Síða 1 af 1

Vefsíðugerð: Búa til lista yfir skrár í möppu með link

Sent: Mið 27. Feb 2013 20:06
af Viktor
Sælir.

Er að dudda í smá vefsíðugerð til að hita mig upp fyrir háskólanám.
Er aðeins búinn að kynnast jQuery sem mér finnst alger snilld, er aðeins að skoða PHP ofl.

Ég er semsagt kominn með layoutið fyrir síðuna, en vantar smá hjálp.

Verð með möppu, public á síðunni, með mjög mörgum mp3 skrám.
Það sem mig langar að gera er að búa til script á síðunni sem sækir nöfnin á skránum og býr til 'save as' link til að ná í skrárnar.

Hvernig er best að snúa sér?
Hef reynt að Googla þetta en það sem ég er eitthvað svo mikið á báðum áttum hvernig er best að framkvæma þetta.

Re: Vefsíðugerð: Búa til lista yfir skrár í möppu með link

Sent: Mið 27. Feb 2013 20:15
af hagur
Í PHP?

Annað option er að leyfa einfaldlega directory browsing á þessari möppu, þá sér vefþjónninn alfarið um þetta, en þú hefur þá reyndar takmarkað control yfir útliti (ef þá eitthvað). Auk þess heyrist mér þú vilja gera þetta sjálfur :-)

Edit: smá Gúgl skilar milljón niðurstöðum fyrir þetta, hér er t.d eitthvað: http://www.webmasterworld.com/php/3253294.htm

Re: Vefsíðugerð: Búa til lista yfir skrár í möppu með link

Sent: Mið 27. Feb 2013 20:20
af Kosmor
http://www.boutell.com/newfaq/creating/ ... nload.html

Skoðaðu þetta. þetta ætti að koma þér nær.

Re: Vefsíðugerð: Búa til lista yfir skrár í möppu með link

Sent: Mið 27. Feb 2013 20:37
af Viktor
hagur skrifaði:Í PHP?

Annað option er að leyfa einfaldlega directory browsing á þessari möppu, þá sér vefþjónninn alfarið um þetta, en þú hefur þá reyndar takmarkað control yfir útliti (ef þá eitthvað). Auk þess heyrist mér þú vilja gera þetta sjálfur :-)

Edit: smá Gúgl skilar milljón niðurstöðum fyrir þetta, hér er t.d eitthvað: http://www.webmasterworld.com/php/3253294.htm


Snilld!

Seinni kóðinn virkaði...

Kóði: Velja allt

$dir = opendir('files/');
echo '<ul>';
while ($read = readdir($dir))
{

if ($read!='.' && $read!='..')
{
echo '<li><a href="files/'.$read.'">'.$read.'</a></li>';
}

}

echo '</ul>';

closedir($dir);


thanks a million!

Re: Vefsíðugerð: Búa til lista yfir skrár í möppu með link

Sent: Fim 28. Feb 2013 03:19
af intenz
Skoðaðu glob() fallið til að lesa skrár sem enda á *.mp3 og header() og readfile() til að downloada skrám.

http://php.net/manual/en/function.glob.php

http://php.net/manual/en/function.readfile.php

Sent from my GT-I9300 using Tapatalk 2