Síða 1 af 2
Fleiri íslenskir linux speglar.
Sent: Fös 30. Júl 2004 02:46
af opinkerfi
Sælir nixarar.
Var að finna fleiri íslenska spegla með linux fyrir utan RHNET.
Ljoshradi -
http://www.ljoshradi.net
Binary -
http://www.binary.is
Endilega skellið hingað inn ef þið vitið um fleiri spegla með Lnx distróum.
Sent: Fös 30. Júl 2004 07:37
af elv
Þakka fyrir..hafði aldrei heyrt um ljóshraða
Sent: Fös 30. Júl 2004 10:29
af Voffinn
Binary hafa verið duglegir en ég sé ekki hvað ljoshradi.net hefur yfir rhnet, þar sem allt þetta sem er hjá þeim er á rhnet.
Það sem okkur virkilega vantar er einhver sem getur skaffað aðgang að anonymous ftpd á 100mbit+ og er til í að hýsa iso myndir sem honum yrði sendar. Því það er til fullt af skemmtilegum distróum og litlum livecd'um sem hafa hver um sig sérstakan 'hæfileika'. Ég væri t.d. alveg til í að geta gengið að
knoppix-std eða
slax þegar ég vildi.
Það er endalaust af distróum þarna úti og auðvitað ekkert hægt að mirrora þau öll, en að hafa eitthvað svona virkt portal sem myndi koma og kynna hvert distró fyrir sig. Mér finnst að linux.is eigi að fylla uppí það bil. Linux.is var reyndar löngu dautt áður en ég byrjaði að nota linux, það er fullt af flottu efni þar, það þarf bara að taka það og uppfæra það sem á við, fá góða penna til að skrifa fréttir og review öðru hverju, hugsanlega hjálparforum þar sem að fólk getur komið og hugsanlega fengið leiðbeiningar um hvað það á að gera.
Möguleikarnir eru endalausir, ef áhuginn og samvinna næst.
Sent: Fös 30. Júl 2004 12:57
af Pandemic
Rhnet er 155mb ljósleiðari
Sent: Fös 30. Júl 2004 20:04
af halanegri
Pandemic skrifaði:Rhnet er 155mb ljósleiðari
Your point being?
Btw,
http://www.ljoshradi.net er ekki að virka...
Sent: Fös 30. Júl 2004 22:25
af gumol
Pandemic skrifaði:Rhnet er 155mb ljósleiðari
lol, hvar heyrðiru það? (eða ertu kanski bara að meina ftp.rhnet.is serverinn)
Sent: Lau 31. Júl 2004 00:26
af Pandemic
Það var frétt á vefnum hjá þeim á gamla vefnum en hún er horfin vegna endurnýjunar vefsins annars er þetta stærsta nettenging til útlanda og innanlands á landinu
Sent: Lau 31. Júl 2004 01:24
af halanegri
Pandemic skrifaði:Það var frétt á vefnum hjá þeim á gamla vefnum en hún er horfin vegna endurnýjunar vefsins annars er þetta stærsta nettenging til útlanda og innanlands á landinu
Ha? Er RHnet stærsta nettenging "til útlanda og innanlands á landinu" ?
RHnet er Rannsókna og háskólanet Íslands.
Sent: Lau 31. Júl 2004 06:02
af Revenant
Í höfuðstöðvum RHnet í Tæknigarði er tenging RHnet við NORDUNet (STM-1 - 155Mbs). Þeirri tengingu er stjórnað af Cisco 7206-G1 beini sem sér um BGP samskipti við NORDUnet. Varasamband RHnet við NORDUnet er tenging um Vestmannaeyjar til TeleGlobe í New-York (155Mbs-STM-1). Þetta samband er einungis virkjað ef bilun verður í aðalsambandi til Danmerkur. Varasambandi er stjórnað af Cisco 7206-G1 staðsettum í Vestmannaeyjum.
Annar 7206 beinir stjórnar 1Gbs tengingu við RIX (skiptipunkt innlendrar internet umferðar). Um það samband fara samskipti RHnet við innlendar netþjónustur
Tekið af vef
rhnet.is (mynd einnig af þessu þarna).
