Síða 1 af 1

Versla Windows 8 frá Microsoft.

Sent: Mán 10. Des 2012 14:03
af ColdIce
Sælir Vaktarar. Eins og margir eflaust vita er Microsoft að bjóða Windows 8 Pro núna á 4.975kr í upgrade.

Pæling mín er þessi, ef ég kaupi þetta, fæ ég þá sent í maili or some serial? Downloada ég eintaki frá þeim og geymi það bara sjálfur á góðum stað til að setja það upp eftir næsta format etc?
Hefur einhver notfært sér þennan díl og getur sagt mér hvernig þetta fer fram?

Takk takk :)

Re: Versla Windows 8 frá Microsoft.

Sent: Mán 10. Des 2012 14:10
af steinarorri
Ég keypti þetta, downloadaði og svo var val hvort ég uppfærði úr forritinu eða brenndi á disk og uppfærði svo.

Re: Versla Windows 8 frá Microsoft.

Sent: Mán 10. Des 2012 14:13
af addi32
Já ég hef gert þetta á nokkrum vélum hjá mér og reynst vel. Þetta virkar ef þú ert að uppfæra eldri útgáfu af Windows í WIN8. Nærð í Installar frá þeim sem fer yfir vélina hjá þér og segir þér hvaða forrit þarf að setja upp aftur og svona. Virkar smooth að borga og download/installa. Getur valið hvort þú viljir halda gögnunum þínum eða gera clean install.

Þú færð sent serial-númer.

Það gengur ekki að formatta vélina áður en þú installar win 8, þú verður að nota installerinn þeirra og uppfæra í gegnum hann til að geta notað þennan serial-key.

Getur notað hann fyrir eina vél og það er mjög mikið vesen að ætla færa hann á milli véla.

Ef þú installar Fresh Win 8 með lyklinum sem þeir sendu þér í tölvupósti þá gengur það allveg, færð bara meldingu um að stýrikerfið sé ekki activerað í hvert skipti sem þú ræsir vélina. Þegar þú ætlar svo að borga fyrir Stýrikerfið þá kostar það ekki 5000kr heldur 10.000kr. Hef reynt þetta, ekki skemmtilegt ](*,)

Re: Versla Windows 8 frá Microsoft.

Sent: Mán 10. Des 2012 14:15
af ColdIce
steinarorri skrifaði:Ég keypti þetta, downloadaði og svo var val hvort ég uppfærði úr forritinu eða brenndi á disk og uppfærði svo.

Var eitthvað serial eða er eintakið þitt bara án serial, ef þú skilur?

Re: Versla Windows 8 frá Microsoft.

Sent: Mán 10. Des 2012 14:21
af ColdIce
addi32 skrifaði:Já ég hef gert þetta á nokkrum vélum hjá mér og reynst vel. Þetta virkar ef þú ert að uppfæra eldri útgáfu af Windows í WIN8. Nærð í Installar frá þeim sem fer yfir vélina hjá þér og segir þér hvaða forrit þarf að setja upp aftur og svona. Virkar smooth að borga og download/installa. Getur valið hvort þú viljir halda gögnunum þínum eða gera clean install.

Þú færð sent serial-númer.

Það gengur ekki að formatta vélina áður en þú installar win 8, þú verður að nota installerinn þeirra og uppfæra í gegnum hann til að geta notað þennan serial-key.

Getur notað hann fyrir eina vél og það er mjög mikið vesen að ætla færa hann á milli véla.

Ef þú installar Fresh Win 8 með lyklinum sem þeir sendu þér í tölvupósti þá gengur það allveg, færð bara meldingu um að stýrikerfið sé ekki activerað í hvert skipti sem þú ræsir vélina. Þegar þú ætlar svo að borga fyrir Stýrikerfið þá kostar það ekki 5000kr heldur 10.000kr. Hef reynt þetta, ekki skemmtilegt ](*,)

Þannig að ég þarf alltaf að formata, setja upp W7, og svo nota þetta upgrade drasl frá þeim? (ef ég nenni ekki veseni)

Re: Versla Windows 8 frá Microsoft.

Sent: Mán 10. Des 2012 14:24
af Hjaltiatla
addi32 skrifaði:J

Ef þú installar Fresh Win 8 með lyklinum sem þeir sendu þér í tölvupósti þá gengur það allveg, færð bara meldingu um að stýrikerfið sé ekki activerað í hvert skipti sem þú ræsir vélina. Þegar þú ætlar svo að borga fyrir Stýrikerfið þá kostar það ekki 5000kr heldur 10.000kr. Hef reynt þetta, ekki skemmtilegt ](*,)


Ég hringdi bara í Microsoft og þeir græjuðu þetta fyrir mig þar sem ég var að uppfæra móðurborð á vélinni minni.
Hringdi í S:510-6920 og fékk samband við erlendan aðila og útskýrði þetta fyrir honum og það var ekkert mál (þurfti að gefa upp eitthverjar tölur inní Windows activation). Í dag er ég með með image af stýrikerfinu þar sem þetta var í raun skyndiákvörðun (og ég átti ekki image á þeim tímapunkti) að uppfæra móðurborðið þegar ég lenti í þessum bobba.

