Síða 1 af 1

tvöfalt hærra ping til Evrópu

Sent: Lau 15. Des 2012 12:27
af Nitruz
Sælir, er einhver annar að fá tvöfalt hærra ping til Evrópu en venjulega?
Var vanur að sjá um 60 ping til vestur Evrópu en núna er það 120-130.
Til austur USA er ég að fá svipað og venjulega um 120-130.
Ég er með ljóleiðara hjá Tal.

Re: tvófalt hærra ping til Evrópu

Sent: Lau 15. Des 2012 13:03
af GuðjónR
Ertu að tala um tvöfalt eða tólffalt?

Re: tvófalt hærra ping til Evrópu

Sent: Lau 15. Des 2012 13:25
af Nitruz
:?:
GuðjónR skrifaði:Ertu að tala um tvöfalt eða tólffalt?

Re: tvófalt hærra ping til Evrópu

Sent: Lau 15. Des 2012 14:07
af Domnix
talan tvó er því miður ekki til

Re: tvófalt hærra ping til Evrópu

Sent: Lau 15. Des 2012 14:15
af AntiTrust
Ég er búinn að taka sérstaklega mikið eftir þessu undanfarið, og finnst þetta vera að koma niður á normal vafri.

Hérna er t.d. screenshot af response tíma yfir 24 tíma á vefþjónustu hjá mér, bláa línan er ping frá US, brúna "línan" er ping frá Þýskalandi.

Mynd

Re: tvöfalt hærra ping til Evrópu

Sent: Lau 15. Des 2012 14:27
af Nitruz
wow þetta er enginn smá munur, hjá hverjum ertu?
Hefuru einhverja hugmynd hvað veldur þessu?

Re: tvöfalt hærra ping til Evrópu

Sent: Lau 15. Des 2012 14:29
af AntiTrust
Nitruz skrifaði:wow þetta er enginn smá munur, hjá hverjum ertu?
Hefuru einhverja hugmynd hvað veldur þessu?


Ég er á ljósi hjá Vodafone. Hef því miður ekki minnstu glóru um það hvað getur verið að valda þessu, og ætlaði meira segja að gera hér svipaðan þráð með fyrirspurn um þetta sama. Finnst bara afar ólíklegt að þetta sé e-ð local issue hjá mér fyrst að US serverinn er að skila þessum líka stöðugu response tímum.

Re: tvöfalt hærra ping til Evrópu

Sent: Lau 15. Des 2012 14:35
af Nitruz
update: Ping er dottið niður fyrir 60 aftur... hmm

Re: tvöfalt hærra ping til Evrópu

Sent: Lau 15. Des 2012 14:52
af Stuffz
Nitruz skrifaði:update: Ping er dottið niður fyrir 60 aftur... hmm


hmm undarlegt

komið oft fyrir áður eða?

spila ekkert erlendis sjálfur lengur, tja nema einn vafra uppbyggingar leik frá þýsku fyrirtæki, ekkert ping critical dæmi í vafra leikjum sem betur fer.

man alltaf að maður var að fá svona 60-90 ping á Bresku serverunum í BF2 á sýnum tíma og svo 120-180 á US serverunum, enda spilaði maður betur á Bresku serverunum fyrir vikið.

Re: tvöfalt hærra ping til Evrópu

Sent: Lau 15. Des 2012 15:38
af ponzer
Síminn var með viðhaldsvinnu á netgáttini sinni í London þeir segja að þetta verði framm á hádegi á morgun... Það stemmir alveg að tengingar hjá TALi séu líka að haga sér svona því netinu þeirra er rútað yfir til Símans.