Síða 1 af 2
75% afsláttur af JetBrains IDEs og tólum
Sent: Fim 20. Des 2012 16:13
af intenz
Re: 75% afsláttur af JetBrains IDEs og tólum
Sent: Fim 20. Des 2012 16:17
af darkppl
og hvað er þetta?
Re: 75% afsláttur af JetBrains IDEs og tólum
Sent: Fim 20. Des 2012 16:24
af intenz
darkppl skrifaði:og hvað er það?
Ert þú ekki að villast eitthvað vinur?
Re: 75% afsláttur af JetBrains IDEs og tólum
Sent: Fim 20. Des 2012 16:42
af cartman
Damn ég var nýbúinn að kaupa mér RubyMine leyfi
En ég er samt að spá í að skella mér á intellij og Resharper
Hugsanlega PyCharm líka
Re: 75% afsláttur af JetBrains IDEs og tólum
Sent: Fim 20. Des 2012 17:00
af intenz
cartman skrifaði:Damn ég var nýbúinn að kaupa mér RubyMine leyfi
En ég er samt að spá í að skella mér á intellij og Resharper
Hugsanlega PyCharm líka
Haha já ég var næstum því búinn að kaupa PhpStorm um daginn... gott að ég gerði það ekki.
Re: 75% afsláttur af JetBrains IDEs og tólum
Sent: Fim 20. Des 2012 18:03
af intenz
Jólagjöf frá mér til mín.
Re: 75% afsláttur af JetBrains IDEs og tólum
Sent: Fim 20. Des 2012 18:04
af playman
Damn, afhverju geta tölvuverslanir þetta ekki.... -.-
Re: 75% afsláttur af JetBrains IDEs og tólum
Sent: Fim 20. Des 2012 18:21
af shawks
Góður díll.
Spurning hvort maður eigi að kaupa IntelliJ þegar Eclipse er ókeypis?
Re: 75% afsláttur af JetBrains IDEs og tólum
Sent: Fim 20. Des 2012 18:31
af intenz
shawks skrifaði:Góður díll.
Spurning hvort maður eigi að kaupa IntelliJ þegar Eclipse er ókeypis?
IntelliJ er bara svo MIKLU betra og notendavænna.
Re: 75% afsláttur af JetBrains IDEs og tólum
Sent: Fim 20. Des 2012 18:44
af shawks
intenz skrifaði:shawks skrifaði:Góður díll.
Spurning hvort maður eigi að kaupa IntelliJ þegar Eclipse er ókeypis?
IntelliJ er bara svo MIKLU betra og notendavænna.
Notaði IntelliJ fyrir nokkrum árum í námi og það var mjög notendavænt. Hvort það sé betra en Eclipse þori ég ekki að dæma um. Mig minnir að tólið hafi verið "resource hog" í minnisnotkun. Allavega kikkaði garbage collectorinn sterkur inn í einhverjum tilvikum og þá fraus dótið.
En ég held að ég gefi sjálfum mér jólagjöf og skelli mér á eitt stykki.
Re: 75% afsláttur af JetBrains IDEs og tólum
Sent: Fim 20. Des 2012 18:54
af intenz
shawks skrifaði:intenz skrifaði:shawks skrifaði:Góður díll.
Spurning hvort maður eigi að kaupa IntelliJ þegar Eclipse er ókeypis?
IntelliJ er bara svo MIKLU betra og notendavænna.
Notaði IntelliJ fyrir nokkrum árum í námi og það var mjög notendavænt. Hvort það sé betra en Eclipse þori ég ekki að dæma um. Mig minnir að tólið hafi verið "resource hog" í minnisnotkun. Allavega kikkaði garbage collectorinn sterkur inn í einhverjum tilvikum og þá fraus dótið.
En ég held að ég gefi sjálfum mér jólagjöf og skelli mér á eitt stykki.
Ég hef notað bæði IntelliJ og Eclipse og mér finnst IntelliJ miklu betra. En jú, það er svolítill resource hog. Spurning hvort þeir séu búnir að laga það í útgáfu 12.
Re: 75% afsláttur af JetBrains IDEs og tólum
Sent: Fim 20. Des 2012 19:02
af cartman
Mér finnst intelliJ vera mun þægilegra en Eclipse. Ég hef notað Eclipse bæði fyrir Java og Ruby forritun en mér finnst Jetbrains IDE-in vera mun betri. Ég nota meira að segja Resharper Intellisense pluginið frá Jetbrains í Visual Studio því þá verður auto complete miklu "réttara".
En vissulega er þetta mjög persónubundið. Í vinnunni hjá mér þá eru menn að nota hvoru tveggja og það dreyfist nokkuð jafnt milli Eclipse og IntelliJ.
