Síða 1 af 2
Get ég einhvernvegin fiffað 3 tölvur saman
Sent: Þri 07. Feb 2012 14:15
af AciD_RaiN
Vissi ekki alveg hvað ég átti að skrifa í titil en málið er það að ég er með 3 vélar í gangi á neðri háð hússins og rauterinn sjálfur er uppi. Ég er með kapal tengdan niður en er svo með síma hérna niðri og það er tengi í veggnum. Get ég einhvernvegin fiffað þetta þannig að ég geti tengt allar 3 vélarnar með ethernet hérna niðri eða er mig bara að dreyma?
Re: Get ég einhvernvegin fiffað 3 tölvur saman
Sent: Þri 07. Feb 2012 14:17
af TraustiSig
Switch?
Re: Get ég einhvernvegin fiffað 3 tölvur saman
Sent: Þri 07. Feb 2012 14:26
af playman
geturu ekki bara fært routerin niður?
Re: Get ég einhvernvegin fiffað 3 tölvur saman
Sent: Þri 07. Feb 2012 14:28
af AciD_RaiN
playman skrifaði:geturu ekki bara fært routerin niður?
Nei því miður þá er hann notaður líka við sjónvarpið uppi og þar sem ég á hann ekki ræð ég bara engu um það. Mér var að detta í hug hvort það væri einhver séns á að vera með annan router niðri og tengja við símann hérna? Ætli það sé hægt?
Re: Get ég einhvernvegin fiffað 3 tölvur saman
Sent: Þri 07. Feb 2012 14:32
af Klemmi
TraustiSig skrifaði:Switch?
x2
Re: Get ég einhvernvegin fiffað 3 tölvur saman
Sent: Þri 07. Feb 2012 14:33
af playman
AciD_RaiN skrifaði:Nei því miður þá er hann notaður líka við sjónvarpið uppi og þar sem ég á hann ekki ræð ég bara engu um það. Mér var að detta í hug hvort það væri einhver séns á að vera með annan router niðri og tengja við símann hérna? Ætli það sé hægt?
jú það ætti ekki að vera neitt vandamál.
annars er líka hægt að vera bara með lítin 4 porta switch.
Re: Get ég einhvernvegin fiffað 3 tölvur saman
Sent: Þri 07. Feb 2012 14:33
af inservible
switch x3
Re: Get ég einhvernvegin fiffað 3 tölvur saman
Sent: Þri 07. Feb 2012 14:35
af ZoRzEr
Ég er með einn svona
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=1619Sem ég nota í næstum því nákvmlæga eins skipulagi. 2 tölvur + laptop í einu herbergi. Svo er bara ein snúra í switchinn og yfir í routerinn.
Re: Get ég einhvernvegin fiffað 3 tölvur saman
Sent: Þri 07. Feb 2012 14:35
af jericho
Sorry Off topic, en ertu að spá í human cent
ipad?
[EDIT] linkur
http://www.youtube.com/watch?v=ynpnYh4o_Qo
Re: Get ég einhvernvegin fiffað 3 tölvur saman
Sent: Þri 07. Feb 2012 14:36
af AciD_RaiN
Eru þessi switchar ekki rándýrir? Getiði bent mér á einhvern sniðugan?
Re: Get ég einhvernvegin fiffað 3 tölvur saman
Sent: Þri 07. Feb 2012 14:47
af kubbur
http://tolvulistinn.is/vara/24687er með 2 svona sem hafa aldrei klikkað
Re: Get ég einhvernvegin fiffað 3 tölvur saman
Sent: Þri 07. Feb 2012 14:48
af playman
Re: Get ég einhvernvegin fiffað 3 tölvur saman
Sent: Þri 07. Feb 2012 14:54
af AciD_RaiN
Held að þessi fyrsti væri nú alveg nóg
Takk kærlega fyrir þetta
Re: Get ég einhvernvegin fiffað 3 tölvur saman
Sent: Þri 07. Feb 2012 14:58
af cartman
Ef þú ætlar að láta þessar 3 tölvur interacta eitthvað sín á milli og ef þær eru með gigabit lan tengi, þá mæli ég með því að þú takir gigabit switch. Það munar ekkert smá ef þú ert að flytja margar og/eða stórar skrár á milli véla.
Re: Get ég einhvernvegin fiffað 3 tölvur saman
Sent: Þri 07. Feb 2012 15:00
af Krissinn
AciD_RaiN skrifaði:playman skrifaði:geturu ekki bara fært routerin niður?
