Síða 1 af 1

Að finna hámarks bandvídd á LAN

Sent: Mán 30. Ágú 2004 11:37
af Stutturdreki
Er með tvær tölvur með 1Gb netkortum en þegar ég tengi þær saman með Cross-over fæ ég aldrei nema 5%-7% nýtingu á bandvíddinni samkvæmt Task Manager.

Veit einhver um forrit sem ég get notað til að prófa þetta? Eða þarf maður að verða sér út um einhver tól og tæki..

Sent: Mán 30. Ágú 2004 11:41
af Daz
Er ekki mögulegt að þú sért bara með lélegan kapal, án þess að ég muni þetta nákvæmlega held ég að þú þurfir cat5 kapal fyrir gigabit ethernet.

Sent: Mán 30. Ágú 2004 12:12
af axyne
held þa sé rétt hjá daz

það eru til 2 gerðir cat5. 100 mhz og 200 mhz. held ég :?: :roll:

Sent: Mán 30. Ágú 2004 12:45
af Stutturdreki
Jaa.. líklega (vonandi) kapallin sem er flöskuhálsinn í þessu. En veit einhver um eitthvað software sem mælir/sýnir hvað maður nær miklu thoughput?

Get útvegað mér svona tæki til að mæla kapla en það sýnir sennilega bara hvort hann sé rétt tengdur, ekki hvað hann höndlar mikið af gögnum.

Sent: Mán 30. Ágú 2004 13:44
af Daz
Það ætti nú bara að standa á kaplinum hvaða týpa hann er, á mínum stendur í það minnsta "CAT5 100mhz"

Re: Að finna hámarks bandvídd á LAN

Sent: Mán 30. Ágú 2004 13:56
af Spirou
Stutturdreki skrifaði:Er með tvær tölvur með 1Gb netkortum en þegar ég tengi þær saman með Cross-over fæ ég aldrei nema 5%-7% nýtingu á bandvíddinni samkvæmt Task Manager.

Veit einhver um forrit sem ég get notað til að prófa þetta? Eða þarf maður að verða sér út um einhver tól og tæki..


5% til 7 % er hvorki meira en 50 til 70Mb sem er ekki óeðlilegt miðað við bara tvær venjulegar heimilistölvur að kópera á milli sín. Ég hefði haldið að flöskuhálsinn væri frekar hörðudiskarnir heldur en netkortin....

Sent: Mán 30. Ágú 2004 14:27
af gnarr
50-70Mb = 6,25-8,75MB. það er svona frekar á hægari kantinum miðað við gigabit lan. ef við miðum við að SATA harðir diskar eru að ná um 60MBps (um 480Mbps).

Sent: Mán 30. Ágú 2004 15:03
af tms
Sammála, á 100mbps laninu heima hjá mér hef ég oft nað rúmlega 12MB/s þó hin vélin sé bara 233mhz.

Sent: Mán 30. Ágú 2004 15:42
af jericho
CAT5 you say? ég þarf að fjárfesta í slíkum kapli fyrir næsta LAN (gott að tengja beint milli 2ja tölva sem hafa 10/10/1000 netkort).

Eru þetta nokkuð miklu dýrari kaplar? Vitið þið það?

Sent: Mán 30. Ágú 2004 15:44
af gnarr
CAT5 er venjulegur netsnúru/isdn kapall.

Sent: Mán 30. Ágú 2004 16:08
af jericho
þannig að ég mun fá mér CAT6

Sent: Mán 30. Ágú 2004 16:22
af Stutturdreki
Hmm.. gæti verið að ég sé með CAT-5 100mhz, hann er fyrir 10/100 net, en ekki CAT-5 E sem er fyrir 10/100/1000. Skoða það á eftir..

En það veit sem sagt engin um hugbúnað sem mælir þetta? Finn ekkert á netinu og mælirinn sem ég kemst í finnur ekki skemmdir eða hraða.. bara hvort kapallinn sé rétt tengdur.

Sent: Mán 30. Ágú 2004 16:38
af Daz
jericho skrifaði:þannig að ég mun fá mér CAT6

Gangi þér vel að finna það...

CAT5e styður gigabit ethernet en venjulegur CAT5 gerir það ekki (s.s. keyrir þá bara á 100 mbit/s.