Re: Versla Windows 8 frá Microsoft.

Sent: Mán 10. Des 2012 14:57
af ColdIce
Blaðraði við Microsoft í Svíþjóð og hann sagði að ég gæti gert clean install og activate-að án vandræða.

Keypti þetta allavega og er að halast niður núna. Takk kærlega fyrir öll svörin :)

Re: Versla Windows 8 frá Microsoft.

Sent: Mán 10. Des 2012 15:24
af ZoRzEr
Keypti Win8 á 4.975kr núna fyrir ~1 mánuði beint af Microsoft. Verð að segja að það hafi verið mjög sársaukalaust. Fyrir utan að vera með kolólöglega útgáfu af Win7 Ultimate á undan að sækja þetta forrit og gera upgrade gekk allt smooth, ekki spurður útí gömlu útgáfuna af Win7, né öllu crack / activation ruslinu sem ég er búinn að hlaða utaná þetta install. Fékk tölvupóst með kvittun og cd-key fyrir Win8 Pro.

þegar ég var búinn að sækja Windows 8 installerinn, ~3,73gb, bauð hann að gera update, skrifa geisladisk, búa til ISO mynd eða gera bootable drif. Notaði bara bootable drif og piece of cake, fresh install með format og öllu, alveg nákvemælega sama ferlið og með Win7, útlit og alles.

Í endann er ég ánægður að hafa loksins fjárfest í Windows stýrikerfi, tók smá tíma að gerast, en það hafðist :P

Re: Versla Windows 8 frá Microsoft.

Sent: Mán 10. Des 2012 15:43
af rapport
Er ekki að skilja afhverju einhver ætti að fara úr Win7.

Fyrir mér er sjöan svo golden á meðan áttan er potential golden shower...

And I don´t want to get peed on...

Re: Versla Windows 8 frá Microsoft.

Sent: Mán 10. Des 2012 15:54
af AntiTrust
rapport skrifaði:Er ekki að skilja afhverju einhver ætti að fara úr Win7.

Fyrir mér er sjöan svo golden á meðan áttan er potential golden shower...

And I don´t want to get peed on...


Betra OEM multimon support, awesome search function í gegnum Metro startscreenið, SkyDrive/Cloud integration, lygilegir startup/shutdown tímar m.v. W7 og önnur OS burtséð frá geymslumiðli, betri rafhlöðuending, refresh/reset OS möguleikar, Storage Spaces, File History (incremental backup basicly), Secure Boot, Hyper-V - svo fátt eitt sé nefnt ;)

Re: Versla Windows 8 frá Microsoft.

Sent: Mán 10. Des 2012 16:07
af Zorky
Passið ykkur ef þið eruð gamerar fullt af leikjum sem eru ekki supportaðir í win 8 og verður eflaust aldrei...GoG supportar bara 90% leikina á win 8 t.d.

Re: Versla Windows 8 frá Microsoft.

Sent: Mán 10. Des 2012 16:12
af hagur
rapport skrifaði:Er ekki að skilja afhverju einhver ætti að fara úr Win7.

Fyrir mér er sjöan svo golden á meðan áttan er potential golden shower...

And I don´t want to get peed on...


Það sem AntiTrust sagði + flottari Task manager og ribbon fídusinn í file exporer er osom. Svo er file-copy dialoginn líka loksins orðinn almennilegur með flottum stats og pause/resume.

Re: Versla Windows 8 frá Microsoft.

Sent: Mán 10. Des 2012 16:16
af KermitTheFrog
AntiTrust skrifaði:
rapport skrifaði:Er ekki að skilja afhverju einhver ætti að fara úr Win7.

Fyrir mér er sjöan svo golden á meðan áttan er potential golden shower...

And I don´t want to get peed on...


Betra OEM multimon support, awesome search function í gegnum Metro startscreenið, SkyDrive/Cloud integration, lygilegir startup/shutdown tímar m.v. W7 og önnur OS burtséð frá geymslumiðli, betri rafhlöðuending, refresh/reset OS möguleikar, Storage Spaces, File History (incremental backup basicly), Secure Boot, Hyper-V - svo fátt eitt sé nefnt ;)


+ Endurbættur Windows explorer með ribbon og endurbættur file transfer gluggi.