Síða 1 af 1

Óskað eftir freelance vef forritara (php , sql , allavegana

Sent: Fim 29. Mar 2012 15:29
af cozened
Góðan daginn,

Við erum með lítið tölvufyrirtæki, vegna eftirspurna og þess að einn starfsmaður er farinn í fæðingarorlof vantar okkur vefforritara sem gæti unnið soldið freelance og vonandi full staða ef allt gengur vel.

Næg verkefni eru á borðinu eins og er.

Það sem aðilinn þyrfti að kunna er:

PHP
mysql/sql
javascript (ekki mikið)
java væri kostur

Geta verið sjálfstæður og hitt líka viðskipta vinina, helst á bíl.

Endilega hafa samband í email, tomas@melding.is

Takk kærlega fyrir.
kv Tómas

Re: Óskað eftir freelance vef forritara (php , sql , allavegana

Sent: Fim 29. Mar 2012 16:03
af ORION
Er með einhvern tíma lausan, þeas kvöld og um helgar

Er ekki á bíl, Og er semi félagsfælinn

Re: Óskað eftir freelance vef forritara (php , sql , allavegana

Sent: Fim 29. Mar 2012 16:10
af gardar
Tölvuviðgerðir – eitt verð – einfaldt og þægilegt!


dönskusletta?

Re: Óskað eftir freelance vef forritara (php , sql , allavegana

Sent: Fim 29. Mar 2012 16:19
af ORION
Ykkur vantar svo sannarlega forritara..

Kóði: Velja allt

[ #1064 ]: You have an error in your SQL syntax; check the manual that corresponds to your MySQL server version for the right syntax to use near '''')' at line 1.

Re: Óskað eftir freelance vef forritara (php , sql , allavegana

Sent: Fim 29. Mar 2012 16:26
af AntiTrust
ORION skrifaði:Er með einhvern tíma lausan, þeas kvöld og um helgar

Er ekki á bíl, Og er semi félagsfælinn


ORION skrifaði:Ykkur vantar svo sannarlega forritara..

Kóði: Velja allt

[ #1064 ]: You have an error in your SQL syntax; check the manual that corresponds to your MySQL server version for the right syntax to use near '''')' at line 1.


Ég hugsa að þér veitti ekkert af einu af þessum sjálfshjálparnámskeiðum, þú ert ekki alveg með sölumennskuna á eigin ágætum á hreinu.

Re: Óskað eftir freelance vef forritara (php , sql , allavegana

Sent: Fim 29. Mar 2012 16:28
af Viktor
Melding ehf var stofnað árið 2011 , en hét áður Tyrael, ákveðið var að svara eftirspurn á góðri þjónusta og fara alla leið með stofnun félagsins.


Mynd

Re: Óskað eftir freelance vef forritara (php , sql , allavegana

Sent: Fim 29. Mar 2012 16:59
af gardar
Nice, það eru lægri verð á tyrael.is heldur en á melding.is

Re: Óskað eftir freelance vef forritara (php , sql , allavegana

Sent: Fim 29. Mar 2012 18:13
af ORION
AntiTrust skrifaði:
ORION skrifaði:Er með einhvern tíma lausan, þeas kvöld og um helgar

Er ekki á bíl, Og er semi félagsfælinn


ORION skrifaði:Ykkur vantar svo sannarlega forritara..

Kóði: Velja allt

[ #1064 ]: You have an error in your SQL syntax; check the manual that corresponds to your MySQL server version for the right syntax to use near '''')' at line 1.


Ég hugsa að þér veitti ekkert af einu af þessum sjálfshjálparnámskeiðum, þú ert ekki alveg með sölumennskuna á eigin ágætum á hreinu.


Huh? :drekka

Re: Óskað eftir freelance vef forritara (php , sql , allavegana

Sent: Fim 29. Mar 2012 18:14
af ORION
gardar skrifaði:Nice, það eru lægri verð á tyrael.is heldur en á melding.is



Býst við því að tyrael sé ekki lengur með mann í vinnu?

Re: Óskað eftir freelance vef forritara (php , sql , allavegana

Sent: Fim 29. Mar 2012 18:32
af GuðjónR
gardar skrifaði:Nice, það eru lægri verð á tyrael.is heldur en á melding.is


http://tyrael.is/?sida=Ver%C3%B0skr%C3%A1
Verðskrá

Athugið, verð eru án vsk, en við skrifum ekki vsk á reikningana okkar eins og er.


Þetta er nú eins ólöglegt og það getur verið, skrifa reikninga en ekki vsk.
Bjóða "verktakaþjónustu" án VSK ... :face

Re: Óskað eftir freelance vef forritara (php , sql , allavegana

Sent: Fim 29. Mar 2012 19:02
af cozened
Sælir hvað þið eruð hressir :D

einfaldt, já, ég hreinskilni veit ekki hvað er að þessu, er það einfalt?

Semi retarður þegar að stafsetningu kemur :)


GuðjónR skrifaði:
gardar skrifaði:Nice, það eru lægri verð á tyrael.is heldur en á melding.is


http://tyrael.is/?sida=Ver%C3%B0skr%C3%A1
Verðskrá

Athugið, verð eru án vsk, en við skrifum ekki vsk á reikningana okkar eins og er.


Þetta er nú eins ólöglegt og það getur verið, skrifa reikninga en ekki vsk.
Bjóða "verktakaþjónustu" án VSK ... :face


Þú hefur unnið sem sagt mikið í kringum bókhald? :)

Mátt skrifa reikninga út án vsk upp að vissu marki, þarf að skrá það á skatta skýrsluna þína bara og nóta lögilda pappíra eða kerfi fyrir reikningana :)

Þess vegna var nú stofnuð kennitala með vsk númeri í kringum þetta því það fór yfir þau mörk.

Svo þetta eru sömu verð ,vantar bara vsk'in á hjá Tyrael

kv Tómas