Síða 1 af 1
vantar smá hjálp
Sent: Mið 18. Ágú 2004 02:03
af Plee
Svo er mál með vexti að ég er með litla mynd af 2 lyklum í system tray sem kýs að kalla sig "Activate Windows" og gaf mér 30 daga til þess frá því að ég formattaði, en nei, ég set inn löglega cd-keyinn minn en það kemur fram að hann sé invalid. Kann einhver ykkar kæru lesenda að láta þetta dæmi hverfa, eins og t.d. með einhverri stillingu í windows? Og já, eftir þessa 30 daga þá ætlar windows víst að læsa sér eða eitthvað.
Um er að ræða Windows XP professional og hann fylgdi með tölvu bróður míns, og mig grunar sterklega að þetta sé út af því að við séum 2 með sama cd-key, en ég ætla svo sannarlega ekki að fara að spreða 40.000kr í annan svona disk(skipti frekar í linux
)
Sent: Mið 18. Ágú 2004 10:25
af gnarr
LOL það stendur stórum stöfum í EULA að þú meigir bara setja XP inn á einni tölvu. ef þú reynir að setja það upp á fleiri, þá geturu skemmt lykilinn, þannig að það verði aldrei hægt að setja XP upp aftur með honum..
Sent: Mið 18. Ágú 2004 11:08
af axyne
gnarr skrifaði:LOL það stendur stórum stöfum í EULA að þú meigir bara setja XP inn á einni tölvu. ef þú reynir að setja það upp á fleiri, þá geturu skemmt lykilinn, þannig að það verði aldrei hægt að setja XP upp aftur með honum..
jú það er hægt að nota lykilinn aftur.
en þú verður að hringja í umboð hjá microsoft, hérna á íslandi, þeir hringja til noregs eða einhver djöfulin og þeir síðan reactivata lykilinn.
bölvað vesen.
Sent: Mið 18. Ágú 2004 11:18
af Mysingur
ekkert þannig vesen hjá mér, ég er alltaf búinn að nota lykilinn sem fylgdi með fartölvunni hennar systur minna
Sent: Mið 18. Ágú 2004 11:35
af Snorrmund
Einhver sagði að maður ætti alltaf að activatea en aldrei að registera.. það ætti að "fixa" þetta...
Sent: Mið 18. Ágú 2004 17:17
af MezzUp
Snorrmund skrifaði:Einhver sagði að maður ætti alltaf að activatea en aldrei að registera.. það ætti að "fixa" þetta...
ég held að það registeri hvorteðer aldrei neinn
Sent: Mið 18. Ágú 2004 18:35
af gnarr
þegar maðru activate-ar, þá er verið að senda upplísingar um númerið á örgjörfanum, móðurborðinu og fleiri hlutum í tölvunni til microsoft. þetta er sían geymt hjá þeim og assignað við cd-keyinn. svo ef maður reynir að setja xp upp á tölvu sem er með meira en 3 vélbúnaðar breytingar síðan maður setti tölvuna upp síðast, þá á hann að disable-a sjálfann sig.
ég held að þetta sé alveg rétt hjá mér, samt ekki 100% viss.
Sent: Mið 18. Ágú 2004 19:03
af MezzUp
gnarr skrifaði:þegar maðru activate-ar, þá er verið að senda upplísingar um númerið á örgjörfanum, móðurborðinu og fleiri hlutum í tölvunni til microsoft. þetta er sían geymt hjá þeim og assignað við cd-keyinn. svo ef maður reynir að setja xp upp á tölvu sem er með meira en 3 vélbúnaðar breytingar síðan maður setti tölvuna upp síðast, þá á hann að disable-a sjálfann sig.
ég held að þetta sé alveg rétt hjá mér, samt ekki 100% viss.
jamms, hljómar rétt held ég,
Annars man ég bara að ef að maður breytir netkortinu getur maður breytt mun færri hlutum en ef að maður breytir einhverju öðru
Sent: Lau 21. Ágú 2004 03:37
af KinD^
getur allveg notað cdkeyinn í upsettningu en færð bar 30 daga til að finna eithvað sniðugt á netinu til að "activate" windowsið með einhvejru sniðugu tóli ... : )))
*flame flame flame - icaveman?*