Síða 1 af 1

Asp vs. php

Sent: Sun 23. Mar 2003 20:19
af Voffinn
Jæja...núna er ég kominn með html svona sirka á hreint :D.
Og ætli mar haldi ekki áfram... en getur einhver bent mér á hver sé munurinn á asp og php og hvort sé betra að læra á... og hvar ég geti fundið einhverjar svona leiðbeiningar :8)

Sent: Sun 23. Mar 2003 20:28
af Castrate
Ég hef ekki hundsvit á þessu en ég held að php sé betra og meira notað heldur en asp. En eins og ég sagði ég veit ekkert um þessi 2 mál. Þetta forum er tildæmis gert með php i think.

Sent: Sun 23. Mar 2003 22:29
af MezzUp
Jamms, þetta forum er gert í PHP enda er það eina vitið í dag :)
T.d. PHP er open-source en ASP ekki. Svo held ég að það séu mun fleiri PHP tutorial'ar á netinu heldur en ASP. Svo er ASP frá Microsoft :twisted:

ps. <held ég>

Sent: Mán 24. Mar 2003 00:24
af Castrate
hmm. það þyrfti að fá einhvern hérna sem veit meira um svona mál...forritara kannski? :?

Sent: Fim 29. Maí 2003 12:11
af Gothiatek
Sjálfur kann ég ekki ASP og get því ekki sagt mikið til um muninn á ASP og PHP....en ég segi hiklaust PHP PHP PHP PHP PHP PHP.
Eins og kom fram er PHP open source, það er til fullt af tutorials og kóða dæmum á netinu. Einnig er mun "auðveldara og ódýrara" að geyma PHP síður heldur en ASP með því að nota t.d. MySQL og Apache...sem eru bæði open source og ókeypis.

Því mæli ég sterklega með því að þú skoðir PHP, það rúlar :8)

Sent: Fim 29. Maí 2003 12:38
af Castrate
ég hef sjálfur verið að fikta í php aðeins get ekki sagt annað en þetta er snilldar mál er búin að setja upp php fréttakerfi fyrir nokkrar síður mjög þægilegt að nota þetta :D

Re: Asp vs. php

Sent: Fim 05. Jún 2003 16:30
af Merlin
Allt spurning um hvað þú vilt læra. Ég hætti mér ekki út í hvort er betra... Hefur eflaust bæði sína kosti og galla.

Ég hef forritað í PHP í mörg ár og kann ágætlega við það, syntaxinn er einfaldur og það eru endalausir möguleikar, nóg af leiðbeiningum á netinu og svo auðvitað þarftu ekki að kaupa Windows server til að meiga keyra þetta á netinu (já, ég veit að margir ræna þessu bara).

Svo er þetta líka spurning um hýsingu. Ef þú ert með vefsvæði á IIS (Windows) þjóni þá er þægilegra að nota ASP. Ef þú ert með Apache (Windows/Linux) þá er PHP þægilegri kostur.

Svo í sambandi við gagnagrunna, þá er MySQL ókeypis möguleiki og einnig vel documentað með PHP. MSSQL er miklu stærra fyrirbæri og auðvitað kostar helling líka.

Fyrir fátæka fiktara held ég að PHP/MySQL sé málið.

Voffinn skrifaði:Jæja...núna er ég kominn með html svona sirka á hreint :D.
Og ætli mar haldi ekki áfram... en getur einhver bent mér á hver sé munurinn á asp og php og hvort sé betra að læra á... og hvar ég geti fundið einhverjar svona leiðbeiningar :8)

Sent: Þri 09. Sep 2003 23:02
af valdiorn
ég nota asp en kann ekki mikið á það. ég kann ekki rass í bala í php (kannski maður ætti að breyta því?).
ASP reynist þokkalega vel með það sem ég er að gera, en eins og ég sagði, þá kann ég ekki mikið og er bara að nota þetta í einfalda access databeisa og þannig dót.
ég held að það væri gáfulegra að læra fyrst php, mér skilst að það bjóði upp á betri möguleika + maður getur keyrt php á apache sem er open source og ókeypis

Sent: Fim 11. Sep 2003 11:24
af Lakio
PHP

Sent: Fim 11. Sep 2003 12:52
af Voffinn
úúú, þú ert svo 1337 Lakio með alla þessa liti og stærðir á stöfum...

Sent: Fim 11. Sep 2003 16:46
af tms
Voffinn skrifaði:úúú, þú ert svo 1337 Lakio með alla þessa liti og stærðir á stöfum...

