Síða 1 af 1

HTML5 forritun, vantar ráðleggingar og hjálp...

Sent: Sun 03. Mar 2013 11:09
af eriksnaer
Sælir allir. Ég er að skoða með að reyna fyrir mér í að hann theme fyrir vefsíðu sem keyrir á HTML5.

Ég hef aldrei forritað HTML svo ég gerði þennan þráð til að sjá hvort einhver hér á vaktinni gæti sagt mér hvað þarf til að allt virki saman... Eins og t.d. hvaða forrit á ég að nota og hver er grunnurinn svo þetta gagni...

Öll aðstoð og hjálp væri vel þegin þar sem þetta er grunnurinn að því sem ég er að hugsa mér að læra eftir grunnskólann... :D

Kv. Erik

Re: HTML5 forritun, vantar ráðleggingar og hjálp...

Sent: Sun 03. Mar 2013 11:33
af Gúrú
viewforum.php?f=7

Þetta er rétta undirborðið fyrir svona þræði, svona upp á framtíðina. ;)

Re: HTML5 forritun, vantar ráðleggingar og hjálp...

Sent: Sun 03. Mar 2013 11:38
af rango
Ókey, Ég er að nota Aptana í flest allt.
Númer eitt tvö og hundrað finst mér allavega, Notepad++

Filezilla fyrir FTP/SFTP stuðning og
Xammp fyrir http://localhost/


http://www.aptana.com/products/studio3
http://notepad-plus-plus.org/
http://www.apachefriends.org/en/xampp.html



Til að læra einhvað, Þá er W3Schools perfect.

http://www.w3schools.com/html/default.asp
http://www.w3schools.com/css3/default.asp
http://www.w3schools.com/html/html5_intro.asp

Svo hefur stackoverflow verið með hverja einustu spurningu sem mér hefur vantað. 8-[


Ef þér er alvara með þetta þá myndi ég ráðleggja þér lén s.s. Nafn.com og hýsingu hjá.
http://x.is/


Og eitt að lokum, http://www.html5rocks.com/en/why

Bara mitt brainstorm hérna.

Re: HTML5 forritun, vantar ráðleggingar og hjálp...

Sent: Sun 03. Mar 2013 12:28
af Output
Ég mæli rosalega með Codecademy, mjög góð síða fyrir byrjendur.

http://codecademy.com

Síðan þegar þú ert búin að taka HTML course-in Þá geturu lært t.d. Javascript. :happy

Re: HTML5 forritun, vantar ráðleggingar og hjálp...

Sent: Sun 03. Mar 2013 15:41
af Viktor
Mæli með þessari hýsingu ef þú vilt fá server með öllu supporti uppsett:

www.giraffi.net

Re: HTML5 forritun, vantar ráðleggingar og hjálp...

Sent: Sun 03. Mar 2013 15:57
af Pandemic
eriksnaer skrifaði:Sælir allir. Ég er að skoða með að reyna fyrir mér í að hann theme fyrir vefsíðu sem keyrir á HTML5.

Ég hef aldrei forritað HTML svo ég gerði þennan þráð til að sjá hvort einhver hér á vaktinni gæti sagt mér hvað þarf til að allt virki saman... Eins og t.d. hvaða forrit á ég að nota og hver er grunnurinn svo þetta gagni...

Öll aðstoð og hjálp væri vel þegin þar sem þetta er grunnurinn að því sem ég er að hugsa mér að læra eftir grunnskólann... :D

Kv. Erik


Svona til að koma þér á rétta braut þá er ég með smá fræðslu.

HTML er ekki forritunarmál heldur mark-up. Eitt og sér gerir HTML ekkert nema að skipta síðunni þinni í parta sem þú svo notar CSS til að breyta útlitinu á.
Svo í rauninni "keyrir" enginn vefsíða á HTML. Hinsvegar gæti verið að framendinn keyri á JavaScript sem er alvöru forritunarmál og oftast þegar HTML5 er nefnt þá er verið að tala um ákveðna "APA" sem browserinn útfærir og þú vonandi sem framtíðar forritari getur svo talað við í gegnum JavaScript og gert allskonar sniðuga hluti.


En sjálfur nota ég Sublime Text og Visual Studio mest megnis WebStorm er hinsvegar líka að kikka inn hjá mér.
W3School er flottur byrjunarpunktur.

Re: HTML5 forritun, vantar ráðleggingar og hjálp...

Sent: Sun 03. Mar 2013 20:50
af intenz
Ef ég væri þú, myndi ég byrja á því að kynna mér HTML5, CSS og JavaScript forritun. Einnig myndi ég lesa mér til um hvernig DOM'ið virkar. Svo myndi ég fara út í jQuery og AngularJS pælingar (JavaScript framework). Svo eftir það geturu farið út í server-side forritun með áherslu á MVC hönnunar-mynstrið.

Ég myndi mæla með W3Schools eða TheNewBoston

Og já, Sublime Text ftw! :megasmile