Síða 1 af 1

Vandamál með Zyxel P-870HN-51b router

Sent: Lau 22. Des 2012 00:38
af Yawnk
Sælir, er í basli með Zyxel P-870HN-51b, hann á það til að detta út cirka á 3 klst fresti, en slekkur þó bara á þráðlausa / wired netinu, ekki sjónvarpi eða slíkt, og þarf alltaf að laga með restarti á routernum, þetta er orðið svolítið hvimleitt og væri til í að fá lausn!

Er með 50MB Ljósnet hjá símanum.

http://www.tl.is/product/zyxel-prestige ... -4p-n-ipv6 - Routerinn

Hvað gæti verið að?

Re: Vandamál með Zyxel P-870HN-51b router

Sent: Lau 22. Des 2012 04:24
af Nxxx
Er með nákvæmlega sama router og er að lenda í þessu, samt ekki á 3 klst fresti heldur er þetta að gerast allavega 1 sinni á dag.

Re: Vandamál með Zyxel P-870HN-51b router

Sent: Lau 22. Des 2012 04:47
af Xovius
shameless plug á topicið mitt fyrst að það gætu verið einhverjir hérna með sama router sem gætu mögulega hjálpað mér :) viewtopic.php?f=18&t=52243

Annars hef ég aldrei lent í þessu vandamáli með þennan router.

Re: Vandamál með Zyxel P-870HN-51b router

Sent: Lau 22. Des 2012 16:31
af Yawnk
@Xovius - Já, þvílíkt vesen að port forwarda þetta, virkaði aldrei hjá mér einmitt í Minecraft líka :)

Þá verður maður líklega að senda mail á Símann og fá honum skipt, ef það er ekkert annað sem ég gæti gert.

Re: Vandamál með Zyxel P-870HN-51b router

Sent: Lau 22. Des 2012 17:12
af wicket
Vesen að port forwarda ???? Ég er sjálfur með svona router og er með allskonar þjónustur í gangi og gat opnað auðveldlega fyrir þær allar.

Er samt alltaf á leiðinni að skipta yfir í nýja Technicolor routerinn sem Síminn er með, hef heyrt góða hluti af honum.