Nei því miður þá er hann notaður líka við sjónvarpið uppi og þar sem ég á hann ekki ræð ég bara engu um það. Mér var að detta í hug hvort það væri einhver séns á að vera með annan router niðri og tengja við símann hérna? Ætli það sé hægt?
Það er ekki hægt að hafa 2 ADSL áskriftir á sömu símalínu, hún höndlar það ekki. En ef þetta er önnur lína en uppi þá getur þú hugsanlega fengið þér aðra internet áskrift og fengið annan router. En hugsa að það sé hagstæðast fyrir þig að fá þér Switch eins fleiri eru að benda þér á
Re: Get ég einhvernvegin fiffað 3 tölvur saman
Sent: Þri 07. Feb 2012 15:03
af AciD_RaiN
Já ég er bara að ganga frá pöntuninni núna
Re: Get ég einhvernvegin fiffað 3 tölvur saman
Sent: Þri 07. Feb 2012 15:11
af Krissinn
ok
ertu að leigja og internet fylgdi með í leigunni eða?
Re: Get ég einhvernvegin fiffað 3 tölvur saman
Sent: Þri 07. Feb 2012 15:15
af AciD_RaiN
Nei ég er að missa íbúðina mína og verða gjaldþrota og bý hjá mömmu og pabba á meðan ég er að koma mér út úr þessu veseni en já er samt að leigja þannig séð eða borga leigu amk
sorglegt að vera 26 ára og vera fluttur aftur heim eftir að vera búinn að vera að heiman síðan maður var 16 ára en svona er víst ástandið í þjóðfélaginu í dag
Re: Get ég einhvernvegin fiffað 3 tölvur saman
Sent: Þri 07. Feb 2012 15:55
af Krissinn
segðu....
Re: Get ég einhvernvegin fiffað 3 tölvur saman
Sent: Þri 07. Feb 2012 16:14
af Snorrivk
Re: Get ég einhvernvegin fiffað 3 tölvur saman
Sent: Þri 07. Feb 2012 16:16
af AciD_RaiN
Snorrivk skrifaði:http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=view&flo=product&id_top=128&id_sub=5210&topl=11&page=1&viewsing=ok&head_topnav=NET_TPL5P_10100
Búinn að kaupa mér switch tjá tölvutek fyrir 500 kall meira en þakka þér samt fyrir. Ég versla heldur ekki lengur við tölvuvirkni
Re: Get ég einhvernvegin fiffað 3 tölvur saman
Sent: Þri 07. Feb 2012 16:50
af ponzer
AciD_RaiN skrifaði:playman skrifaði:geturu ekki bara fært routerin niður?
Nei því miður þá er hann notaður líka við sjónvarpið uppi og þar sem ég á hann ekki ræð ég bara engu um það. Mér var að detta í hug hvort það væri einhver séns á að vera með annan router niðri og tengja við símann hérna? Ætli það sé hægt?
Tengir routerinn niðri við símalínuna til að fá ADSL samband inn á hann, tengir svo allar 3 vélarnar inn á hann líka og notar svo þessa einu snúru sem þú ert með á milli hæðana hjá þér og tengir í Port4 á routernum(IPTV portið) og hinn endan á henni í ADSL-TV-Myndlykilinn.. Allir sáttir ?
Re: Get ég einhvernvegin fiffað 3 tölvur saman
Sent: Þri 07. Feb 2012 16:54
af AciD_RaiN
Það eru líka tvær tölvur uppi þannig að það myndi ekki ganga. Prófa bara þennan switch
Ætti að fá hann á fimmtudaginn
Re: Get ég einhvernvegin fiffað 3 tölvur saman
Sent: Þri 07. Feb 2012 17:57
af vargurinn
AciD_RaiN skrifaði:búinn að vera að heiman síðan maður var 16 ára en svona er víst ástandið í þjóðfélaginu í dag
hvernig í skrambanum fórstu að því að flytja út 16 ára?
Re: Get ég einhvernvegin fiffað 3 tölvur saman
Sent: Þri 07. Feb 2012 18:05
af AciD_RaiN
vargurinn skrifaði:AciD_RaiN skrifaði:búinn að vera að heiman síðan maður var 16 ára en svona er víst ástandið í þjóðfélaginu í dag
hvernig í skrambanum fórstu að því að flytja út 16 ára?
Hmmm pakkaði niður dóti og tók flug til reykjavíkur... Engin geimvísindi