Síða 1 af 1
Uppsetning á Linksys E4200 fyrir ljósleiðara.
Sent: Fös 24. Ágú 2012 22:28
af karvel
Er með CIsco Linksys E4200 Router og var að velta fyrir mér hvort það væri einfalt má að tengja hann á Vodafona ljósleiðara. Er að skipta út Bewan boxinu og var að spá í hvort það væri mikið mál að skipta svona út Routerum þ.e. nýjar skilgreiningar og IP tölur? Veit að ég þarf að byrja á að keyra "Set Up" diskinn sem fylgir Routerinum en er síðan framhaldið leikur einn? Vonandi eru einhverjir "Vaktarar" sem þekkja þetta og væri ég þeim ákaflega þakklátur ef þeir gætu leiðbeint "Fiktaranum"
Re: Uppsetning á Linksys E4200 fyrir ljósleiðara.
Sent: Fös 24. Ágú 2012 23:46
af starionturbo
Í rauninni er þetta "næstum" direct swap, til að vera safe ferðu á á front01.gagnaveita.is og loggar þig inn, ferð í Mín þjónusta, Sýna tækin mín, smella svo á "handvirkt skráð", og slá inn mac addressuna sem stendur á kassanum utanum cisco-inn.
Var að standa í svona uppsetningu í dag, nema bara "fresh" ljósleiðara tenging.
Re: Uppsetning á Linksys E4200 fyrir ljósleiðara.
Sent: Lau 25. Ágú 2012 00:46
af darkppl
var að tengja minn var bara að setja upp cisco forrit og svo pw fyrir þráðlaust net...
Re: Uppsetning á Linksys E4200 fyrir ljósleiðara.
Sent: Sun 26. Ágú 2012 01:25
af GrimurD
starionturbo skrifaði:Í rauninni er þetta "næstum" direct swap, til að vera safe ferðu á á front01.gagnaveita.is og loggar þig inn, ferð í Mín þjónusta, Sýna tækin mín, smella svo á "handvirkt skráð", og slá inn mac addressuna sem stendur á kassanum utanum cisco-inn.
Var að standa í svona uppsetningu í dag, nema bara "fresh" ljósleiðara tenging.
Þarf ekki einu sinni að gera þetta, bara tengja hann vil boxið. Fara inná einhverja heimasíðu í gegnum routerinn og þá færðu upp gagnaveitusíðuna. Skráir inn user og pass og hann skráist sjálfkrafa. Restartar svo ljósleiðaraboxi og router og bíður svo í nokkrar mín og þá er hann kominn á netið.
Re: Uppsetning á Linksys E4200 fyrir ljósleiðara.
Sent: Sun 26. Ágú 2012 22:12
af karvel
Ég held að ég hafi týnt plagginu með "username og password" sem ég fékk þegar Vodafone setti upp tenginguna í fyrra. Þarf ég að leita til Vodafone eða er það Gagnaveitan sem endursendir mér þessar upplýsingar?
Re: Uppsetning á Linksys E4200 fyrir ljósleiðara.
Sent: Sun 26. Ágú 2012 22:13
af GrimurD
karvel skrifaði:Ég held að ég hafi týnt plagginu með "username og password" sem ég fékk þegar Vodafone setti upp tenginguna í fyrra. Þarf ég að leita til Vodafone eða er það Gagnaveitan sem endursendir mér þessar upplýsingar?
Bæði fyrirtæki, tekur svona 10 sek fyrir starfsfólk Vodafone að fletta þessu upp og örugglega eins með Gagnaveituna.