Sent: Mán 30. Ágú 2004 17:50
af MezzUp
huh, ég var að lesa á einhverja snúru sem ég átti hérna og er með tengda í 10mbit'a kortið mitt; "Cat5E" :)

Sent: Mán 30. Ágú 2004 18:18
af Daz
MezzUp skrifaði:huh, ég var að lesa á einhverja snúru sem ég átti hérna og er með tengda í 10mbit'a kortið mitt; "Cat5E" :)

Eyðsluseggur. Seldu stuttumdreka hana á morð fjár og kauptu þér 100 m af CAT 3 kapli ;)

Sent: Mán 30. Ágú 2004 18:25
af gumol
Flestar snúrnar mínar eru líka CAT5E líka.

Sent: Mán 30. Ágú 2004 18:40
af axyne
Tommi skýrir málið

    Cat5 og cat5e hafa báðir 200 mhz bandvídd
    Cat6 fer á 200 mhz, tommi mælir ekki með aðnota hann nema þú sért með 10Gbit.
    Gigabyte network notar öll 4 pörin í snúrinni. 100 mbit notar 2 pör
    Þú getur notað gigabyte network á Cat5 kapli

Tommi skrifaði:1000Base-T uses all four twisted pairs of the Category 5 (or higher) cable to create four 250Mbps channels. (A different encoding scheme -- 5 level PAM -- is also used so that the signals stay within the 100MHz bandwidth rating of CAT5 cabling.) These two features result in the ability to achieve full gigabit bandwidth while using existing CAT5 cabling.

Sent: Mán 30. Ágú 2004 18:50
af Daz
axyne skrifaði:Tommi skýrir málið

    Cat5 og cat5e hafa báðir 200 mhz bandvídd
    Cat6 fer á 200 mhz, tommi mælir ekki með aðnota hann nema þú sért með 10Gbit.
    Gigabyte network notar öll 4 pörin í snúrinni. 100 mbit notar 2 pör
    Þú getur notað gigabyte network á Cat5 kapli

En skv því sem ég las þá geta venjulegir Cat5 kaplar ekki nýtt öll pörin. Þessvegna sé Cat5e til. En ég er nú enginn A+ sérfræðingur...

Edit: fann á þessari síðu frá tomma "For new network installations, the general recommendation is to use CAT5e cable. Although CAT5 and CAT5e cabling both have a 100MHz bandwidth, CAT5e cable is manufactured so that additional parameters that are important for high frequency data signals are better controlled."

Sent: Þri 31. Ágú 2004 10:30
af Stutturdreki
Var aðeins að fikta heima í gær og tók þá eftir því að það skiptir máli í hvora áttina ég tengist. Það er að segja hvort ég tengist frá Tölvu A í Tölvu B eða öfugt.

Ef ég tengist frá A til B þá fæ ég mjög stöðugan 5%-7% hraða, en ef ég tengist frá B til A þá flöktir hraðinn frá 2%-32%.

Tölva A er borðtölva með Gigabyte móðurborði með Marvell 'on-board' netkorti. Tölva B er fartölva með Broadcom NetXtreme nertkorti.

Marvell netkortið er greinilega með einhverjum stýringum sem jafna út 'spikes' í fluttningshraðanum til að reyna að fá betri meðalhraða.

5%-7% eru bara svolítil vonbrigði því það er ekki meiri hraði heldur en með 100Mb tengingu. Veit ég næ aldrei 1000Mbps með hardwareinu mínu en var að vonast til að ná kannski svona 300Mbps-400Mbps.

Sent: Þri 31. Ágú 2004 10:51
af natti
Daz skrifaði:En skv því sem ég las þá geta venjulegir Cat5 kaplar ekki nýtt öll pörin. Þessvegna sé Cat5e til. En ég er nú enginn A+ sérfræðingur...


cat5 getur kapall er alveg með jafn marga víra og getur alveg notað öll pörin.
Hinsvegar er snúningurinn á cat5 og cat5e og svo cat6 mismunandi.
T.d. í cat6 köplunum er komið plaststykki inn í kaplana til að skipta upp vírunum.
Ef þú værir að setja upp netkerfi eða e-ð og notaðir gigabit, þá ættiru að nota cat5e eða betra. Nærð alveg link á venjulegum cat5 og virkar fínt, en gætir lent í veseni ef þú ert farinn að metta linkinn. (Ekki að það séu miklar líkur á því hjá þér hvort eð er...)

Síðan eru til bunch af forritum til að prufa hvaða hraða þú nærð á milli tveggja véla (án þess að skrifa á harðadiskinn þ.e.a.s.).

En hlutir einsog window size eru þá farnir að skipta meira máli.
Ég hef t.d. ekki náð að tweeka hraðann á milli tveggja véla hjá mér yfir 680Mb