Síða 1 af 1
Hverjum get ég mútað hjá Mílu..??
Sent: Þri 26. Jún 2012 00:09
af Tiger
Ljósnetið er komið á áætlun fyrir svolitlu síðan í götina mína og búið að gera allt klárt (kom kall að laga línuna vegna venjulega adsl og gerði klárt fyrir ljósnetið í leiðinni).......þannig að núna þarf ég bara að vita hverjum ég get mútað hjá Mílu til að fá götuna mína í forgang !!!!
Það er AGALEGT að fara úr ljósneti á gamla staðnum í venjulegt ADSL...
Re: Hverjum get ég mútað hjá Mílu..??
Sent: Þri 26. Jún 2012 00:17
af g0tlife
er svona listi sem þú getur skrifað undir einhverstaðar á heimasíðu símans, skrifar alla in the family og labbar svo bara götuna og biður fólkið um að gera það sama
Re: Hverjum get ég mútað hjá Mílu..??
Sent: Þri 26. Jún 2012 00:19
af Tiger
Já var búinn að því, þ.e.a.s alla heimilismeðlimi........ ekki það kræfur að fara að ganga í hús, en það er spurning að fara bara í það
Re: Hverjum get ég mútað hjá Mílu..??
Sent: Þri 26. Jún 2012 00:19
af appel
Þetta er forgangsverkefni hjá Símanum að ljósnetsvæða sem flesta á landinu. Eflaust eru til nákvæmar áætlanir yfir hvenær hvaða hverfi og sveitafélög verða tengd. En e.t.v. hægt að hraða því eitthvað ef ljóst er að margir viðskiptavinir leynast í einhverri götu eða hverfi.
Annars hef ég ekki hugmynd um þetta
Ég er bara nýbúinn að fá ljósnetið til mín þótt ég hafi verið viðstaddur þegar fyrsti götuskápurinn var formlega opnaður.
Re: Hverjum get ég mútað hjá Mílu..??
Sent: Þri 26. Jún 2012 00:34
af Xovius
Er sjálfur á ljósleiðara núna en neyðist til að flytja bráðum
Er bara að vona að ég komist strax á ljósnetið!
Re: Hverjum get ég mútað hjá Mílu..??
Sent: Þri 26. Jún 2012 01:47
af g0tlife
Tiger skrifaði:Já var búinn að því, þ.e.a.s alla heimilismeðlimi........ ekki það kræfur að fara að ganga í hús, en það er spurning að fara bara í það
Býrð bara til miða sem segir á hvað skal gera ef manneskjan nennir. Kannski dinglar og afhendir svo meiri líkur að fólk geri það eftir smá spjall. Hver mundi segja nei við hraðara neti
Re: Hverjum get ég mútað hjá Mílu..??
Sent: Þri 26. Jún 2012 08:57
af worghal
g0tlife skrifaði:Tiger skrifaði:Já var búinn að því, þ.e.a.s alla heimilismeðlimi........ ekki það kræfur að fara að ganga í hús, en það er spurning að fara bara í það
Býrð bara til miða sem segir á hvað skal gera ef manneskjan nennir. Kannski dinglar og afhendir svo meiri líkur að fólk geri það eftir smá spjall. Hver mundi segja nei við hraðara neti
Fólkið í blokk félaga míns sögðu hreint og beint nei við ljósleiðara og nú er hann ógeðslega pirraður xD
Hverjum get ég mútað hjá Mílu..??
Sent: Þri 26. Jún 2012 10:10
af GuðjónR
Nei við ljósleiðara? Var þetta elli-blokk?
Re: Hverjum get ég mútað hjá Mílu..??
Sent: Þri 26. Jún 2012 15:59
af tlord
appel skrifaði:Þetta er forgangsverkefni hjá Símanum að ljósnetsvæða sem flesta á landinu. Eflaust eru til nákvæmar áætlanir yfir hvenær hvaða hverfi og sveitafélög verða tengd. En e.t.v. hægt að hraða því eitthvað ef ljóst er að margir viðskiptavinir leynast í einhverri götu eða hverfi.
Annars hef ég ekki hugmynd um þetta
Ég er bara nýbúinn að fá ljósnetið til mín þótt ég hafi verið viðstaddur þegar fyrsti götuskápurinn var formlega opnaður.
Það sem virkar best á Símann/MÍlu er hræðsla við samkeppni, ef þá grunar að einhver samkeppnisaðili sé að fara að grafa niður ljósleiðara eru þeir mættir daginn eftir..
Re: Hverjum get ég mútað hjá Mílu..??
Sent: Þri 26. Jún 2012 16:25
af capteinninn
tlord skrifaði:appel skrifaði:Þetta er forgangsverkefni hjá Símanum að ljósnetsvæða sem flesta á landinu. Eflaust eru til nákvæmar áætlanir yfir hvenær hvaða hverfi og sveitafélög verða tengd. En e.t.v. hægt að hraða því eitthvað ef ljóst er að margir viðskiptavinir leynast í einhverri götu eða hverfi.
Annars hef ég ekki hugmynd um þetta
Ég er bara nýbúinn að fá ljósnetið til mín þótt ég hafi verið viðstaddur þegar fyrsti götuskápurinn var formlega opnaður.
Það sem virkar best á Símann/MÍlu er hræðsla við samkeppni, ef þá grunar að einhver samkeppnisaðili sé að fara að grafa niður ljósleiðara eru þeir mættir daginn eftir..
Held það hafi verið einhverstaðar í Bandaríkjunum þar sem var ekkert háhraðanet og íbúarnir voru orðnir svo pirraðir að símafyrirtækin vildu ekki tengja hjá þeim því þeir sögðu að það væri of kostnaðarsamt. Bæjarbúar bjuggu bara til sitt eigið símafyrirtæki sem lagði net allstaðar í bænum og rukkaði nánast bara kostnaðarverð fyrir það þar sem eigendurnir voru íbúarnir. Hin símafyrirtækin komu hlaupandi til að tengja þegar þeir sáu í hvað stefndi en þá höfðu bæjarbúar engann áhuga á að stunda viðskipti við þá.
Man ekki hvar þetta var samt en þetta er mjög áhugaverð pæling