Síða 1 af 1
Týndur Product key ?!?!?!
Sent: Mán 08. Apr 2013 21:08
af Svansson
Ég keypti win 7 þegar það kom nýtt út og hef alltaf notað það og svo formataði ég tölvuna mína fyrir tveim vikum og fann ekki product keyinn sem með disknum fylgdi, var með hann skrifaðann einhverstaðar og hann hefur bara glatast einhvernveginn. Er einhver leið að recovera hann einhvernvegin eða þarf ég virkilega að kaupa nýjan? Ef ég þarf að kaupa nýjan þá kaupi ég win8 en ef einhver hérna getur reddað þessu einhvernvegin þá væri það algjör snilld
Re: Týndur Product key ?!?!?!
Sent: Mán 08. Apr 2013 21:10
af Maniax
Ef þú ert með það uppsett ennþá þar að segja
http://www.magicaljellybean.com/keyfinder/
Re: Týndur Product key ?!?!?!
Sent: Mán 08. Apr 2013 21:11
af Plushy
Gæti verið límmiði fastur aftaná tölvunni sjálfri?
Re: Týndur Product key ?!?!?!
Sent: Mán 08. Apr 2013 21:12
af Hargo
Ef þú hefðir áttað þig á því að lykillinn væri týndur áður en þú byrjaðir á að formatta þá hefðirðu sennilega getað náð honum af gömlu uppsetningunni með tóli sem heitir
ProdukeyHinsvegar þar sem þú ert búinn að strauja vélina þá grunar mig að lykillinn sé glataður.
Re: Týndur Product key ?!?!?!
Sent: Mán 08. Apr 2013 21:28
af lukkuláki
Hargo skrifaði:Ef þú hefðir áttað þig á því að lykillinn væri týndur áður en þú byrjaðir á að formatta þá hefðirðu sennilega getað náð honum af gömlu uppsetningunni með tóli sem heitir
ProdukeyHinsvegar þar sem þú ert búinn að strauja vélina þá grunar mig að lykillinn sé glataður.
Ættir að geta fengið það sem þú þarft með því að nota serialnúmer vélarinnar á síðu framleiðandans og fylla út umsókn hefurðu skoðað það eitthvað ?
Re: Týndur Product key ?!?!?!
Sent: Mán 08. Apr 2013 22:23
af Svansson
Þetta er saman settur turn, þessi límiði var á gamla turnkassanum en hann er víst seldur og ég náði aldrei að taka þenna límmiðaa af honum þannig ég skrifaði þetta niður og er búin að flytja tvisvar síðan þá og engin leið að finna þann miða held ég
Re: Týndur Product key ?!?!?!
Sent: Mán 08. Apr 2013 23:00
af lukkuláki
Sorry en þetta lítur frekar illa út, turninn með lic er seldur og leyfið fór með honum það er bannað sð nota sama oem licence á margar tölvur veit ekki hvað þú getur gert til að sleppa ódýrt snnað en nota eitthvað eins og activation crack sem er auðvitað ólöglegt
Re: Týndur Product key ?!?!?!
Sent: Mán 08. Apr 2013 23:22
af Minuz1
lukkuláki skrifaði:Sorry en þetta lítur frekar illa út, turninn með lic er seldur og leyfið fór með honum það er bannað sð nota sama oem licence á margar tölvur veit ekki hvað þú getur gert til að sleppa ódýrt snnað en nota eitthvað eins og activation crack sem er auðvitað ólöglegt
brot á eula, ekki brot á íslenskum lögum
Re: Týndur Product key ?!?!?!
Sent: Mán 08. Apr 2013 23:27
af arons4
Þeir sem eru að linka forritum til að gera þetta, er ekki nóg að gera bara properties á 'My Computer'? Eða er þetta eitthvað annað þar neðst?
Re: Týndur Product key ?!?!?!
Sent: Mán 08. Apr 2013 23:32
af Oak
Afhverju ekki bara að kaupa win 8 uppfærslu á um 5 þús. á netinu?
Re: Týndur Product key ?!?!?!
Sent: Þri 09. Apr 2013 13:38
af Svansson
Oak skrifaði:Afhverju ekki bara að kaupa win 8 uppfærslu á um 5 þús. á netinu?
Hver geri ég það, og þarf ég ekki eithvað credit kort (ekki orðinn 18 ára) Til að gera það?
Re: Týndur Product key ?!?!?!
Sent: Þri 09. Apr 2013 18:18
af Klemmi
Oak skrifaði:Afhverju ekki bara að kaupa win 8 uppfærslu á um 5 þús. á netinu?
Því tilboði lauk því miður fyrir svolitlu síðan. Núna kostar hönd og fót að uppfæra í gegnum netið, ódýrara að kaupa uppfærslupakka í búðum.