Re: 75% afsláttur af JetBrains IDEs og tólum
Sent: Fim 20. Des 2012 19:39
af gardar
Re: 75% afsláttur af JetBrains IDEs og tólum
Sent: Fim 20. Des 2012 20:10
af rango
gardar skrifaði:...
Re: 75% afsláttur af JetBrains IDEs og tólum
Sent: Fim 20. Des 2012 21:08
af starionturbo
mæli með sublime text 2, flest annað er overhead og þungt í keyrslu.
vinnur nánast alltaf nema kannski í .NET en þá væruði að nota studioið
Re: 75% afsláttur af JetBrains IDEs og tólum
Sent: Fim 20. Des 2012 23:05
af Haxdal
PHP Ide? .. the fuck.
Segi bara einsog Gardar, Vim.
Re: 75% afsláttur af JetBrains IDEs og tólum
Sent: Fim 20. Des 2012 23:12
af dori
Ég nota alltaf vim þegar ég fæ að velja. Nota samt IntelliJ í vinnunni (krafa um staðlað umhverfi) og það er alveg fínt ef tölvan er með nægilegt minni.
Svona IDE eru náttúrulega mjög þægileg þegar það er búið að setja slatta vinnu í að stilla allt fyrir verkefnið og læra á keyboard shortcut.
Re: 75% afsláttur af JetBrains IDEs og tólum
Sent: Fim 20. Des 2012 23:13
af gardar
Góð grein hérna fyrir þá sem vilja verða menn
http://haridas.in/vim-as-your-ide.html
Re: 75% afsláttur af JetBrains IDEs og tólum
Sent: Fim 20. Des 2012 23:19
af intenz
Haxdal skrifaði:PHP Ide? .. the fuck.
Segi bara einsog Gardar, Vim.
Hvað meinaru? Geta PHP project ekki verið stór og flókin, þar sem IDE myndi auðvelda manni vinnuna, eins og í öllu öðru?
Re: 75% afsláttur af JetBrains IDEs og tólum
Sent: Fim 20. Des 2012 23:25
af dori
Ég hef farið í gegnum svona pælingar og ég endaði alltaf á því að taka mest af þessum aukafítusum í burtu. IMHO á vim að vera fljótur að ræsa og svo opnarðu bara marga ritla. Gott syntax highlighting og svona basic hlutir samt endilega. En eitthvað IDE hermidót hefur aldrei virkað fyrir mig.
Re: 75% afsláttur af JetBrains IDEs og tólum
Sent: Fös 21. Des 2012 00:05
af Pandemic
Hef aldrei skilið hate á góða IDE. Nánast allar tölvur í dag eru nógu öflugar til að visual studio án hiks og lets be honest ef tölvur í dag geta gert það auðveldlega þá eru allir aðrir IDE's kettlingar miðað við VS.
Er þetta eitthvað sem mönnum finnst óþæginlegt, að vera með svona mikið af options eða?
Re: 75% afsláttur af JetBrains IDEs og tólum
Sent: Fös 21. Des 2012 00:10
af intenz
Pandemic skrifaði:Hef aldrei skilið hate á góða IDE. Nánast allar tölvur í dag eru nógu öflugar til að visual studio án hiks og lets be honest ef tölvur í dag geta gert það auðveldlega þá eru allir aðrir IDE's kettlingar miðað við VS.
Er þetta eitthvað sem mönnum finnst óþæginlegt, að vera með svona mikið af options eða?
Menn bara eru ekki hardcore nema að gera allt í skel.
Re: 75% afsláttur af JetBrains IDEs og tólum
Sent: Fös 21. Des 2012 00:16
af Pandemic
Stundum fæ ég það á tilfinninguna að menn haldi að þeir séu með stærri pung ef þeir neita öllum hjálpartækjum.
Re: 75% afsláttur af JetBrains IDEs og tólum
Sent: Fös 21. Des 2012 00:18
af intenz
Pandemic skrifaði:Stundum fæ ég það á tilfinninguna að menn haldi að þeir séu með stærri pung ef þeir neita öllum hjálpartækjum.
Þeir gera sér samt ekki grein fyrir því að hjálpartæki eru oft til góðs og hraða þróun.
Hraðari þróun = Kröfur klárast hraðar = Meiri framleiðni = MEIRI PENINGAR Í KASSANN
Re: 75% afsláttur af JetBrains IDEs og tólum
Sent: Fös 21. Des 2012 00:22
af Daz
Ég nota 3-4 mismunandi umhverfi í minni vinnu. Ég væri örugglega mun afkastameiri ef ég myndi læra 100% á þessi mismunandi umhverfi, frekar en að leyfa "umhverfinu" að sjá um handavinnuna. Þá fæ ég alltof mikinn tíma til að leysa sjálft vandamálið, tíma sem ég hefði geta eytt í að átta mig t.d. á því hvernig þetta umhverfi vill taka við source skrám.