Síða 1 af 2

hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Fös 24. Ágú 2012 17:06
af J1nX
jæja nú er ég að farað flytja um mánaðarmótin og þar er ljósleiðari í boði.. hvar er best að fá sér tengingu? ódýrara væri náttrlega betra, en góð þjónusta og stabíl tenging skiptir líka máli.

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Fös 24. Ágú 2012 17:18
af darkppl
er hjá vodafone er ansi góð tengingin ... ef þú ferð til vodafone reyndu að fá zhone routerinn í staðinn fyrir bewan ruslið ekki nema þú borgir meira fyrir cisco nema þú átt router...

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Fös 24. Ágú 2012 17:43
af GrimurD
darkppl skrifaði:er hjá vodafone er ansi góð tengingin ... ef þú ferð til vodafone reyndu að fá zhone routerinn í staðinn fyrir bewan ruslið ekki nema þú borgir meira fyrir cisco nema þú átt router...

Þýðing: Er hjá vodafone og það er ansi góð tenging. Ef þú ferð til vodafone skaltu reyna að fá zhone routerinn í staðin fyrir bewan ruslið, nema þú sért tilbúinn að borga 1800kr á mánuði fyrir Cisco routerinn. En ef þú átt router sem virkar með ljósleiðara þá er náttúrulega sniðugast að nota hann.

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Fös 24. Ágú 2012 17:46
af J1nX
en hvernig eru Hringdu? sýnist þegar ég skoða síðurnar hjá vodafone, símanum og hringdu að þeir séu langtum ódýrastir.. man eftir að hafa séð póst hérna sem var kvartað eitthvað yfir þeim, eru þau vandræði ennþá í gangi eða eru þeir komnir á gott ról?

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Fös 24. Ágú 2012 17:52
af Lexinn
Eins og er þá er ég bara nokkuð sáttur með tenginguna sem ég er með hjá Hringdu. Það var á tímabili sem

ég var við það að hætta hjá þeim, erlenda netið datt niður af og til, og sambandið til US var sama sem ekki neitt.

Eins og er hjá mér, þá er ég með þrusugott ping og oftar en ekki betra ping en flest allir þegar ég spila CS t.d.

Já, eins og er þá er ég nokkuð sáttur og eins og er myndi ég allveg mæla með þeim.

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Fös 24. Ágú 2012 19:10
af jonrh
Ef verð er forgangskrafa og þú ert í HÍ/HR þá geturðu fengið svokallaða ADSL leigulínu frá Vodafone á sirka 2-3þ á mánuði. Eins mikill hraði og símalínan ber, skólinn borgar niðurhal.

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Fös 24. Ágú 2012 19:16
af baratoff
Vodafone reynist mér lang best, Hringdu var stanslaust vesen og eingin þjónusta

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Fös 24. Ágú 2012 19:25
af hagur
Vodafone er awesome. Aldrei vesen, alltaf í lagi.

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Fös 24. Ágú 2012 19:47
af Gúrú
Vodafone er samt með alhrikalegasta ljósleiðararouter landsins í gangi núna.

Samt sem áður ekkert vesen. :D

Er mjög sáttur með útlandahraðann þegar að ég nota TBP.

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Fös 24. Ágú 2012 19:57
af audiophile
En hvernig er að spila leiki gegnum Vodafone? Hvað er t.d. latency til bretlands? Hef heyrt slæmar sögur um routing til útlanda hjá Vodafone. Ég er nefnilega með Ljósnet og það var að koma ljósleiðari í húsið og er að freistast. Spila slatta BF3 á breskum serverum og er að fá cirka 60ms á Ljósneti með svosem sæmilegt hitreg.

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Fös 24. Ágú 2012 20:08
af IL2
Hvað með Símafélagið?

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Fös 24. Ágú 2012 20:25
af GuðjónR
Hringdu.is .... færð flottan hraða, 250GB gagnamagn...og borgar kúk á kanel fyrir.

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Fös 24. Ágú 2012 21:34
af Storm
Ég er hjá hringdu.is með 250gb, sjónvarp og síma, get ekki hvartað yfir neinu eins og staðan er í dag.

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Fös 24. Ágú 2012 21:43
af Haffi
Hringdu fyrir allan peninginn!

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Fös 24. Ágú 2012 21:50
af audiophile
Já mér er bara farið að lítast vel á Hringdu fyrst þeir bjóða upp á sjónvarp líka. Er tengingin þeirra stabíl og allt gott um þá að segja? Ef svo panta ég hjá þeim eftir helgi.

