Síða 1 af 1

Setja password á lan

Sent: Fim 17. Jan 2013 23:28
af capteinninn
Er að fara í nýja íbúð í lok mánaðarins og ég er orðinn nokkuð vanur net yfir rafmagn kerfinu mínu og var að spá að nota það áfram.

Sé samt fram á að það geti verið tæpt að gera það í stóru íbúðarhúsi með mörgum íbúðum því nágrannarnir gætu notað netið mitt. Var að spá hvort það væri einhver leið að setja password á tenginguna, s.s. svipað og WEP eða eitthvað nema bara fyrir net yfir lan tengingu

Re: Setja password á lan

Sent: Fim 17. Jan 2013 23:35
af playman
Á ekki að vera hægt að setja MAC læsingu á ethernet tengingar á routerum?

Re: Setja password á lan

Sent: Fös 18. Jan 2013 00:14
af gardar
þín íbúð er væntanlega með sér greinar fyrir rafmagnið...

Re: Setja password á lan

Sent: Fös 18. Jan 2013 00:18
af capteinninn
gardar skrifaði:þín íbúð er væntanlega með sér greinar fyrir rafmagnið...



mmkey, ég athuga það næst þegar ég fer yfir. Hef enga töflu í íbúðinni sem ég er núna í svo ég var ekki viss, fer netið ekki bara yfir allar rásir á rafmagnstöflunni? Ég hef allavega tengt þetta í eina rás á töflunni og sett hinn endann í aðra rás og það virkaði fínt

Re: Setja password á lan

Sent: Fös 18. Jan 2013 00:53
af AntiTrust
Þetta á ekki að fara á milli íbúða, ekkert frekar en að ef það slær út í einni íbúð þá slær ekki út hjá öðrum. Svo er traffíkin sjálf yfirleitt AES 128bit dulkóðuð á PLC.

Re: Setja password á lan

Sent: Fös 18. Jan 2013 01:21
af tdog
Þetta stoppar víst á hverjum lekastraumsliða. Þú ert alveg öruggur.

Re: Setja password á lan

Sent: Fös 18. Jan 2013 01:24
af capteinninn
Snilld, takk fyrir svörin allir. Ég var ekki viss hvernig þetta virkaði