Síða 1 af 1

Ljósleiðarabox frá Gagnaveitunni

Sent: Lau 28. Júl 2012 16:35
af Rektor
Sælir spjallverjar,

Langaði að forvitnast hvort einhver geti svarað spurningum um nýju boxin frá Gagnaveitunni.

Á því eru sjö port - fjögur merkt eth1 - eth4, eitt merkt GIGA og tvö merkt ph1 og ph2 fyrir síma væntanlega.

Það sem mig vantar að vita er hvaðan Netið er tekið í routerinn og hvaðan TV er tekið? Hver er munurinn á GIGA og eth portunum?

Einnig eru tvenn USB port ofaná tækinu. Er eitthvað point í þeim?

Re: Ljósleiðarabox frá Gagnaveitunni

Sent: Lau 28. Júl 2012 16:44
af AntiTrust
Gigabit portið verður væntanlega virkjað þegar tengingarnar fara yfir 100Mbit, grunar að eth portin á boxinu séu bara 100Mbit, og koma þá til með að vera flöskuháls yfir í routerinn.

Venjulega gæti ég athugað hvaða port er notað fyrir box - router en ég er með 35kg labrador sofandi ofaná mér, svo það verður e-r annar að covera þá sp.

Re: Ljósleiðarabox frá Gagnaveitunni

Sent: Lau 28. Júl 2012 16:45
af hfwf
AntiTrust skrifaði:Gigabit portið verður væntanlega virkjað þegar tengingarnar fara yfir 100Mbit, grunar að eth portin á boxinu séu bara 100Mbit.

Venjulega gæti ég athugað hvaða port er notað fyrir box - router en ég er með 35kg labrador sofandi ofaná mér, svo það verður e-r annar að covera þá sp.
:happy

Re: Ljósleiðarabox frá Gagnaveitunni

Sent: Lau 28. Júl 2012 16:46
af Rektor
Takk fyrir þetta, ég fæ reyndar access við Netið bæði um GIGA portið og eth1 svo GIGA er amk ekki óvirkt...

Re: Ljósleiðarabox frá Gagnaveitunni

Sent: Lau 28. Júl 2012 16:57
af hfwf
SKemmtielgt annars að vita að þeir eru farnir að setja upp box fyrir gig-axx. maður er á 50mb tengingu og það er bara orðið of slow :D þetta á heima í fyrstaheimsþráðinum =D>

Re: Ljósleiðarabox frá Gagnaveitunni

Sent: Lau 28. Júl 2012 17:12
af binnist
eth 1 og 2 eru sett upp fyrir net og eth 3 eða 4 eru fyrir tv.

Re: Ljósleiðarabox frá Gagnaveitunni

Sent: Lau 28. Júl 2012 22:48
af GrimurD
binnist skrifaði:eth 1 og 2 eru sett upp fyrir net og eth 3 eða 4 eru fyrir tv.

gigabit portið er líka stillt fyrir net, er með routerinn minn tengdann í það. En já 1 og 2 fyrir net á öllum boxum, nr 3 er fyrir tv og á þeim boxum sem eru með 4 tengi þá er nr 4 líka fyrir tv.

Og öll portin eru líka 100mbit nema ofc gigabit tengið.