Síða 1 af 1

Heimasíðukerfi?

Sent: Fös 01. Jún 2012 13:59
af GTi
Góðan daginn.
Ég er að fara að setja upp heimasíðu fyrir sjálfan mig.
Er kominn með hýsingu, lén og allt það. En mig vantar bara heimasíðuna.

Það sem þessi heimasíða þarf að hafa er:
Blog/Fréttakerfi, Myndaalbúm, Viðburðadagatal (Ekki bara sem sýnir bloggin) og svo custom pages til að setja inn upplýsingar og annað.
Vil líka geta haft Ads á síðunni.

Ég ætlaði mér fyrst að nota WordPress og er búinn að setja það uppá localhost. En ég á erfitt með að finna Gallery og Calendar Add-On sem ég er nógu sáttur með.

Hafið þið einhverjar hugmyndir um fleiri góð heimasíðukerfi?

Heimasíðan má kosta eitthvað smotterí í startgjald en ekki föst mánaðargjöld eða ársgjöld. :troll

Re: Heimasíðukerfi?

Sent: Fös 01. Jún 2012 14:35
af fannar82
Joomla?

Re: Heimasíðukerfi?

Sent: Fös 01. Jún 2012 14:40
af GTi
fannar82 skrifaði:Joomla?

Hef aðeins kynnt mér það. Mér finnst kerfisstjóra-viðmótið hrikalegt.

Re: Heimasíðukerfi?

Sent: Fös 01. Jún 2012 14:43
af fannar82

Re: Heimasíðukerfi?

Sent: Fös 01. Jún 2012 14:48
af coldcut
GTi skrifaði:
fannar82 skrifaði:Joomla?

Hef aðeins kynnt mér það. Mér finnst kerfisstjóra-viðmótið hrikalegt.


Ég var nú á fundi um daginn þar sem kerfisstjóraviðmót Joomla var sýnt og það leit helvíti vel út. Kerfisstjórinn sem flutti örfyrirlestur um það sagði að nýja útgáfan væri mjög góð. Hann skoðaði wordpress, joomla og drupal mjög mikið og ítarlega áður en hann valdi Joomla. Hann sér um 200+ vefsíður með lítilli fyrirhöfn og mælir með Joomla, bæði fyrir lítil project (á að vera auðvelt að koma sér af stað) og fyrir stórt kerfi þar sem sjá þarf um hundruði vefsíða.

Sjálfur hef ég ekki skoðað þetta en ætla að kíkja á Joomla seinna í sumar þannig að ekki taka mín orð sem heilagan sannleika ;)

Re: Heimasíðukerfi?

Sent: Fös 01. Jún 2012 14:55
af fannar82
Svo er líka bara að læra ASP.net \ eða PhP \ Ruby - það er ekkert svakalega flókið

checkaðu á http://www.lynda.com flott námskeið þar gætir kanski checkað eftir lynda námskeiðum á sænsku *wink*wink*

Re: Heimasíðukerfi?

Sent: Fös 01. Jún 2012 17:05
af Hjaltiatla
Ég persónulega myndi nota Wordpress og Artisteer (Automated Web Designer).
Annars er þetta ágæt grein frá Lifehacker
http://lifehacker.com/5568092/five-best-blogging-platforms

Re: Heimasíðukerfi?

Sent: Fös 01. Jún 2012 17:06
af coldcut
Hjaltiatla skrifaði:Annars er þetta ágæt grein frá Lifehacker
http://lifehacker.com/5568092/five-best-blogging-platforms


Þessi grein var ágæt árið 2010 já en vonlaust að nota hana mikið til hliðsjónar núna...

Re: Heimasíðukerfi?

Sent: Fös 01. Jún 2012 17:09
af Hjaltiatla
Er ekki viss um að það sé vonlaust en það hafa eitthverjar breytingar orðið að öllum líkindum. Þetta gefur eitthverja yfirsýn þó.