Síða 1 af 1

búa til ipad app

Sent: Lau 12. Maí 2012 22:14
af andrifr
Lumar einhver hér á ókeypis idiot proof forriti/vefsíðu til þess að búa til ipad app.

Ég er búinn að gúggla þetta og fæ nokkrar niðurstöður en það er yfirleitt einhver galli, annaðhvort er það lélegt, vantar fídusa eða maður þarf að borga til þess að það geri eitthvað gagn.

Þannig að ég er að velta fyrir mér hvort einhver hafi prófað eitthvað ákveðið og lítist vel á það.

Best væri ef það væru bara einhver template sem maður breytir... t.d. app fyrir bók, og svo breytir maður bara blaðsíðunum, eða app fyrir verslun og maður breytir bara upplýsingunum.

Ég er svosem ekki viss um að það sé boðið upp á svona ókeypis, en væri gaman að heyra. Kannski líka gaman að heyra ef þið hafið keypt aðgang að einhverju sem virkar vel.... en allavega ekki bara gúggla og segja mér hvað þið finnið... ég kann á gúggl :)

Re: búa til ipad app

Sent: Lau 12. Maí 2012 22:15
af Gúrú
Ég skal selja þér það fyrir hundrað milljón dollara.

Þú getur ekki valið bæði gott og frítt.

Re: búa til ipad app

Sent: Lau 12. Maí 2012 22:19
af ORION
Gúrú skrifaði:Ég skal selja þér það fyrir hundrað milljón dollara.

Þú getur ekki valið bæði gott og frítt.



Linux er bæði gott og frítt :guy

Re: búa til ipad app

Sent: Lau 12. Maí 2012 22:20
af dori
Þú færð ekki "forrit sem gerir akkúrat sem þú þarft" ókeypis. Og engin svona template virka.

Also, app fyrir bók... eða verslun? Er ekki best að vita hvað það er sem þú vilt gera fyrst?

Re: búa til ipad app

Sent: Lau 12. Maí 2012 22:22
af andrifr
haha :)

ég átti von á þessu svari.

Ég veit að í flestum tilfellum er það rétt, en ég veit samt líka um sumt sem er gott og frítt.

Þar sem ég ætla ekki að búa til nein framúrskarandi góð öpp, heldur bara eitthvað sem hefur verið gert milljón sinnum áður, bara með mínum myndum, hljóðum, texta og myndböndum, þá er ég að vona að ég finni eitthvað svona beisik forrit.

Re: búa til ipad app

Sent: Lau 12. Maí 2012 22:23
af andrifr
dori:

Ég veit hvað ég vil... ég vil margt.
:)

Re: búa til ipad app

Sent: Lau 12. Maí 2012 22:25
af dori
Númer 1. Það er ekki til neitt sem er frítt og gott á iOS.

Númer 2. Af hverju app? Það notar enginn app. Búðu til vefsíðu, það er m.a.s. hægt að wrappa því inní app t.d. með PhoneGap ef þú þráir að fá app.

Re: búa til ipad app

Sent: Lau 12. Maí 2012 22:46
af andrifr
hefurðu notað phonegap?

Er það auðvelt í notkun og virkar það?

Re: búa til ipad app

Sent: Lau 12. Maí 2012 22:48
af andrifr
ég nota app.

windows 8 er app based...

spurning hvernig þetta verður í framtíðinni.

Re: búa til ipad app

Sent: Lau 12. Maí 2012 22:53
af zedro
Tvö brot á reglunum þræði LÆST!

REGLURNAR -> http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=33&t=6900