

Re: Flytja Windows 8 leyfið yfir á SSD

Sent: Mið 15. Maí 2013 19:04
af KermitTheFrog
Lang best er að gera bara clean install á ssd diskinn og virkja svo bara með Windows 8 lyklinum.

Sent from my GT-I9505 using Tapatalk 2

Re: Flytja Windows 8 leyfið yfir á SSD

Sent: Mið 15. Maí 2013 19:19
af Stutturdreki
Þú átt að getað activatað aftur svo fremri sem það er sama móðurborð.

Re: Flytja Windows 8 leyfið yfir á SSD

Sent: Mið 15. Maí 2013 20:15
af KermitTheFrog
Stutturdreki skrifaði:Þú átt að getað activatað aftur svo fremri sem það er sama móðurborð.


Og þó þú skiptir um móðurborð geturðu virkjað það aftur. Bara aðeins meira vesen.

Sent from my GT-I9505 using Tapatalk 2

Re: Flytja Windows 8 leyfið yfir á SSD

Sent: Mið 15. Maí 2013 21:15
af Oak
Einhverja hluta vegna get ég ekki keyrt uppsetninguna af usb lykli :(
Veit ekki hvort að móðurborðið sé ekki að leyfa mér það eða hvað...

Bjó til usb lykilinn með windows assistant.

úfff var að fatta að þetta er náttúrulega upgrade hjá mér :)

Re: Flytja Windows 8 leyfið yfir á SSD

Sent: Mið 15. Maí 2013 23:55
af Haxdal
Ég hef notað Windows 7(og 8) USB/DVD Download Tool til að skella Windows á USB lykil, aldrei lent í veseni með það :)