tdog skrifaði:Hvaða kostnaði greindu þeir ekki frá?
Línugjald fyrir tengingu án heimasíma, sem er greidd mánaðarlega og stofngjald fyrir tengingu, sem er greitt einu sinni. Þetta er hvergi tekið fram á heimasíðunni þeirra. Tengingin er auglýst á 6.900 kr. á mánuði á síðunni þeirra, reikningurinn sem ég fæ um hver mánaðarmót hljóðar upp á 9.050 kr. (lína og routerleiga eins og Ingvar nefnir)
En á meðan þeir cappa mig ekki, þá borga ég bara og brosi.
Icarus skrifaði:Sælir piltar,
gaman að heyra að flestir hérna séu sáttir, svona fyrir utan janus, það ætti ekki að vera neinn falinn aukakostnaður, við reynum að taka allt fram þegar fólk kemur í viðskipti. Helstu hlutirnir þar eru línuleiga og svo routerleiga, eitthvað sem allir átta sig kannski ekki á. Fyrir utan það áttu ekki að vera fá neina aukareikninga frá okkur eða aukagjöld.
Janus: ég hér með bið þig innilegrar afsökunar á þessu samskiptaleysi til að byrja með og vona að það hafi ekki orsakað mikil vandræði fyrir þig, ef þú villt skoða þær leiðir sem við höfum í ljósleiðaranum er ég meira en tilbúinn að fara yfir það með þér ef þú óskar þess.
Ef þið hafið einhverjar spurningar sem ég get svarað þá endilega skjótið.
Við höfum lagt svolítið uppúr að hafa góða þjónustu, persónulegri en kannski gengur og gerist, höfum mætt heim til fólks ef það er eitthvað vesen án þess að vera að rukka það sérstaklega fyrir það, er okkur mikilvægt að netið hjá öllum virki og að þeir séu sáttir með þá þjónustu sem þeir fá.
Ingvar Linnet
Markaðs- og sölustjóri Hringiðunnar
ingvar@vortex.is
Sæll Ingvar. Ánægjulegt að sjá hvað símafyrirtækin eru farin að taka þátt í netmenningunni hér og að þið skulið vera þar á meðal. Varðandi ljósleiðarann, þá er ég líklega að fara að selja íbúðina svo það er on hold í bili. Ég spjalla við ykkur betur áður en maður ákveður að færa sig aftur.
Ein spurning þó og tvær beiðnir:
Varðandi vefsvæðið (ftp aðganginn) sem fylgir internettengingum hjá ykkur. Það kemur ekkert fram á síðunni ykkar hversu mikið pláss, hversu mikla bandvídd og/eða hvort það sé yfir höfuð http aðgangur að gögnunum fyrir notendur. Vodafone (svo við ræðum smá samkeppni
) býður 2GB pláss með tengingum sínum og það er algerlega opin "hefbundinn" http aðgangur að gögnunum (Ég hýsi heimasíðuna mína, DJ mix og frumsamda tónlist þar, ásamt temporary gögnum sem ég þarf að hafa aðgang að from time to time.)
Gætir þú gefið okkur einhverjar meiri upplýsingar um þessa þjónustu hjá ykkur?
Svo vil ég endilega biðja ykkur um að bæta þessum upplýsingum sem ég hef nefnt hér í þessum pósti inn á heimasíðuna ykkar ásamt því að biðja ykkur um að setja sundurliðun á reikninginn sem þið sendið viðskiptavinum í hverjum mánuði. Það stendur alltaf bara "Mánaðargjald" og svo bara ein upphæð á reikningnum sem ég fæ.
(Biðst afsökunar á þessari langloku.)