Síða 1 af 1
Lof á netspjall vodafone!
Sent: Fös 25. Jan 2013 21:21
af eriksnaer
Sælir, mér fannst bara rétt að koma þessu hér inn til að sýna hversu góða þjónustu Vodafone er að bjóða uppá með internet!
Ég semsagt var að reyna að opna port, og hann gerði það sem hann gerði sem varð til þess að ég fékk 100% greiningu á því hvað var vesenið!
Ég semsagt talaði við Grím á netspjalli Vodafone og hann gerði það sem hann gat í router og stillti allt þar rétt, svo þegar það var komið í það mesta sem hann gat gert, þá gerði hann ekki að sem margir aðrir hefðu gert... Hann hætti ekki fyrr en hann var kominn á "dead end". Ég semsagt hleypti honum inn á tölvuna mína svo hann gæti séð hvort að hún væri vesenið en ekki routerinn og hann fann 100% út hvað í tölvunni það var og sagði mér hvað ég þyrfti að gera til að laga það.. (er ekki kominn svo langt að laga það samt... Ákvað að skrifa þetta fyrst...)
Betri þjónustu hef ég ekki fengið hjá neinu fjarskiptafyrirtæki!
Kv. Erik Snær
Ps. Mæli hiklaust með Vodafone ef fólk er að hugsa sér að skipta um símfyrirtæki eða er að fá sér nýja tengingu!
Re: Lof á netspjall vodafone!
Sent: Fös 25. Jan 2013 21:24
af GrimurD
np!
Re: Lof á netspjall vodafone!
Sent: Fös 25. Jan 2013 21:25
af intenz
Ég er eiginlega meiri Símamaður, takk samt
Re: Lof á netspjall vodafone!
Sent: Fös 25. Jan 2013 21:32
af Hargo
Í öll þau skipti sem ég hef þurft að leita aðstoðar hjá Vodafone hefur þjónustan verið afbragðs góð. Ég hef allavega ekki hugsað mér til hreyfings undanfarin ár.
Re: Lof á netspjall vodafone!
Sent: Fös 25. Jan 2013 21:40
af Orri
Netspjallið er algjör snilld, yfirleitt mikið sneggri að fá aðstoð þar en í símaverinu. Verst þegar netið er niðri þá neyðist maður víst til að hringja
Re: Lof á netspjall vodafone!
Sent: Fös 25. Jan 2013 21:40
af Orri
double post
Re: Lof á netspjall vodafone!
Sent: Fös 25. Jan 2013 21:50
af hagur
Sammála. Í þau örfáu skipti sem ég hef þurft einhverskonar aðstoð frá Vodafone, þá hefur netspjallið reddað mér fljótt og vel.
Re: Lof á netspjall vodafone!
Sent: Fös 25. Jan 2013 21:58
af AntiTrust
Þess má geta að umræddur starfsmaður er háttvirtur vaktari sem gengur hér undir notendanafninu GrimurD.
EDIT: Heeh. Sá ekki að kvikindið hafði eignað sér credit sjálfur.
Re: Lof á netspjall vodafone!
Sent: Fös 25. Jan 2013 22:55
af tdog
Hann hefur pottþétt skrifað þakkarpóstinn sjálfur þegar hann var að remóta
Re: Lof á netspjall vodafone!
Sent: Fös 25. Jan 2013 22:59
af Vignirorn13
tdog skrifaði:Hann hefur pottþétt skrifað þakkarpóstinn sjálfur þegar hann var að remóta
Hahah, Já pottþétt!!
Re: Lof á netspjall vodafone!
Sent: Fös 25. Jan 2013 23:03
af eriksnaer
tdog skrifaði:Hann hefur pottþétt skrifað þakkarpóstinn sjálfur þegar hann var að remóta
Hahaha, neii, hann gerði ekkert svoleiðis, ég fylgdist með öllu sem hann gerði og ég gerði þennan post eftir að hann lauk sínu
Re: Lof á netspjall vodafone!
