Síða 1 af 1
linux formatað aftur í windows??
Sent: Lau 15. Des 2012 17:06
af joibs
er semsagt með vél sem er með linux stírikerfi en ég vill setja windows 8 í hana
er eithvað sem ég þarf að hafa í huga á meðan ég er að gera þetta eða ætti þetta að vera eins og að færa frá t.d. windows 7 í 8
öll hjálp er vel þegin (nýliði hér á ferð)
Re: linux formatað aftur í windows??
Sent: Lau 15. Des 2012 17:10
af AntiTrust
Gerir bara clean install, eina sem þú þarft í huga er auðvitað að taka til hliðar gögn ef þess þarf og setja svo upp rétta rekla frá framleiðanda eftir að W8 hefur verið sett upp.
Re: linux formatað aftur í windows??
Sent: Lau 15. Des 2012 17:18
af joibs
AntiTrust skrifaði:Gerir bara clean install, eina sem þú þarft í huga er auðvitað að taka til hliðar gögn ef þess þarf og setja svo upp rétta rekla frá framleiðanda eftir að W8 hefur verið sett upp.
ertu þá að meina ef ég er með eithverja persónuleg gögn sem ég vill halda? eða eithver sér windows gögn?
og ja...... hvað meinarðu með "rekla"
Re: linux formatað aftur í windows??
Sent: Lau 15. Des 2012 17:23
af arons4
joibs skrifaði:AntiTrust skrifaði:Gerir bara clean install, eina sem þú þarft í huga er auðvitað að taka til hliðar gögn ef þess þarf og setja svo upp rétta rekla frá framleiðanda eftir að W8 hefur verið sett upp.
ertu þá að meina ef ég er með eithverja persónuleg gögn sem ég vill halda? eða eithver sér windows gögn?
og ja...... hvað meinarðu með "rekla"
Grunar að hann meini persónuleg gögn, reklar er bara íslenska orðið fyrir drivera.
Re: linux formatað aftur í windows??
Sent: Lau 15. Des 2012 17:24
af hfwf
Hann á við gögn se þú vilt eiga.. (myndir, video, vinnugögn etc etc etc.....) og reklar á hann við með drivers svo þú getir nú keyrt tölvuna eins og hun er gerð til þess að gera
( hljóðkort, netið, grafík etc etc etc etc )
Re: linux formatað aftur í windows??
Sent: Lau 15. Des 2012 17:31
af joibs
og þá meinarðu drivers eins og það sem maður downloadar héðan?
http://www.driverspro.org/windrivers.ph ... cid=win101
Re: linux formatað aftur í windows??
Sent: Lau 15. Des 2012 17:32
af hfwf
t.d. Annars er betra að taka driverana af viðeigandi síðum eins og intel fyrir skjákorts/netdrivera og nvidia.com/amd.com fyrir grafík t.d.
Re: linux formatað aftur í windows??
Sent: Lau 15. Des 2012 17:32
af AntiTrust
Já - en notaðu mikið frekar drivera sótta af heimasíðunni hjá framleiðandanum á vélinni/vélbúnaðinum. Þessar driver síður eru yfirleitt pakkaðar af malware og fake installers og toolbars og flr. viðbjóði, og eru ekki alltaf með nýjustu eða áreiðanlegustu driverana.
Re: linux formatað aftur í windows??
Sent: Sun 16. Des 2012 22:36
af joibs
takk fyrir hjálpina við þetta
vissi ekki að þetta væri svona hrikalega létt
Re: linux formatað aftur í windows??
Sent: Mán 17. Des 2012 17:17
af coldcut
FÆRT!
Sé engan tilgang í að hafa þetta í Linux/GNU/*NIX flokknum...
Re: linux formatað aftur í windows??
Sent: Þri 18. Des 2012 23:37
af joibs
fanst þetta nu bara passa best við linux flokkinn því ég sá fyrir mér að þeir sem væru með linux hefðu eftilvill flakkað meira meirta þarna á milli en þessi venjulegi "windows" hópur, en það má víst deila um það....
en ég fékk allavena hjálp við það sem mig vantaði hjálp við svo ég er afar þakklátur