Annars er ég að spegla
Slackware 10 iso myndirnar á vélinni minn þar sem þær voru/eru ekki á rhnet speglinum.
Sent: Lau 31. Júl 2004 18:50
af gumol
halanegri skrifaði:RHnet er Rannsókna og háskólanet Íslands.
Nei nei, hvaða fáfræði er þetta, það er ljósleiðari!
Sent: Sun 01. Ágú 2004 03:31
af kiddisig
Rhnet er á 1Gbit tengingu innanlands.
Sent: Sun 01. Ágú 2004 12:01
af ibs
Já ég væri til í að sjá
Damn Small Linux sem er nú reyndar bara 50 mb speglað á RHnet eða einhverjum öðrum spegli.
Sent: Sun 01. Ágú 2004 13:27
af elv
ibs skrifaði:Já ég væri til í að sjá
Damn Small Linux sem er nú reyndar bara 50 mb speglað á RHnet eða einhverjum öðrum spegli.
Verð að vera sammála þessu...algjört snilldar distro...en maður getur ekki alltaf verið að sækja nýjustu útgáfu
Sent: Sun 01. Ágú 2004 15:10
af Zaphod
ibs skrifaði:Já ég væri til í að sjá
Damn Small Linux sem er nú reyndar bara 50 mb speglað á RHnet eða einhverjum öðrum spegli.
Jamm ég notaði þetta , alveg magnað ...
Sent: Mið 04. Ágú 2004 12:12
af MezzUp
BSD er nú ekki Linux distró frekar heldur en að Linux er Unix distró
Sent: Þri 17. Ágú 2004 11:03
af tms
ibs skrifaði:Já ég væri til í að sjá
Damn Small Linux sem er nú reyndar bara 50 mb speglað á RHnet eða einhverjum öðrum spegli.
http://static.hugi.is/linux/
Sent: Þri 17. Ágú 2004 14:08
af Voffinn
Mér finnst nú ekki mikið koma til þegar hugi.is slysast til að spegla eitt eða tvö distró.
Sent: Þri 17. Ágú 2004 16:22
af elv
Voffinn skrifaði:Mér finnst nú ekki mikið koma til þegar hugi.is slysast til að spegla eitt eða tvö distró.
ehehe betra en ekkert er það ekki
Sent: Mið 18. Ágú 2004 17:35
af Voffinn
Sent: Þri 24. Ágú 2004 01:59
af opinkerfi
halanegri skrifaði:Pandemic skrifaði:Rhnet er 155mb ljósleiðari
Your point being?
Btw,
http://www.ljoshradi.net er ekki að virka...
BTW...sé ekki betur en að
http://www.ljoshradi.net sé að virka....skil ekki alveg þetta comment hjá þér!
Sent: Þri 24. Ágú 2004 13:15
af MezzUp
opinkerfi skrifaði:halanegri skrifaði:Pandemic skrifaði:Rhnet er 155mb ljósleiðari
Your point being?
Btw,
http://www.ljoshradi.net er ekki að virka...
BTW...sé ekki betur en að
http://www.ljoshradi.net sé að virka....skil ekki alveg þetta comment hjá þér!
25 dagar síðan hann póstaðu þessu
Kominn betri spegill
Sent: Þri 23. Nóv 2004 02:05
af B31N1R
Sent: Lau 23. Des 2006 20:42
af elv
Afsakið fyrir að vekja þennan þráð upp frá dauðum.
En því miður eru allir þessir linkar dauðir nema ljóshraði, en þar eru enginn distro lengur
Sent: Lau 23. Des 2006 21:21
af Heliowin
ftp://ftp.rhnet.is/pub hefur nokkur distro. Þetta er annars frekar slappt úrval af aðgengilegum distroum á landinu og mér finst það skömm.
Sent: Lau 23. Des 2006 21:33
af elv
Er hjartanlega sammála.
static.hugi.is hefur líka nokkur....Mandriva Free 2007, OpenSuse 10.1ALpha!!!!! og Damnsmall 1,5 ....nýjasta er ekki nema 3,2rc1
Sorglegt ástand....hmmmm kannski að tékka hvað Guðjóni finnst um að hýsa, sakar víst ekki að spyrja