Dapur hraði á Ljósleiðara

Skjámynd

Höfundur
bjornvil
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 363
Skráði sig: Fim 24. Jan 2008 00:10
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Dapur hraði á Ljósleiðara

Pósturaf bjornvil » Fim 13. Des 2012 01:11

Sælir

Fyrirsögnin er kannski villandi. Málið er þannig að ég er með ljósleiðaratengingu hjá Vodafone/Gagnaveitu Reykjavíkur og ég er að fatta það núna eftir rúmt ár að ég er með alveg glaaataðan hraða í tölvuna hjá mér. Er að fá um 15mb/s á speedtest.net eða speed.c.is í turninn minn sem er við sjónvarpið í stofunni á meðan ég fæ 50mb/sek á lappann ef ég tengi hann með snúru við routerinn.

Eðlilega vill ég gera eitthvað í þessu. Vandamálið er að til að fá netsamband í turninn þarf er ég með svona Devolo dLan powerbricks sem að flytja netsambandið yfir raflagnir... nema það virkar ekki mjög vel eins og sést á hraðanum.

Þannig að mín spurning er... Hvað er best fyrir mig að gera í stöðunni? ´

Reyna að leggja ethernet kapal frá Router í turninn? Það eru loftnetstengi nálægt bæði router og tölvu þannig að það gæti verið nokkuð einfalt þótt ég viti það ekki.

Skipta út Vodafone Bewan router og fá router sem er með almennilegt WLAN (fæ top 10mb/sek á WIFI á Bewan) og kaupa Wireless adapter fyrir turninn og hafa allt WIFI?

Eitthvað annað???

Yrði þakklátur fyrir góð svör, ég var að setja upp Netflix og fór að skoða þetta í kjölfarið og skammast mín hálf fyrir að láta þetta viðgangast svona lengi ](*,)




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6354
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 161
Staða: Ótengdur

Re: Dapur hraði á Ljósleiðara

Pósturaf AntiTrust » Fim 13. Des 2012 01:21

Færð alveg örugglega ekki mikið betri hraða á WLANinu nema fá þér þokkalega öflugan búnað (.11n/5ghz). Þetta er bara borðliggjandi, lætur græja Cat5e frá router yfir í tölvu, eina leiðin til að fá solid samband.




capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: Dapur hraði á Ljósleiðara

Pósturaf capteinninn » Fim 13. Des 2012 01:40

Kaupa þá líka bara stokk meðfram loftinu eða eitthvað, ég er með net yfir rafmagn og það hefur virkað í lagi fyrir mig hingað til, við og við dettur þetta út en heilt yfir virkar þetta fínt hjá mér.

Stokkur er mjög snyrtileg lausn á þessu hjá þér



Skjámynd

Höfundur
bjornvil
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 363
Skráði sig: Fim 24. Jan 2008 00:10
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Dapur hraði á Ljósleiðara

Pósturaf bjornvil » Fim 13. Des 2012 12:22

Já væntanlega eina vitið að láta draga ethernet kapal í þetta.