Síða 1 af 1

Vantar hjálp við routerkaup.

Sent: Þri 22. Maí 2012 16:12
af sxf
Er orðinn þreyttur á bewan routernum frá vodafone. Er með 50mb tengingu en næ ekki nema 2mb upp og niður, er búinn að reyna allt og hafa samband við vodafone nokkrum sinnum.
Hvaða router eru þið að nota? Mælið þið með einhverjum sérstökum?

Öll hjálp vel þegin. :)

Re: Vantar hjálp við routerkaup.

Sent: Þri 22. Maí 2012 16:18
af GrimurD
Ef þú ert að fá 2mb upp og niður þá er eitthvað mikið að þessum router eða þá að það er vandamál með ljósleiðaraboxið. Hefuru prufað að tengja tölvuna beint með snúru í boxið og gera hraðapróf á http://speedtest.gagnaveita.is?

Þessi router á alveg að gefa þér amk 40-45mbit upp og niður ef þú ert snúrutengdur við hann.

Annars hafa start verið að selja flotta routera fyrir ljósleiðara:
http://start.is/product_info.php?cPath= ... ts_id=3167 og http://start.is/product_info.php?cPath= ... ts_id=3432

Furious Joe er líka að selja fínan router hér: viewtopic.php?f=11&t=47492&p=441475&hilit=cisco#p441475

Re: Vantar hjálp við routerkaup.

Sent: Þri 22. Maí 2012 16:19
af sxf
GrimurD skrifaði:Ef þú ert að fá 2mb upp og niður þá er eitthvað mikið að þessum router eða þá að það er vandamál með ljósleiðaraboxið. Hefuru prufað að tengja tölvuna beint með snúru í boxið og gera hraðapróf á http://speedtest.gagnaveita.is?


Ég reyndi það áðan, fékk bara upphrópunarmerki og ekkert net. Einhverjar hugmyndir?

Re: Vantar hjálp við routerkaup.

Sent: Þri 22. Maí 2012 16:24
af SolidFeather
wired eða wireless?

Re: Vantar hjálp við routerkaup.

Sent: Þri 22. Maí 2012 16:26
af GrimurD
sxf skrifaði:
GrimurD skrifaði:Ef þú ert að fá 2mb upp og niður þá er eitthvað mikið að þessum router eða þá að það er vandamál með ljósleiðaraboxið. Hefuru prufað að tengja tölvuna beint með snúru í boxið og gera hraðapróf á http://speedtest.gagnaveita.is?


Ég reyndi það áðan, fékk bara upphrópunarmerki og ekkert net. Einhverjar hugmyndir?

Ef þú reynir að fara inná einhverja heimasíðu þá ættir þú að fá upp gagnaveitu síðuna. Þarft að skrá þig þar inn til þess að skrá tölvuna inná ljósleiðaraboxið. Ég er starfsmaður í tækniverinu hjá Vodafone. Ef þú PM-ar símanúmerið þitt á mig þá skal ég bara hringja í þig og hjálpa þér með þetta.

Re: Vantar hjálp við routerkaup.

Sent: Þri 22. Maí 2012 16:26
af sxf
SolidFeather skrifaði:wired eða wireless?

Alltaf wired.

Re: Vantar hjálp við routerkaup.

Sent: Þri 22. Maí 2012 17:00
af chaplin
Mæli algjörlega með routerunum frá Start, TP-Link - ódýrir, einfaldir og áreiðanlegir. Er sjálfur að skoða þennan. :happy

Re: Vantar hjálp við routerkaup.

Sent: Mið 23. Maí 2012 21:31
af Pandemic
Ég er að luva þennan sem Daníel setti link á. Enda er er 5Ghz eitthvað sem ég myndi vilja vera með sérstaklega í fjölbýli.