Síða 1 af 1
Thomson ST585v6 - er nokkuð hægt að opna port??
Sent: Mið 15. Ágú 2012 18:45
af Danni V8
Ég er að verða geðveikur á þessum router. Ég er búinn að stilla hann fram og til baka. Stilla portin alveg eins og það á að gera, assigne-a internet ip tölunni á mína tölvu, slökkva á firewall og vírusvörn hjá mér og allt, en samt opnar hann ekki port 3074 og 27000-27050 sem þarf fyrir MW3!
Eru þessir routerar bara drasl og ekkert hægt að eiga við þá ef það eru fleyri en ein tölva tengdar í hann???
Re: Thomson ST585v6 - er nokkuð hægt að opna port??
Sent: Mið 15. Ágú 2012 19:11
af AntiTrust
Hvað meinaru assigna Internet IP tölunni á þína tölvu? Þú forwardar porti alltaf á innri ip tölu?
Re: Thomson ST585v6 - er nokkuð hægt að opna port??
Sent: Fim 16. Ágú 2012 01:35
af Danni V8
AntiTrust skrifaði:Hvað meinaru assigna Internet IP tölunni á þína tölvu? Þú forwardar porti alltaf á innri ip tölu?
Það er fídus í þessum routerum sem er útskýrður svona: "Assign the public IP address of a connection to a device" þá velur maður hvaða tölva á að fá "public" ip addressuna, gerir síðan ipconfig /release og ipconfig /renew í cmd og þegar allt er komið inn aftur þá er ein tölvan með IP tölu nettengarinnar (212.30.***.***), í staðinn fyrir network IP tölu (192.168.1.***).
Örugglega til eitthvað fancy nafn yfir þetta sem ég kann ekki
Re: Thomson ST585v6 - er nokkuð hægt að opna port??
Sent: Fim 16. Ágú 2012 05:26
af Haxdal
Danni V8 skrifaði:AntiTrust skrifaði:Hvað meinaru assigna Internet IP tölunni á þína tölvu? Þú forwardar porti alltaf á innri ip tölu?
Það er fídus í þessum routerum sem er útskýrður svona: "Assign the public IP address of a connection to a device" þá velur maður hvaða tölva á að fá "public" ip addressuna, gerir síðan ipconfig /release og ipconfig /renew í cmd og þegar allt er komið inn aftur þá er ein tölvan með IP tölu nettengarinnar (212.30.***.***), í staðinn fyrir network IP tölu (192.168.1.***).
Örugglega til eitthvað fancy nafn yfir þetta sem ég kann ekki
Ef það virkaði ekki að stilla DMZ (algengara nafn yfir þennan fídus) þá er vandamálið líklegast eitthvað í tölvunni sem þú ert að reyna að senda á.
Það er mjög auðvelt að stilla port forwarding á Speedtouch 585,
http://www.wikihow.com/Set-Up-Port-Forwarding-on-a-SpeedTouch-585-v6
Re: Thomson ST585v6 - er nokkuð hægt að opna port??
Sent: Fös 17. Ágú 2012 06:34
af Danni V8
Haxdal skrifaði:Danni V8 skrifaði:AntiTrust skrifaði:Hvað meinaru assigna Internet IP tölunni á þína tölvu? Þú forwardar porti alltaf á innri ip tölu?
Það er fídus í þessum routerum sem er útskýrður svona: "Assign the public IP address of a connection to a device" þá velur maður hvaða tölva á að fá "public" ip addressuna, gerir síðan ipconfig /release og ipconfig /renew í cmd og þegar allt er komið inn aftur þá er ein tölvan með IP tölu nettengarinnar (212.30.***.***), í staðinn fyrir network IP tölu (192.168.1.***).
Örugglega til eitthvað fancy nafn yfir þetta sem ég kann ekki
Ef það virkaði ekki að stilla DMZ (algengara nafn yfir þennan fídus) þá er vandamálið líklegast eitthvað í tölvunni sem þú ert að reyna að senda á.
Það er mjög auðvelt að stilla port forwarding á Speedtouch 585,
http://www.wikihow.com/Set-Up-Port-Forwarding-on-a-SpeedTouch-585-v6
Alveg búinn að marg-fara í gegnum svona port forwarding ferli. Þetta virkar vel á routernum heima hjá mér þar sem mín tölva og PS3 tölvan eru þær einu sem eru tengdar í hann. En þar sem ég var á Lani um daginn þá voru 2 PS3 tölvur (WiFi) og 5 PC tölvur (Wired) tengdar, tvær af þeim gegnum switch (ekki mín samt). Það var bara ekki séns að opna nein port fyrir neina tölvu. Slökkti á öllum mögulegum vörnum í tölvunum, virkaði ekkert.
Endaði með að við slökktum bara á UPnP aftur og héldum áfram í BF3
Re: Thomson ST585v6 - er nokkuð hægt að opna port??
Sent: Fös 17. Ágú 2012 12:34
af Some0ne
Ef hann er með firmware frá símanum þá er það gallaðra en allt, náðu bara í einhvern nýrri router.
Re: Thomson ST585v6 - er nokkuð hægt að opna port??
Sent: Fös 17. Ágú 2012 13:48
af Bioeight
Ég var að reyna að opna port á svona router áður fyrir Modern Warfare 3 og það virkaði bara ekki neitt. Í gær var ég að reyna að opna ports fyrir Fifa 12 og var að lenda í svipuðu veseni. Væri frábært ef einhver hérna hefði lausn á þessu. Routerinn sem ég var að reyna að opna kemur frá Tal.
Re: Thomson ST585v6 - er nokkuð hægt að opna port??
Sent: Fös 17. Ágú 2012 13:57
af Some0ne
Getiði ekki beðið um aðra routera bara?
Re: Thomson ST585v6 - er nokkuð hægt að opna port??
Sent: Fös 17. Ágú 2012 16:19
af Danni V8
Seinast þegar ég bað um nýjan router var mér sagt að ferlið væri orðið þannig að ég myndi segja þeim hvað vandamálið væri og þau myndu reyna að laga það sín megin frá. Ef það virkaði ekki þá ætti ég að hringja aftur og þau myndu prófa aðrar stillingar. Ef það virkaði ekki heldur myndu þau senda tæknimann til mín sem myndi kíkja á routerinn til að athuga hvort hann gæti lagað vandamálið, ef ekki, þá myndi ég fá nýjan router.
Svona var þetta að minnsta kosti hjá Símanum, þegar ég hringdi seinast útaf svona veseni og það er ekki langt síðan.