Síða 1 af 1

Uppfærslur á Win XP (Windows Update) ókeypis ?

Sent: Mið 21. Júl 2004 12:25
af gingibergs
Í framhaldi af umræðum um download þá langar mig að forvitnast hvort að rétt sé að Windows Update -in reiknist sem erlent download ? Þarf maður semsagt að borga fyrir það hvað Windows er óstöðugt ?

Er kannski hægt að sækja þessi update á einhverri síðu sem er innanlands ? Og þannig sleppa við að þurfa að borga fyrir þessi endalausu update....

Sent: Mið 21. Júl 2004 14:23
af Stutturdreki
Well.. segir sig náttúrulega sjálft að ef þú ferð inn á windowsupdate.microsoft.com er allt sem þú sækir þangað utanlands-download.

Hinsvegar má oft finna stærri patcha, eins og Service Packs, innannlands. T.d. á windows.stuff.is, static.hugi.is og örugglega á fleirri stöðum.

Sent: Mið 21. Júl 2004 14:27
af gnarr
nei, það flokkast sem innanlands download. þetta er mirrorað hérna á íslandi.

stutturdreki: ekki fullyrða svona ef þú veist ekki neitt um málið.

Sent: Mið 21. Júl 2004 14:31
af gingibergs
þannig að það er s.s ekki rukkað fyrir Windows Update -in hjá neinum þeirra sem eru að selja nettengingar (OgVodaf - Síminn - Orkuveitan o.s.frv) ?

Sent: Mið 21. Júl 2004 14:40
af gnarr
allaveganna ekki hjá vodafone og símanum, veit ekki með önnur fyrirtæki. en ég held að þau fari öll eftir ip tölum en ekki domain.

Sent: Mið 21. Júl 2004 15:02
af Pandemic
Ég dl-aði einu sinni 2 gígum frá microsoft.com og það kom ekki á reikninginn þegar ég var hjá Vodafone

Sent: Mið 21. Júl 2004 16:23
af Stutturdreki
gnarr skrifaði:stutturdreki: ekki fullyrða svona ef þú veist ekki neitt um málið.


Aldrei má maður fullyrða..

Annars hafði ég ekki heyrt um þetta fyrr en nú og er ekkert sérstaklega sár fyrir að hafa rangt fyrir mér. Skal fullyrða akkurat hið gagnstæða næst þegar einhver spyr..

Sent: Mið 21. Júl 2004 16:36
af gnarr
þú þarft ekkert að fullyrða neitt ;) það er bara fínt að venja sig á að bæta við "held ég" eða "ég er samt ekki 100% viss" eða einhverju álíka ef maður veit þetta ekki 100% ;)

Sent: Fim 22. Júl 2004 12:19
af Stutturdreki
þarf greinilega að fá mér lögfræðing til að semja svona disclaimer..

"Allt sem ég segi, skrifa og les getur eða getur ekki verið algert bull og vitleysa.. " .. og svo framvegis :)

Sent: Fim 22. Júl 2004 13:24
af Sup3rfly
hafðu þetta bara sem undirskriftina þína :wink:

Sent: Fim 22. Júl 2004 13:25
af gnarr
hahah ;)

Sent: Fim 22. Júl 2004 13:51
af KinD^
nauhh semsagt þegar maður t.d. auto updater winblows hjá sér þá downloadar það í gegnum ísl mirror ánþess að þurfa stillla eitt eða neitt ?

Sent: Fim 22. Júl 2004 15:32
af MezzUp
KinD^ skrifaði:nauhh semsagt þegar maður t.d. auto updater winblows hjá sér þá downloadar það í gegnum ísl mirror ánþess að þurfa stillla eitt eða neitt ?

jamms, Akami "efnisspegill" heitir það víst........

Sent: Fös 23. Júl 2004 15:35
af kiddisig
MezzUp skrifaði:jamms, Akami "efnisspegill" heitir það víst........


Akamai. :-)