Sent: Fös 25. Jan 2013 23:06
af bAZik
Þessi Grímur, ÞVÍLÍKUR MAÐUR!
Re: Lof á netspjall vodafone!
Sent: Fös 25. Jan 2013 23:10
af tdog
eriksnaer skrifaði:tdog skrifaði:Hann hefur pottþétt skrifað þakkarpóstinn sjálfur þegar hann var að remóta
Hahaha, neii, hann gerði ekkert svoleiðis, ég fylgdist með öllu sem hann gerði og ég gerði þennan post eftir að hann lauk sínu
Hættu nú, Grímur
Re: Lof á netspjall vodafone!
Sent: Fös 25. Jan 2013 23:11
af AntiTrust
Fyrirsögn DV á morgun:
STARFSMENN NETVEITA BRJÓTAST INN Á TÖLVUR VIÐSKIPTAVINA TIL EINKANOTA!
Re: Lof á netspjall vodafone!
Sent: Fös 25. Jan 2013 23:12
af GrimurD
AntiTrust skrifaði:Fyrirsögn DV á morgun:
STARFSMENN NETVEITA BRJÓTAST INN Á TÖLVUR VIÐSKIPTAVINA TIL EINKANOTA!
... ekki fyndið!
Re: Lof á netspjall vodafone!
Sent: Fös 25. Jan 2013 23:14
af worghal
GrimurD skrifaði:AntiTrust skrifaði:Fyrirsögn DV á morgun:
STARFSMENN NETVEITA BRJÓTAST INN Á TÖLVUR VIÐSKIPTAVINA TIL EINKANOTA!
... ekki fyndið!
jú kommon, kanski svona pínu pons
annars vel gert hjá þér að leisa vandann til enda
lætur mig sakna stöðugleika vodafone tengingar
Re: Lof á netspjall vodafone!
Sent: Lau 26. Jan 2013 03:45
af gardar
GrimurD skrifaði:AntiTrust skrifaði:Fyrirsögn DV á morgun:
STARFSMENN NETVEITA BRJÓTAST INN Á TÖLVUR VIÐSKIPTAVINA TIL EINKANOTA!
... ekki fyndið!
Er farið að renna á þig tvær grímur?
Re: Lof á netspjall vodafone!
Sent: Lau 26. Jan 2013 11:42
af dave57
Merkilegur þráður,
ég fékk einmitt bestu tækniþjónustu hjá Vodafone sem ég hef fengið núna í haust, búninn að vera í viðskiptum þar síðustu 8 - 10 ári
Vandamálið var (að mínu viti) mjög furðulegt. Eftir að ég fékk nýja fartölvu virkaði þráðlausa neti bara á innlendum IP tölum. Þegar ég var tengdur með snúru,
var allt í góðu á sömu vélinni og tönnur Wifi tæki virkuðu eðlilega.
Eftir að við sendum nokkra pósta framm og til baka, renndi starfsmaðurinn við heima hjá mér í eigin tíma, eftir vinnu og skipti um routerinn og prófað þetta með mér.
Sagðist búa í nágreninu og ekkert muna um þetta. Komið í lag á met tíma og ég þurfti ekki að sendast inní Reykjavík eftir nýjum router.
Fór og fletti í póstinum hjá mér og sjálfsögðu var þetta Grímur....
Re: Lof á netspjall vodafone!
Sent: Lau 26. Jan 2013 16:32
af eriksnaer
dave57 skrifaði:Fór og fletti í póstinum hjá mér og sjálfsögðu var þetta Grímur....
Já, hann Grímur er snillingur hvað svona varðar
Hættir ekki fyrr en hann kominn til botns í málinu
Bara ef allir þjónustufulltrúar færu svona, allstaðar, þá væri allt svo mikið þæginlegra...
Re: Lof á netspjall vodafone!
Sent: Lau 26. Jan 2013 16:39
af hfwf
Gaman að lesa um svona þjónustu, hana vantar á svo mörgum stöðum.