Síða 1 af 1
Er hægt að throttla hraða á ákveðnum tölvum í Speedtouch 585
Sent: Fim 03. Maí 2012 00:57
af capteinninn
Titillinn segir eiginlega allt.
Las einhverstaðar að sumir routerar geti gert það, veit einhver til þess að það sé mögulegt á þessum "POS" router?
Re: Er hægt að throttla hraða á ákveðnum tölvum í Speedtouch 585
Sent: Fim 03. Maí 2012 01:07
af tdog
Þannig séð er þetta hægt (
http://forums.whirlpool.net.au/archive/886194), en þetta er ekki fyir leikmann að gera. Þetta er rugl mikið vesen að gera á svona CPE router, þetta er meira fyrir high-end græjur að gera. Ég myndi frekar setja upp traffic shaping forrit á tölvuna sjálfa.
Re: Er hægt að throttla hraða á ákveðnum tölvum í Speedtouch 585
Sent: Fim 03. Maí 2012 01:27
af capteinninn
Okay geri það eða kaupi mér betri router. Er búinn að langa til að gera það lengi, læt kannski gamla settið pikka það upp í london um helgina
Re: Er hægt að throttla hraða á ákveðnum tölvum í Speedtouch 585
Sent: Fim 03. Maí 2012 01:30
af tdog
Já, ég held að það sé ekki vitlaust. Þú getur ennþá notað Speedtouchinn sem gateway og hengt nýja rúterinn aftan í gatewayinn. Þá þarftu ekki að spá í neinar stillingar varðandi ADSL tenginguna né sjónvarpið. Ég mæli með því að þú skoðir
DD-WRT projectið og fáir þér rúter af þessum
þessum lista