Síða 1 af 1

Þarf Linux! Fljótt!

Sent: Mið 14. Júl 2004 00:14
af ErectuZ
Ég þarf Linux fljótt. Hvað get ég fundið það, hvað þarf ég að gera og hverju þarf ég að breyta í tölvunni? Ég hef grun um að ég sé að fara að fá á mig full blown hack-attack :?

Sent: Mið 14. Júl 2004 00:26
af KinD^
haha :P getur farið á herna herna herna [url]ftp.rhnet.is[/url]

Sent: Mið 14. Júl 2004 07:54
af Snorrmund
Afhverju ertu að halda að þú sért að fá á þig hack attack ?

Sent: Mið 14. Júl 2004 11:45
af ErectuZ
Því að það er einhver gaur sem er mjög pissed út í mig og hann er að hóta að hacka mig... :shock:

Sent: Mið 14. Júl 2004 11:47
af Emizter
Rainmaker skrifaði:Því að það er einhver gaur sem er mjög pissed út í mig og hann er að hóta að hacka mig... :shock:

Og ertu alveg viss að hann kunni það... ?

Sent: Mið 14. Júl 2004 11:48
af ErectuZ
Neibb. Hann kann það ekki. En hann á víst einhverja vini sem kunna það, hehe. Persónulega finnst mér þessi gaur vera dálítið ruglaður í hausnum....

Sent: Mið 14. Júl 2004 12:04
af Revenant
Fáðu þér eldvegg og lokaðu á öll port inn. Tveir góðir eldveggir eru t.d. Zone Alarm og Kerio personal firewall.

Annars er http://ftp.rhnet.is með mjög gott safn af Linux distróum s.s. Red Hat (Fedora) og Mandrake. Þessi tvö kerfi eru mjög góð til að byrja á og Fedora er m.a. til á ágætri íslensku. Þegar þú ert síðan kominn lengra þá er FreeBSD, Slackware og Gentoo mjög vinsæl distró.

En athugaðu að skipta úr Windows í Linux getur verið mjög erfitt ferli sérstaklega að samhæfa búnað (módem, netkort o.s.frm) og að fá ýmiss sambærileg forrit úr windows. En stundum er þetta bara mjög auðvelt ef þú ert með algengan vélbúnað (Nvidia t.d.) og notar lítið leiki.

Sent: Mið 14. Júl 2004 12:21
af MezzUp
Rainmaker skrifaði:Neibb. Hann kann það ekki. En hann á víst einhverja vini sem kunna það, hehe.

mundi ekki trúa þessu fyrir túkall.........

Sent: Mið 14. Júl 2004 13:22
af ErectuZ
O jæja. Ég loka þá bara á öll port frekar...

Sent: Mið 14. Júl 2004 16:34
af Pandemic
Gmg ekki nota Zonealarm helvítið sendir alltaf packa á sjálfan sig og lokar kerfinu alveg hræðilegt ég nota Blackice Defender mæli með honum :twisted:

Sent: Mið 14. Júl 2004 17:38
af Voffinn
Blackice og Zonealarm myndi ég ekki snerta með tíu feta stöng. Kerio Personal Firewall er ókeypis og góður.

Annars er svona 100% líkur á að þessi gaur sé bara að grínast, ef hann þekkti einhverja sem "kunna að hacka", þá myndi hann nota annað orðalag yfir það.

Worst that could happend: Þú yrðir dos'aður og myndir detta útaf netinu.

Sent: Mið 14. Júl 2004 18:48
af gnarr
þeir sem kunna að cracka nota líka ekki hacka yfir það... var þetta kanski gaur á ircinu sem sagði þeta við þig.. og bætti svo við mínútu seinna: "þú getur fengið op með því að íta á alt + f4".

Sent: Fim 15. Júl 2004 01:04
af KinD^
eda sagdi ther ad halda inni alt og skrifa fixy ?

Sent: Fim 15. Júl 2004 01:46
af Mysingur
KinD^ skrifaði:eda sagdi ther ad halda inni alt og skrifa fixy ?


hvað gerir það :?:

Sent: Fim 15. Júl 2004 12:27
af Snorrmund
Voffinn skrifaði:Blackice og Zonealarm myndi ég ekki snerta með tíu feta stöng. Kerio Personal Firewall er ókeypis og góður.

Annars er svona 100% líkur á að þessi gaur sé bara að grínast, ef hann þekkti einhverja sem "kunna að hacka", þá myndi hann nota annað orðalag yfir það.

Worst that could happend: Þú yrðir dos'aður og myndir detta útaf netinu.

