Síða 1 af 1
Upload speed á ADSL tengingu hjá Símanum
Sent: Mán 17. Des 2012 15:19
af Remion
Er með ADSL hjá Símanum hérna heima og er að fá um 10Mb/s í download og 1Mb/s í upload, download hraðinn er mjög fínn, en finnst dáltið lélegt að geta ekki uploadað hraðar en á 130KB/s. Er að pæla, er hægt að fórna einu eða tveimur megabitum af download hraðanum og nota í upload, myndi alveg muna slatta ef ég væri með 8Mb/s down og 3Mb/s up.
Öll svör vel þegin
Re: Upload speed á ADSL tengingu hjá Símanum
Sent: Mán 17. Des 2012 15:26
af AntiTrust
Nei, þetta er yfirleitt ekki hægt, svona eru bara oftast hlutföllin á ADSLinu. Yfirleitt þarf að keyra línur mikið niður í niðurhraða til að auka við upphraðann, minnir að þær tengingar séu þá 4/4.
Re: Upload speed á ADSL tengingu hjá Símanum
Sent: Mán 17. Des 2012 15:31
af tlord
alveg hægt, sumir bjóða þetta sem þjónustu
Re: Upload speed á ADSL tengingu hjá Símanum
Sent: Mán 17. Des 2012 15:37
af AntiTrust
tlord skrifaði:alveg hægt, sumir bjóða þetta sem þjónustu
Áttu þá ekki við í formi SDSL tengingar (þar sem VDSL er ekki í boði) ?
Re: Upload speed á ADSL tengingu hjá Símanum
Sent: Mán 17. Des 2012 15:39
af Remion
AntiTrust skrifaði:Nei, þetta er yfirleitt ekki hægt, svona eru bara oftast hlutföllin á ADSLinu. Yfirleitt þarf að keyra línur mikið niður í niðurhraða til að auka við upphraðann, minnir að þær tengingar séu þá 4/4.
Væri líka alveg ásættanlegt, er ekki mikið að downloada svosem, og þráðlausa netið hjá mér afkastar oftast ekki meira en 600KB/s og þetta væri þá 500KB/s og 500KB/s niður, býður Síminn uppá þetta?
Man reyndar eftir þræði hérna þar sem DJOli sagðist hafa "boostað" download hraðann hjá sér uppí ~19Mb/s, hélt það væri kannski hægt að gera eitthvað svipað með upload hraðann
Re: Upload speed á ADSL tengingu hjá Símanum
Sent: Mán 17. Des 2012 15:43
af tlord
voda er með 2mb up adsl fyrir aukagjald
Re: Upload speed á ADSL tengingu hjá Símanum
Sent: Mán 17. Des 2012 15:55
af Remion
tlord skrifaði:voda er með 2mb up adsl fyrir aukagjald
gætiru sent mér link á það?
Re: Upload speed á ADSL tengingu hjá Símanum
Sent: Mán 17. Des 2012 16:01
af AntiTrust
tlord skrifaði:voda er með 2mb up adsl fyrir aukagjald
Vissi reyndar ekki af því - en það er gott að hafa í huga að það fer eftir því hvort að línan höndlar þennan UL hraða - og líkurnar á því eru yfirleitt ekki miklar.
Re: Upload speed á ADSL tengingu hjá Símanum
Sent: Mán 17. Des 2012 16:03
af GrimurD
AntiTrust skrifaði:tlord skrifaði:voda er með 2mb up adsl fyrir aukagjald
Vissi reyndar ekki af því - en það er gott að hafa í huga að það fer eftir því hvort að línan höndlar þennan UL hraða - og líkurnar á því eru yfirleitt ekki miklar.
Það sem hann sagði, Vodafone býður upp á 2mb en tengingarnar ráða nánast aldrei við það, yfirleitt í kringum 1mb.
Re: Upload speed á ADSL tengingu hjá Símanum
Sent: Mán 17. Des 2012 16:06
af Remion
Er ekki bara hægt að fá einhvern til að mæla hvað símalínan mín þolir mikið?
Re: Upload speed á ADSL tengingu hjá Símanum
Sent: Mán 17. Des 2012 16:10
af AntiTrust
Remion skrifaði:Er ekki bara hægt að fá einhvern til að mæla hvað símalínan mín þolir mikið?
Jú, ISPinn þinn á að geta sagt þér það, hringdu bara í þjónustuverið.
Re: Upload speed á ADSL tengingu hjá Símanum
Sent: Mán 17. Des 2012 18:42
af Remion
Hringdi áðan í þjónustuver símans og spurði útí þetta, samkvæmt þeim er ég að fá besta mögulega hraða. :l
Re: Upload speed á ADSL tengingu hjá Símanum
Sent: Mán 17. Des 2012 19:13
af Remion
Er ekki hægt að fá einhverstaðar ódýrt server pláss fyrir 1U server og ágæta nettengingu?, fyrst maður getur ekki verið með þetta heima hjá sér
Re: Upload speed á ADSL tengingu hjá Símanum
Sent: Þri 18. Des 2012 08:41
af dori
Remion skrifaði:Er ekki hægt að fá einhverstaðar ódýrt server pláss fyrir 1U server og ágæta nettengingu?, fyrst maður getur ekki verið með þetta heima hjá sér
Flestir sem bjóða upp á serverhýsingu gera það almennilega þannig að það er ekkert rosalega ódýrt (fer reyndar væntanlega eftir skilgreining á ódýrt).
Er ekki einhver sem þú þekkir sem er með kompu og ljósleiðara sem þú getur gefið smá pening uppí nettenginguna fyrir að hýsa serverinn?
Re: Upload speed á ADSL tengingu hjá Símanum
Sent: Þri 18. Des 2012 09:42
af ponzer
Remion skrifaði:Er ekki hægt að fá einhverstaðar ódýrt server pláss fyrir 1U server og ágæta nettengingu?, fyrst maður getur ekki verið með þetta heima hjá sér
Þú getur talað við Thor Datacenter, þeir voru að bjóða upp á svona þjónustu í fyrra man ég.