Síða 1 af 1
Tónlistarspilari
Sent: Lau 22. Mar 2003 17:50
af Voffinn
Nú nota ég "Playcenter 3" sem fylgir með audigy hljóðkortinu mín...málið er að hann er meingallaður andskotans drasl. ég get t.d. ekki spilað cs meðan ég hlusta á tónlist í honum. Hann er frekar stór....
Þannig ða ég er að leita að öðrum...spilara sem spilar cd & mp3+hugsanlega ogg... Ekki Winamp 2.x (virkar ekki 5 rása hljóð í honum) Windows Media Player (já nei takk) Winamp 3.x (Meingallaðri en playcenter og mikið verri í alla staði).
Vitiði um einhverja spilara
Sent: Lau 22. Mar 2003 21:36
af MezzUp
Úff, mar er ekki lengi að redda uppáhalds Hvuttanum sínum
Smelltu hérna
Sent: Lau 22. Mar 2003 23:55
af Voffinn
úje...takk
Ertu búin að sjá nýju "ímyndina"
Sent: Sun 23. Mar 2003 00:01
af Voffinn
ég hefði nú átt að prufa þetta áður en ég sagði úje
Það er það sama eins og áður...kmr alltaf eitthvað svona suð með...
Sent: Sun 23. Mar 2003 10:12
af MezzUp
Jamms, flott mynd
Þú getur prufað
þetta
Sent: Sun 23. Mar 2003 11:08
af Voffinn
:crash
Ég fékk suðið til ða fara...en miðju hátalarinn er alveg dauður...mér sýnist þetta bara stefna í stórt vandamál...
Sent: Sun 23. Mar 2003 11:10
af Voffinn
nei, ég leiðrétti mig...ég fékk suðið til að minnka...ekki fara
Sent: Sun 23. Mar 2003 12:23
af MezzUp
þú veist að það er hægt að smella á "Breyta" þegar þú þarft að leiðrétta þig
Sent: Sun 23. Mar 2003 13:52
af Voffinn
gleymdi því
en er enginn þarna úti sem veit um eitthvða forrit sem ég get notað ?!?!?
Sent: Sun 23. Mar 2003 14:16
af gumol
Hvað er að Windows Media Player 9.0
Sent: Sun 23. Mar 2003 15:16
af Voffinn
bara pirrandi rusl sem er ekkert nema einhverjir aukafídusar sem eyða utanlandsbandvíddini minni...alltof stórt líka og klunnanlegt....winamp 2.x er fínt fyrir utan að þá virkar center hátalarinn ekki.
Sent: Mán 24. Mar 2003 20:16
af Voffinn
veit enginn hvað ég á að gera ?
Sent: Þri 25. Mar 2003 00:07
af Jakob
Nei
Ég nota heyrnartól 99.9% .... Þó svo að ég sé með 5x hátalarakerfi
Sent: Þri 25. Mar 2003 12:34
af Voffinn
ég þarf bara að nota heyrnatól á kvöldin... en jæja...
Sent: Þri 25. Mar 2003 14:10
af Atlinn
Ég er í augnablikinu að nota litla prump desktop hátalara
Venjulega er ég að nota 4 rása magnarann(Denon PMA-520 ef einhver getur sagt mér eitthvað um hann þá má hann senda mér emil á
atlithor@heimsnet.is eða pm hérna) sem pabbi gaf mér og 2 stóra Hátalara (100w heimasmíðaðir) og bassabox sem er með að ég held 120w magnara og 300w hátalara, er ekki að nota þetta núna því magnarinn er eitthvað fucked, líklega skítugur kemur alltaf svona fret hljóð með
Sent: Þri 25. Mar 2003 15:12
af Voffinn
hvernig tengirðu hljóðkortið við magnaran ? og hvernig hljóðkort ertu með ?
Sent: Þri 25. Mar 2003 17:12
af Castrate
Ég er tengi mína tölvu við Kenwood heimabíó magnara svo er ég með 5 litla 100w hátalara og 100w bassabox. Þetta er alveg mikið meira en nóg fyrir mig ég þarf ekkert 300w eða 400w hátalara sem taka of mikið pláss. Ég tengi þetta með sound blaster live 5.1 úr digital tenginu.
Sent: Þri 25. Mar 2003 18:01
af Atlinn
Ég er nú bara að nota SoundBlaster Live Value! og 5.1 digital out virkar ekki þannig að ég er bara með þetta í venjulega hljóð out dótinu á því, og nota jack í rca til að tengja magnarann.
Ætla samt allveg að fá mér Audigy 2 næstasumar samt ekki þetta með front panelinum, hef ekkert við hann að gera