HVarf gæti ég fengið Kerio ?

á ísl dl. :D

Sent: Fim 15. Júl 2004 12:34
af Icarus
Revenant skrifaði:Fáðu þér eldvegg og lokaðu á öll port inn. Tveir góðir eldveggir eru t.d. Zone Alarm og Kerio personal firewall.

Annars er http://ftp.rhnet.is með mjög gott safn af Linux distróum s.s. Red Hat (Fedora) og Mandrake. Þessi tvö kerfi eru mjög góð til að byrja á og Fedora er m.a. til á ágætri íslensku. Þegar þú ert síðan kominn lengra þá er FreeBSD, Slackware og Gentoo mjög vinsæl distró.

En athugaðu að skipta úr Windows í Linux getur verið mjög erfitt ferli sérstaklega að samhæfa búnað (módem, netkort o.s.frm) og að fá ýmiss sambærileg forrit úr windows. En stundum er þetta bara mjög auðvelt ef þú ert með algengan vélbúnað (Nvidia t.d.) og notar lítið leiki.


jæja... zonealarm :P að setja inn zonealarm inná tölvunna er frekar useless... það verndar þig ekki gegn cröckurum (stupid word) og hindrar aðgengi þitt að netinu.

Sent: Fim 15. Júl 2004 19:21
af ErectuZ
Ég nota reyndar Sygate Personal Firewall

Svo var hann ekki á ircinu, og ég er ekki svo mikill fáviti að ég viti ekki hvað alt-F4 gerir

Sent: Fim 15. Júl 2004 22:38
af gumol
Hægriklikaðu á eitthvað forrit á taskbarnum hjá þér, þá sérðu hvað þetta gerir.

Sent: Fös 16. Júl 2004 02:49
af KinD^
Mysingur skrifaði:
KinD^ skrifaði:eda sagdi ther ad halda inni alt og skrifa fixy ?


hvað gerir það :?:


það gerir það að þegar þú ert í mirc.exe og heldur inni alt .... og ýtir á f þá kemur file listinn niður.... i er bara eithvað til að láta fixy líta út einsog eithvað orð .... x lætur þig fara í exit ... og ef mirc er still þannig að það spyr hvort þú villjir hætta í mirc.exe þá gerir y yes =)

Sent: Fös 16. Júl 2004 12:14
af Icarus
KinD^ skrifaði:
Mysingur skrifaði:
KinD^ skrifaði:eda sagdi ther ad halda inni alt og skrifa fixy ?


hvað gerir það :?:


það gerir það að þegar þú ert í mirc.exe og heldur inni alt .... og ýtir á f þá kemur file listinn niður.... i er bara eithvað til að láta fixy líta út einsog eithvað orð .... x lætur þig fara í exit ... og ef mirc er still þannig að það spyr hvort þú villjir hætta í mirc.exe þá gerir y yes =)


hehe.. snilld :)

Sent: Þri 20. Júl 2004 13:28
af Sveinn
Settu eldvegg, loka portum og hafa forrit sem finnur hackara, norton t.d 24/7 á.. ef einhver hackar þig, ferðu í mál við hann ;o)

Sent: Þri 20. Júl 2004 18:29
af pjesi
Sveinn skrifaði:..ef einhver hackar þig, ferðu í mál við hann ;o)


en ef "hackerinn" á heima í norður kóreu? ;)

Sent: Þri 20. Júl 2004 18:52
af viddi
pjesi skrifaði:
Sveinn skrifaði:..ef einhver hackar þig, ferðu í mál við hann ;o)


en ef "hackerinn" á heima í norður kóreu? ;)


:lol:

Sent: Sun 25. Júl 2004 01:30
af Sveinn
pjesi skrifaði:
Sveinn skrifaði:..ef einhver hackar þig, ferðu í mál við hann ;o)


en ef "hackerinn" á heima í norður kóreu? ;)

Þábaraskoæjiskoþáþúst

Sent: Sun 25. Júl 2004 13:03
af Hlynzi
Taka internetið úr sambandi ;)

Linux er fáanlegt á þessari slóð (fedora...Red Hat kerfið)
ftp://ftp.rhnet.is/pub/fedora/2/i386/is ... -disc1.iso
ftp://ftp.rhnet.is/pub/fedora/2/i386/is ... -disc2.iso
ftp://ftp.rhnet.is/pub/fedora/2/i386/is ... -disc3.iso

Svo ef þú átt DVD brennara þá er það þessi:
ftp://ftp.rhnet.is/pub/fedora/2/i386/is ... 86-DVD.iso