Voffi er þetta eitthvað mál?
ASP = Microsoft
PHP = Open source :wink:

Sent: Mán 10. Nóv 2003 09:31
af Fox
Myndi velja ASP.
Það á eftir að vera mjög ríkjandi þegar .net hefur náð almennilegri fótfestu.

Sent: Mán 10. Nóv 2003 14:55
af gnarr
asp = kostar
php = kostar ekki

Sent: Mán 10. Nóv 2003 15:52
af gumol
Næst þegar voffinn gerir grín að einhverjum fyrir að vita ekki neitt ætla ég að grafa upp alla gamla pósta sem ég finn eftir hann :D

Sent: Þri 11. Nóv 2003 13:26
af Fox
Voða finnst mér opensource menn alltaf vera harðir á því, að ef einhvað kostar þá borgar það sig ekki.

Sent: Þri 11. Nóv 2003 15:49
af Gothiatek
Þetta er bara spurning um að nota t.d. Linux, Apache, PHP og MySQL sem er mjög fín blanda og ókeypis heldur en að borga fleiri hundruð þúsund fyrir sambærilega vöru :roll:

Sent: Fös 26. Des 2003 20:29
af Friction
Ég segi að þú ættir að læra bæði ef þú ætlar að leggja þetta fyrir þig :)

Sent: Fös 26. Des 2003 21:08
af MezzUp
Friction skrifaði:Ég segi að þú ættir að læra bæði ef þú ætlar að leggja þetta fyrir þig :)

hmm, er það ekki óþarfi? frekar að vera tvöfalt betri í öðru hvoru

Sent: Fös 26. Des 2003 21:39
af Voffinn
Þessi þráður ætlar ekki að drepast. :roll:

Re: Asp vs. php

Sent: Mið 03. Mar 2004 21:51
af smarig88
Voffinn skrifaði:Jæja...núna er ég kominn með html svona sirka á hreint :D.
Og ætli mar haldi ekki áfram... en getur einhver bent mér á hver sé munurinn á asp og php og hvort sé betra að læra á... og hvar ég geti fundið einhverjar svona leiðbeiningar :8)


Ég persónulega valdi PHP, ástæða? Miklu auðveldara að finna tutorials á netinu og svoleiðis.
Ég hef ekkert á móti ASP þótt það sé frá Microsoft.

En mín skoðun er að þú ættir að læra PHP, MySQL og fá þér Apache server. Ef þú ætlar að keyra hann á windows þá mæli ég með Apache 2 Triad, mjög þægilegur, ekki frá Apache group. Hann er gerður fyrir Windows og það er uppsett MySQL, PHP, ASP, Perl, Python, PHP-Nuke vefumsjónarkerfið og margt margt fleira. http://apache2triad.sourceforge.net

Sent: Mið 03. Mar 2004 23:33
af MezzUp
Voffinn skrifaði:Þessi þráður ætlar ekki að drepast. :roll:

truer words have not been spoken :D

Re: Asp vs. php

Sent: Mið 03. Mar 2004 23:51
af Voffinn
smarig88 skrifaði:
Voffinn skrifaði:Jæja...núna er ég kominn með html svona sirka á hreint :D.
Og ætli mar haldi ekki áfram... en getur einhver bent mér á hver sé munurinn á asp og php og hvort sé betra að læra á... og hvar ég geti fundið einhverjar svona leiðbeiningar :8)


Ég persónulega valdi PHP, ástæða? Miklu auðveldara að finna tutorials á netinu og svoleiðis.
Ég hef ekkert á móti ASP þótt það sé frá Microsoft.

En mín skoðun er að þú ættir að læra PHP, MySQL og fá þér Apache server. Ef þú ætlar að keyra hann á windows þá mæli ég með Apache 2 Triad, mjög þægilegur, ekki frá Apache group. Hann er gerður fyrir Windows og það er uppsett MySQL, PHP, ASP, Perl, Python, PHP-Nuke vefumsjónarkerfið og margt margt fleira. http://apache2triad.sourceforge.net


Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því að ég skrifaði þetta bréf og er ég núna 100% keyrandi á linux hérna heima og myndi sennilega læra php ef ég færi í þetta núna.

Þakka álitið.

MezzUp: Þokkalega ;)

Sent: Fim 04. Mar 2004 04:54
af Jakob
Thread LOCKED