Síða 1 af 1

Íslenskir stafir í HTML

Sent: Lau 06. Apr 2013 20:35
af EggstacY
Kvöldið, ég var að skoða mjög basic XHTML tutorials og er að nota Notepad++ til að setja kóðann inn (veit ekki hvort það skipti máli) en ég veit ekki hvernig maður setur íslenska stafasettið inní þetta. Koma bara einhver skrítin symbols þegar ég ætla að sjá afraksturinn í browsernum (google chrome) og þegar ég googla vandamálið finn ég bara einhver svona charts með stöfunum en veit ekkert hvað ég á að gera við það, eins og í þessu hér.

http://www.webmonkey.com/2010/02/special_characters/

Þetta er í fyrsta sinn sem ég geri eitthvað þessu líkt svo ekkert vera að apeshitta ef þetta er heimskuleg spurning :).

Re: Íslenskir stafir í HTML

Sent: Lau 06. Apr 2013 20:48
af arons4
Þú setur bara tildæmis ð og það kemur ð. Getur séð lista yfir þetta útum allt.
http://www.degraeve.com/reference/specialcharacters.php

Kóði: Velja allt

Ð = Ð
ð = ð

Þ = Þ
þ = þ

É = É
é = é

Á = Á
á = á

Ó = Ó
ó = ó

Í = Í
í = í

Dettur ekki fleira í hug atm.

Setur bara þetta í staðinn fyrir stafinn. Jónas væri tildæmis

Kóði: Velja allt

Jónas

Re: Íslenskir stafir í HTML

Sent: Lau 06. Apr 2013 21:11
af marijuana
Bíddu ... nægir ekki bara að vista skjalið sem ISO-8859-1 ? Hefur virkað fyrir mig hingað til.

Re: Íslenskir stafir í HTML

Sent: Lau 06. Apr 2013 21:14
af Icarus
setja encoding sem UTF-8 with BOM

Re: Íslenskir stafir í HTML

Sent: Lau 06. Apr 2013 21:26
af EggstacY
Icarus skrifaði:setja encoding sem UTF-8 with BOM


Takk, setti þetta að neðan inní header og þetta er í lagi núna. En hvað meinarðu með with BOM?

<meta http-equiv="Content-Type" content="text/html; charset=utf-8">

Re: Íslenskir stafir í HTML

Sent: Lau 06. Apr 2013 21:32
af Icarus
EggstacY skrifaði:
Icarus skrifaði:setja encoding sem UTF-8 with BOM


Takk, setti þetta að neðan inní header og þetta er í lagi núna. En hvað meinarðu með with BOM?

<meta http-equiv="Content-Type" content="text/html; charset=utf-8">



Í stillingunum fyrir forrtið, efsta stjórnlínann er flipi sem heitir Encoding

Þar geturðu valið "Encode in UTF-8 without BOM" eða "Encode with UTF-8".

Spes að þetta heiti Without BOM í notepad++ þegar er til UTF-8 with BOM í sublime.

Either way, prófaðu þetta. Hefur virkað fyrir mig.

Re: Íslenskir stafir í HTML

Sent: Lau 06. Apr 2013 21:42
af marijuana
UTF-8 eða ISO-8859-1 encoding á skjalið virkar.

Re: Íslenskir stafir í HTML

Sent: Lau 06. Apr 2013 21:50
af beatmaster
Þegar að ég var að fikta í þessu á síðasta ári þá var ég að skoða html-ið sem að íslenskar síður eru að nota og komst að því að sumar eru að nota ISO-8859-1 í staðinn fyrir UTF-8

Þá breytti ég bara skjölunum sem að ég var að vinna með þannig að ég hafði kóðann í html-hausnum eins og hann er hérna að neðan og virkar það til að þú getir skrifað Þ Ð Á og þannig háttar en ekki tákn eins og t.d &THORN og vafrinn sýnir það

Kóði: Velja allt

<!DOCTYPE html PUBLIC "-//W3C//DTD XHTML 1.0 Transitional//EN"
         "http://www.w3.org/TR/xhtml1/DTD/xhtml1-transitional.dtd">



<html xmlns="http://www.w3.org/1999/xhtml">

  <head>

    <meta http-equiv="Content-Language" content="is" />
    <meta http-equiv="Content-Type" content="text/html; charset=iso-8859-1" />

Re: Íslenskir stafir í HTML

Sent: Lau 06. Apr 2013 22:17
af EggstacY
Takk kærlega fyrir hjálpina þetta er komið. En ein spurning að lokum, vitið þið við hvaða viðmót vefforritarar eru að nota yfirleitt? Fer það allt eftir því hvernig kóða þeir nota og er Dreamweaver betri/praktískari heldur en forrit eins og t.d. Notepad++.

Veit að það eru til mörg tungumál og hef ekki kynnt mér þetta vel en ákvað að spyrja ykkur þar sem þið virðist hafa svörin við öllu.