Síða 1 af 1
Get ekki activatað window 8
Sent: Sun 14. Apr 2013 12:37
af dogalicius
Jæja þá ætlaði maður að fara að prufa windows 8, en málið er þetta að ég keypti upgrade key fyrir windows 8 pro fyrir einhverjum mánuðum og settu uppá á tölvu í stofunni, er búinn að breyta núna um vélbúnað og núna segir windows að ég sé að nota þetta á annari tölvu, var búinn að eyða því út og allt það, Kann einhver hérna ráð við svona unaði ?
Re: Get ekki activatað window 8
Sent: Sun 14. Apr 2013 12:44
af upg8
Hef ekki kynnt mér skilmálana nægilega vel fyrir Windows 8 en það var slæm hugmynd hjá þér að eyða Windows út þegar þú ert að keyra uppfærslu, þú þarft þess sjaldnast þótt þú uppfærir vélbúnaðinn. Gætir þurft að hringja í þjónustuver og fá þá til að veita þér undanþágu, frá þeim séð þá lítur þetta náttúrulega út eins og þú sért að keyra þetta á 2 mismunandi tölvum.
Re: Get ekki activatað window 8
Sent: Sun 14. Apr 2013 12:54
af KermitTheFrog
Skiptiru um móðurborð í vélinni? Ef svo er þá þarftu líklegast að hafa samband við Microsoft og láta re-activata leyfið.
Re: Get ekki activatað window 8
Sent: Sun 14. Apr 2013 12:55
af AntiTrust
Phone Activation, virkar alltaf hjá mér þegar þetta kemur upp.
Re: Get ekki activatað window 8
Sent: Sun 14. Apr 2013 15:08
af dogalicius
phone activation?? hvernig fer ég að því , eitthvað að vefjast fyrir mér. þegar ég hringi í 8008236 biður hún um eitthvað passcode sem ég veit ekkert hvað er (doh)
geturu eitthvað útskýrt þetta nánar fyrir mér?
Re: Get ekki activatað window 8
Sent: Sun 14. Apr 2013 22:26
af dogalicius
Er einginn með þetta?
Re: Get ekki activatað window 8
Sent: Sun 14. Apr 2013 23:12
af FuriousJoe
Prófaðu að fara í CMD (as admin)
skrifaðu; slmgr /ato
Bíddu í 20-30 sek, ef stýrikerfið virkjast ekki, hvaða meldingu færðu ?
Re: Get ekki activatað window 8
Sent: Mán 15. Apr 2013 04:41
af dogalicius
fæ þá þetta
error 0xc004c008 the activation server determined that the specified product key could not be used
Re: Get ekki activatað window 8
Sent: Mán 15. Apr 2013 09:07
af AntiTrust
dogalicius skrifaði:phone activation?? hvernig fer ég að því , eitthvað að vefjast fyrir mér. þegar ég hringi í 8008236 biður hún um eitthvað passcode sem ég veit ekkert hvað er (doh)
geturu eitthvað útskýrt þetta nánar fyrir mér?
Þegar þú velur Country í Phone Activation, veldu UK eða USA, færð automatískan símsvara sem leiðbeinir þér áfram.
Re: Get ekki activatað window 8
Sent: Mán 15. Apr 2013 10:04
af Benzmann
AntiTrust skrifaði:dogalicius skrifaði:phone activation?? hvernig fer ég að því , eitthvað að vefjast fyrir mér. þegar ég hringi í 8008236 biður hún um eitthvað passcode sem ég veit ekkert hvað er (doh)
geturu eitthvað útskýrt þetta nánar fyrir mér?
Þegar þú velur Country í Phone Activation, veldu UK eða USA, færð automatískan símsvara sem leiðbeinir þér áfram.
og ef þú ert ekki góður í útlenskunni þá skaltu bara bölva á fullu í símann á ensku, og þá verður þér gefið samband við þjónustufulltrúa hehehe
Re: Get ekki activatað window 8
Sent: Mán 15. Apr 2013 13:38
af dogalicius
hehe takk , ég er alveg þokkalegur í enskunni .En já prufa að gera þetta ef það verður eitthvað bögg í þeim
Re: Get ekki activatað window 8
Sent: Lau 20. Apr 2013 17:06
af dogalicius
Já ég hringdi í ms á íslandi og valdi svo að tala við einhvern á ensku, gott mál talaði við gaur þar sem reddaði þessu fyrir mig, en það besta í heimi er það að í gær ákvað ég að bæta við media center sem ég fékk hjá þeim frítt á svipuðum tíma og ég kaupi þessa uppfærslu ok, ég fer í add features og skelli inn þessum kóða og svo innstallast þetta, nema nota bene hehe þá er windows aftur farið að heimta að ég activati það. þetta eru SNILLINGAR