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Fös 24. Ágú 2012 22:02
af GuðjónR
audiophile skrifaði:Já mér er bara farið að lítast vel á Hringdu fyrst þeir bjóða upp á sjónvarp líka. Er tengingin þeirra stabíl og allt gott um þá að segja? Ef svo panta ég hjá þeim eftir helgi.


Í dag er tengingin og þjónustan hjá þeim súper, ég gef þeim 10/10
Mæli með þeim við hvern sem er.

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Fös 24. Ágú 2012 22:18
af semper
Hringdu eru alveg að standa sig, bæði í verði og þjónustu. Fæ aldrei óvænta stór reikninga frá þeim.

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Fös 24. Ágú 2012 22:21
af GuðjónR
semper skrifaði:Hringdu eru alveg að standa sig, bæði í verði og þjónustu. Fæ aldrei óvænta stór reikninga frá þeim.

Sammála, það er engin áhætta að prófa þjónustuna þeirra, ef ykkur líkar ekki þá er alltaf hægt að fara eitthvað annað.

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Fös 24. Ágú 2012 22:43
af J1nX
já er farinn að hallast að því.. vitiði hvað það tekur langan tíma eftir að maður pantar tenginguna að maður sé nettengdur?

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Lau 25. Ágú 2012 01:03
af darkppl
audiophile skrifaði:En hvernig er að spila leiki gegnum Vodafone? Hvað er t.d. latency til bretlands? Hef heyrt slæmar sögur um routing til útlanda hjá Vodafone. Ég er nefnilega með Ljósnet og það var að koma ljósleiðari í húsið og er að freistast. Spila slatta BF3 á breskum serverum og er að fá cirka 60ms á Ljósneti með svosem sæmilegt hitreg.

það hefur ekkert vesen með ping hjá mér en það var hjá hringdu vissi ég en það lagaðist það er allanvegana það síðasta sem ég vissi af...
og ping getur verið frá 54-71 fer eftir hvar serverinn er í bretlandi...

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Lau 25. Ágú 2012 10:29
af starionturbo
Ég er hjá Vodafone og hef aldrei lent í vandræðum.

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Lau 25. Ágú 2012 11:11
af GrimurD
Gúrú skrifaði:Vodafone er samt með alhrikalegasta ljósleiðararouter landsins í gangi núna.

Samt sem áður ekkert vesen. :D

Er mjög sáttur með útlandahraðann þegar að ég nota TBP.

Þeir eru komnir með einn nýjan Cisco E4200 sem kostar 1800kr á mánuði og ef þú nöldrar nógu mikið er hægt að fá Zhone routerinn sem er að fara í gegnum loka prófanir núna.

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Mið 29. Ágú 2012 16:37
af J1nX
var að tala við þá hjá Hringdu og panta ljósleiðara hjá þeim, hentugt að maður geti bara talað við fulltrúa á síðunni hjá þeim og þeir hringi svo bara í mann :P
þannig það má læsa þessum þræði :D

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Mið 29. Ágú 2012 18:10
af capteinninn
jonrh skrifaði:Ef verð er forgangskrafa og þú ert í HÍ/HR þá geturðu fengið svokallaða ADSL leigulínu frá Vodafone á sirka 2-3þ á mánuði. Eins mikill hraði og símalínan ber, skólinn borgar niðurhal.


Hvernig virkar þetta? Ef ég er að spila leiki á netinu og downloada hjá Steam o.s.frv. fer þá HÍ að röfla í mér yfir því ?

Re: hvaða nettengingu á maður að fá sér?

Sent: Mið 29. Ágú 2012 18:43
af J1nX
hannesstef skrifaði:
jonrh skrifaði:Ef verð er forgangskrafa og þú ert í HÍ/HR þá geturðu fengið svokallaða ADSL leigulínu frá Vodafone á sirka 2-3þ á mánuði. Eins mikill hraði og símalínan ber, skólinn borgar niðurhal.


Hvernig virkar þetta? Ef ég er að spila leiki á netinu og downloada hjá Steam o.s.frv. fer þá HÍ að röfla í mér yfir því ?


ekki lenti ég í því.. horfi mikið á starcraft streams, og spila leiki á netinu.. þurfti meiraðsegja að dla starcraft 2, diablo3 og battlefield eftir að ég formattaði tölvuna ásamt því að halda áfram að horfa mikið á streams, og ég fékk enga kvörtun yfir því