Síða 1 af 1

3G / Sumarbústaður

Sent: Fim 26. Júl 2012 08:52
af bjartur00
Sælir vaktarar.

Við félagarnir ætlum að halda smá LAN upp í sumarbústað um helgina. Við höfðum hugsað okkur að kaupa 3G lykla.
Hvar er best að kaupa þá og gera samning, á sem lægstu verði yfir eina helgi?

Væri frábært að fá svör sem fyrst þ.s. við förum á mrg.

Bkv.

Re: 3G / Sumarbústaður

Sent: Fim 26. Júl 2012 09:58
af ponzer
Sýnist TAL bjóða best og þeir eru líka að nota 3G kerfið hjá Simanum sem er mikið betra en hjá Nova/Voda

http://tal.is/Einstaklingar/INTERNET/Netlykill.aspx

En þú þarft þá líklega að kaupa lykilinn sér eða vera með 6mán samning

Re: 3G / Sumarbústaður

Sent: Fim 26. Júl 2012 10:03
af akarnid
Reddið ykkur svokölluðum 3G Router (https://vefverslun.siminn.is/vorur/3g_n ... 0a_router/) , etv helst til dýr, en sambandið verður mun stöðugra á svona tæki en 3G lykli.

Re: 3G / Sumarbústaður

Sent: Fim 26. Júl 2012 11:16
af bjartur00
ponzer skrifaði:Sýnist TAL bjóða best og þeir eru líka að nota 3G kerfið hjá Simanum sem er mikið betra en hjá Nova/Voda

http://tal.is/Einstaklingar/INTERNET/Netlykill.aspx

En þú þarft þá líklega að kaupa lykilinn sér eða vera með 6mán samning



Ég sé að hann sendir frá sér WiFi tengingu. Hvernig tengjum við þá sem eru ekki með þráðlaust netkort?

Re: 3G / Sumarbústaður

Sent: Fim 26. Júl 2012 11:40
af AntiTrust
Einfaldast væri að redda einum af þessum Bewan routerum sem Vodafone eru með, smella 3G lykli í hann og þá ertu kominn með LAN tengjanlegan router og WiFi.

Re: 3G / Sumarbústaður

Sent: Fim 26. Júl 2012 13:50
af GrimurD
AntiTrust skrifaði:Einfaldast væri að redda einum af þessum Bewan routerum sem Vodafone eru með, smella 3G lykli í hann og þá ertu kominn með LAN tengjanlegan router og WiFi.

Þarft samt 3g lykil frá voda til að það sé hægt.

Re: 3G / Sumarbústaður

Sent: Fim 26. Júl 2012 14:23
af krat
mæli ekki með að allir fari á sama 3g router/lykill

ef þið eruð 6 saman mæli ég með að kaupa 3 lykla share'a internet tenginuni í næstu vél með ethernet kapli.

Þannig að 2 nýta sér 1 stk saman.

:D

Re: 3G / Sumarbústaður

Sent: Fim 26. Júl 2012 16:09
af Halli25
Getið líka fengið ykkur svona og pung:
http://tl.is/vara/24684

Re: 3G / Sumarbústaður

Sent: Fös 27. Júl 2012 01:00
af bjartur00
Takk kærlega fyrir skjót svör. Tók 3G routerinn hjá símanum og tengdi við switch. Virkar vel hérna í bænum. Nú er bara að bíða og sjá hvernig það virkar upp í bústað.
Læt ykkur kannski vita hér :)

Takk aftur!

Re: 3G / Sumarbústaður

Sent: Fös 27. Júl 2012 06:45
af Black
eða bara fá ykkur switch og taka alvöru lan á þetta.. ekki einhvað online kjaftæði :x